AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 83
SVÆÐISSKIPULAG
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
árslok 1999 var í avs fjallað ítarlega um
svæðisskipulaghöfuðborgarsvæðisins frá
ýmsum hliðum. Þar gerði undirritaður fyrir
hönd ráðgjafa grein fyrir stöðu vinnunnar við
svæðisskipulagið, forsendum þess og
markmiðum.
Nú ári seinna á aftur að taka stöðuna. Til upp-
rifjunar og vegna samhengis verður stiklað á stóru
yfir það helsta sem áður hefur komið fram og
síðan verður þráðurinn tekinn upp þar sem frá var
horfið.
arkitekta ehf. sem mynda íslenska hluta hópsins.
HVAO ER SVÆÐISSKIPULAG?
Samkvæmt nýjum skipulags- og byggingarlög-
um, sem tóku gildi í ársbyrjun 1998, er svæðis-
skipulag skilgreint á eftirfarandi hátt:
Svæðiskipulag er skipulagsáætlun sem tekur
yfir fleira en eitt sveitarfélag. Hlutverk þess er að
samræma stefnu um landnotkun, samgöngu og
þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar á
tilteknu svæði, minnst til 12 ára.
AÐDRAGANDI
Árið 1998 gerðu átta sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu með sér samkomulag um að láta vinna
svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið. Sveitar-
félögin sem eiga aðild að þessu sam- Sveitarfélögin átta
komulagi eru: Reykjavík, Kópavogur,
Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær,
Seltjarnarnes, Bessastaðahreppur og
Kjósarhreppur. Þau hafa hvert um sig
skipað tvo fulltrúa og Skipulagsstofnun
einn fulltrúa í samvinnunefnd til að hafa
umsjón með verkefninu.
Ákveðið var að bjóða verkið út á
Evrópska efnahagssvæðinu í formi for-
vals og lokaðs útboðs þar sem fram
færi í senn hæfnismat og verðsaman-
burður.
Að loknu því ferli, sem sérstök mat-
snefnd á vegum verkkaupa sá um, var í
árslok 1998 ákveðið að ganga til
samninga við hóp sem kallar sig Nes
planners og eftirtalin fyrirtæki mynda:
Verkfræðistofan Anders Nyvig A/S og
arkitekta og skipulagsstofan Skaarup
og Jespersen A/S, sem eru dönsk
fyrirtæki, ásamt Verkfræðistofu Sigurð-
ar Thoroddsen hf. og Vinnustofu
Ekki er skylt samkvæmt áðurnefndum lögum að
láta vinna svæðisskipulag en það er engu að síður
nauðsynlegt þar sem samræma þarf stefnu fleiri
sveitarfélaga um byggðarþróun.
81
RICHARD BRIEM, ARKITEKT OG SKIPULAGSFRÆÐINGUR