AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 41
Á þessari lóð er séð fyrir meira opnu rými en
krafist er í skipulagi San Franciscoborgar. Hluti af
því er óyfirbyggð gönguleið frá Harrison Street og
Beale Street eins og gert er ráð fyrir í skipulagi af
Rincon Hill. Á þessari göngugötu hefur maður til-
finningu af að vera á torgi eða í borgargarði með
miklum gróðri, gosbrunnum hellulögn og bekkkj-
um. Þetta opna rými gefur bæðl lóðinni aukið gildi
og stuðlar að því að gera þetta svæði mjög æski-
legt til íbúðar.
Arkitektarnir Theodore Brown & Partners Inc.
hafa teiknað þessa spennandi byggingu með
burðarvirki úr sjónsteypu sem gnæfir 20 hæðir til
lofts. Á öllum íbúðum eru svalir. Flestar íbúðirnar
eru í hornum byggingarinnar og þaðan er mjög
gott útsýni. Aðalinngangurinn að þessari byggingu
er í fjögurra hæða hluta sem tengir báða turnana
og er klæddur með Calcutta Gold marmara. Á
efstu þremur hæðunum eru „penthús” - íbúðir með
stórum svölum og mikilli lofthæð. Þar er líka arinn
í hverri íbúð og granít á borðflötum í innrétt-
ingunni. Algengt er að gluggar nái frá gólfi upp í
loft. Þríhyrndar svalir teygja sig líka út úr bygging-
unni. Öll þessi atriði gera íbúunum kleift að njóta
stórkostlegs útsýnis yfir flóann, Flóabrúna (Bay
Bridge) og San Francisco.
Inngangur
Þegar þú kemur inn I bygginguna frá Beale
Street kemur þú inn í rými sem er bogamyndað til
þess að bjóða gangandi fólk og bifreiðir velkomin.
Inngangurinn er fimm hæða lóðréttur turn sem
gefur til kynna að leiðin liggi upp á útisvæði bygg-
ingarinnar (plaza). Áherslan í þessu rými er lóð-
rétt. Þrettán metra há glermynd eftir Dan Winter-
rich þekur glervegginn sem snýr út að götunni til
þess að heldur venjulegt átta hæða pósthús
hinum megin við götuna sjáist sem minnst.
List
Mikið af listaverkum sem prýða byggingar og
opið rými í dag hafa ekki verið búin til með við-
komandi byggingar í huga. Allt of oft er torg, skáli,
eða opinbert rými lífgað upp með einhverri
myndastyttu eða veggmynd. Það er mun sjald-
gæfara að listamaðurinn og arkitektinn vinni sam-
an til þess að móta samræmda heild. Ég er þeirr-
ar skoðunar að miklir möguleikar liggi í samvinnu
listamanns og arkitekts. Við höfum reynt að bjóða
upp á slíka samvinnu í þeim byggingum sem við
höfum hannað. í 388 Beale Street unnum við með
Dan Winterich. Hann vinnur með gler og bjó til 13
m háa lóðrétta glermynd í anddyri byggingarinnar.
Við unnum líka með Archie Held sem er mynd-
höggvari og vatnslistamaður við að móta gos-
brunn á torginu milli turnanna.
Bifreiðageymsla
Bifreiðageymslan, sem er á fjórum hæðum, var
hönnuð til þess að gefa íbúunum tilfinningu fyrir
því að þeir kæmu fyrst inn í nokkurs konar anddyri
í bílageymslunni. Um leið og þú kemur inn í
bifreiðageymsluna sérð þú yfir garðinn, norðan við
bygginguna. Um leið og þú ekur gegnum bifreiða-
39