AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 92
EINAR ÞORSTEINN ÁSGEIRSSON,HÖNNUÐUR
Mohhur n ý I e 9 verh eftir © I a f Eliasson
„í dag sækir alþjóðlega listastefnan sterkt inn í
arkitektúrinn", fullyrðir Rochell Steiner, sýningarstjóri við
The Fine Arts Museum í St. Louis nýlega þar í borg. -
Og þá var hún ekki að tala um listamenn þeirra list-
greina sem við þekkjum best á íslandi og flokkast
strangt í málaralist, höggmyndalist o.s.frv., heldur um
þann hundrað manna flokk alþjóðlegra listamanna sem
eru utan þessarar flokkunar og eru eftirsóttir í dag.
Alþjóðlegu stjörnur myndlistarheimsins.
Þetta er fólk sem fer enn nýjar leiðir, laust við gömlu
skilgreiningarnar að mestu - er enda að endurspegla
svið þeirrar menningar sem við búum við í dag, en ekki
löngu horfinna tíma. Starfsvettvangur þessa listafólks
eru stóru söfnin vítt og breitt um heiminn og fyrirkomu-
lagið er að söfnin bjóða. Þau borga fyrir gerð nýrra
verka þessa hóps sem sjaldnast eru ódýr. Og seljist þau
ekki þá eignast listamaðurinn þau að sýningu lokinni. -
Þá er það undir hælinn lagt hvort verkin eru „efnislaus“
eða vega yfir fimm tonn. Þó „efnislaus“ verk sé enn
reyndar erfiðara að selja en hin.
í þessum alþjóðlega hópi listamanna - og í góðum
metum þar - er Ólafur Elíasson, íslendingur með
evrópskar rætur. Ólafur er lítið þekktur á íslandi enda
ekki uppvaxinn hér og með svo snarpan feril að baki á
unga aldri að hann má sjaldnast vera að því að eyða
tímanum í blaðaspjall. Um þessar mundir er hann
umsetinn af listasöfnum fremur en blaðamönnum. Hann
sýnir í sextíu og tveim slíkum og í galleríum á þessu ári
(2000) eða fimmta hvern dag er ný sýning á dagskrá.
Þessi snögga frægð í listheiminum er krefjandi, en
þrátt fyrir það hafa verkin hans farið hratt stækkandi á
síðustu tveim árum. Og meðfylgjandi myndir eru til vitn-
is um það. Vonandi getum við þó hér á landi líka fengið
að njóta verka hans betur í einni stórri sýningu innan
tíðar og eignast fleiri þeirra en hingaðtil.
Og án efa kemur að nýju starfstímabili hjá Ólafi þar
sem meðfærilegri/minni verk taka við. Verk sem stofn-
anir og félög ráða við að kaupa -eftir þennan gengdar-
lausa vöxt í list hans í tvennum skilningi. Því hér er á
ferðinni mjög næmur og hugmyndaríkur listamaður með
90