AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 38
OsncRTiu
Nýtt AutoCAD fyrir byggingarmarkaðinn á íslandi
AutoCAD Architectural Desktop 2i byggir að fullu á AutoCAD 2000i og innheldur það að fullu. Að
auki eru allir byggingarhlutar í AutoCAD Architectural Desktop 2i svo sem veggir, plötur, þök,
gluggar, hurðir osfrv. Magntaka er í kerfmu og táknun.
Þegar teiknað er í AutoCAD Architectural Desktop 2i þá fara þeir hlutir sem teiknaðir eru, svo sem
veggir, inn á rétt lag þannig að ekki þarf að hugsa fyrir því að skipta milli laga í kerfmu. Svona má
lengi telja og sýna fram á mikla framlegð í teiknivinnu með notkun á því.
Þegar hús er hannað frá grunni er það teiknað í þrívídd. Síðan eru tekin snið í gegnum þrívíddarlíkönin
og er full tenging milli sniða og þrívíddarlíkans. Þannig að ef þrívíddarlíkani er breytt þá breytist
sniðið sjálfVirkt sem áður hefur verið tekið.
Ennffemur er hægt að hanna hús utanfrá og inn í stað þess að hanna hús innan frá og út eins og hús
hafa verið hönnuð ffarn til þessa. Þannig er beytt aðferð sem kallast “Conceptual Design”.
Húshlutamir eru þannig settir út sem td kubbur, sívalningur og keila. Síðan eru húshlutamir lagðir
saman eða dregnir frá hvor öðrum. Að þessu búnu þegar búið er að móta húsið utanffá er húsið
skilgreint þannig að veggir verða til og plötur eru síðan settar inn í húsið. Að þessu búnu eru gluggar
og hurðir settar út í veggjum og að lokum er sett þak á húsið.
Þegar hér er komið sögur eru tekin lóðrétt snið og láréttar sneiðingar í gegnum húsið til þess að gefa út
byggingarnefndar-, burðarþols- og lagnateikningar. Þegar siðan á að fara að selja bygginguna sem
hönnuð hefur verið í AutoCAD Architectural Desktop 2i er þrívíddarlíkanið tekið og búnar til
raunmyndir eða videó. Þetta er gert annað hvort í AutoCAD Architectural Desktop 2i eða 3D Studio
VIZ 3i sem einnig er frá Autodesk. Tekið skal fram að ef breytingar em gerðar í 3D Studio VIZ 3i á td
glugga þá skilar breytingin sér sjálfvirkt til baka í AutoCAD teikninguna. Þannig er fúll virkni á DWG
sniðinu ffam og til baka milli AutoCAD Architectural Desktop 2i og 3D Studio VIZ 3i.
Þegar byggja á upp hverfi eða skipuleggja á inn í gamalt hverfi er gott að setja upp öll þrívíddarlíkön
og þannig skoða í skipulaginu hvemig húsin koma út. AutoCAD Architectural Desktop 2i er kjörið
verkfæri til þessa. Af þvi að nota AutoCAD Architectural Desktop 2i hlýst mikil ffamlegð, aukin gæði
og öryggi í tillögu og áætlanagerð.
Snertill vinnur að því í dag að gera íslenska aðlögun fyrir kerfíð þannig að lagakerfi verður íslenskt og
táknun. Samvinnuaðilar Snertils að verkefninu em arkitetkastofúrnar Arkþing, Batteríið, Teiknistofa
Halldórs Guðmundssonar, Teiknistofan Skólavörðurstíg 28, Úti og Inni og ennfremur CADPOINT AB.
CADPOINT AB hafa gert aðlögun fyrir Svíþjóð, Noreg, Finnland og Danmörk svo eitthvað sé nefht.
Þeir sem nú þegar hafa keypt AutoCAD Architectural Desktop geta valið hvaða aðlögun þeir nota og
mun sú íslenska bætast við innan skamms. Þannig auðveldast samvinna yfir landamæri.
CADPOINT AB og Autodesk hafa gert með sér samkomulag um að CADPOINT AB verði
þróunaraðili að öllum byggingarkerfúm sem Autodesk þróar í komandi ffamtíð. CADPOINT AB hefúr
nú þegar unnið að þróun á AutoCAD Architectural Desktop.
Snertill er söluaðili Autodesk og CADPOINT á sviði bygginga- og landhönnunar og einnnig á sviðið
landupplýsinga.
Sigbjörn Jónsson
Byggingaverkfræðingur Msc
Sölu- og markaðsstjóri Snertils
Architectural
Desktop-