AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Blaðsíða 64
7. Þéttbyggt miðborgarlandslag.
6. Tillaga í Vatnsmýrinni við núverandi
aðstæður og þéttleika miðborgarinnar.
þarf stórlega skipulagsaðferöir, sem beitt
er hér á landi, með sterkari og fagmannle-
gri skipulagsstofnunum sem byggi tillögur
og ráðgjöf sína á úrleystum rannsóknum
og þátttöku almennings. Skipulag Reykja-
víkur (svæðisins) í framtíðinni mun verða
æ mikilvægari þáttur í lífi landsmanna.
Krafan um fagmannlega og opna vinnu-
aðferð sem inniheldur skipulag borgar og
landsbyggðar með tilliti til alþjóðaþátta
mun gerast háværari líkt og gerist hjá
öðrum nútímaborgum.
Fyrri og seinni heimsstyrjaldirnar merktu lok iðn-
múrar hrunið fyrir tilstuðlan hugarfarsbreytingar
sem hefur átt sér stað á síðustu áratugum. Fólks-
flutningar til samkeppnishæfra borga munu halda
áfram og ímynd og hlutverk landbyggðar, hér jafnt
og erlendis, mun taka miklum breytingum. Þær
borgir sem ekki standast þessa samkeppni munu
verða útundan og vægi þeirra mun minnka bæði
hvað varðar efnahag og pólitík.
Reykjavík (og landsbyggðin sem bakbyggð
hennar) hefur mikla möguleika á þátttöku í hinu al-
þjóðlega efnahagskerfi. Tækifærin liggja nú fyrir
að vægi borgarinnar (og þar með landsins) verði
meiri en stærð eða núverandi staðsetning gefur til
kynna. Nokkrar breytingar verða þó fyrst að koma
til við skipulagsstjórnun: Setja verður upp grund-
vallarmarkmið og fylgja þeim eftir með fagmann-
legum og vel stjórnuðum vinnubrögðum. Skipu-
lags- / borgarfræðileg nálgun þarf að taka tillit til
bæði alþjóðaþátta landsins í heild sem og borgar-
innar. Að gefnu tilefni legg ég áherslu á að bæta
aðarþjóðfélagsins og byrjun hins nýja þjóðfélags sem við
nú lifum í. Hin nýja þjóðfélagsuppbygging er nefnd mörg-
um nöfnum, t.d. upplýsingaþjóðfélag, hátækniþjóðfélag,
tölvuþjóðfélag, samskiptaþjóðfélag, og eftir-iðnaðarþjóð-
félag. Flest þessara nafna eru fremur sérhæfð og tekst
ekki að lýsa þjóðfélagsheimspeki nútímans. Gróflega er
meginmunur á hinu nýja og eldra þjóðfélagi að hið kristall-
aða pýramída heimspekikerfi iðnaðarþjóðfélagsins vék
fyrir flæðandi, síbreytiiegu heimspekikerfi hins nýja
þjóðfélags. Nafnið netkerfisþjóðfélag (network society)
hefur hægt og sígandi verið að taka við sem nafn á hinni
nýju þjóðfélagsmynd erlendis og nota ég hana því hér.
■
Bibliography
Deleuze, Gilles & Guattari, Félix. A Thousand Plateaus,
Capitalism & Schizophrenia (The Atholone Press) 1996.
De Landa, Manuel, Thousand Years Of Nonlinear History,
(Swerve Editions) 1997.
Boyer, M. Christine. Cybercities (Princeton Architectural
Press) 1996.
62