AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Qupperneq 86

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2000, Qupperneq 86
ars. Skipulagsfræðin reynir að bæta þar úr. Ein leið til þess er að blanda byggð. í þessu tilliti hafa helstu markmið okkar verið að setja fram: ■ Heildstætt skipulag sem byggir á sjálfbærri þróun fyrir sjálfbært borgarumhverfi: ■ hugmyndir um „hina þéttbyggðu borg” bæði hvað varðar núverandi byggð og framtíðarbyggð ■ skipulagstillögu sem gerir ráð fyrir að vernda “græna trefilinn” og grænu geirana sem tengja við ströndina og opna mót hafi ■ skipulagstillögu sem gerir ráð fyrir blandaðri byggð og forðast uppskiptingu í starfræn svæði ■ skipulagstillögu sem gerir ráð fyrir „bandbæjum” og undirbýr þannig byggðina undir almennngs- samgöngur þar sem þéttleiki verður mestur við al- menningssamgönguleiðir Með þetta í huga er stefnt að því að svæðis- skipulagið verði hvati og grundvöllur að því að fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu marki sér sess á alþjóðlegum vettvangi og að íbúar þess njóti þeirra lífsgæða sem mögulegt er að veita á hverjum tíma. I því er framtíðarsýn svæðisskipu- lagsins fólgin. I. Þróun byggðar/landnotkun í upphaflegri verklýsingu var gert ráð fyrir að unnin yrði svæðisskipulagstillaga til 20 ára. í vinnslu verksins hefur þetta breyst þannig að nú er unnið að tillögu til 2024. Tillögunni er skipt upp í tvo áfanga, 1997 - 2018 og 2018 - 2024. Tillagan miðar að því að þétta byggð, þjappa henni saman og draga úr útþenslu hennar, m.a. með því að byggja fyrst upp svæði næst þeirri byggð sem fyrir er á milli Mosfellsbæjar og Hafnarfjarðar áður en hafist verður handa við upp- byggingu nýrra svæða í Álfsnesi og sunnan Hafnarfjarðar. Fyrri áfangi nær til byggðar í Mosfellsbæ, Kópa- vogi og Garðabæ eins og hún getur orðið mest, auk svæða í Reykjavík, Hafnarfirði og Bessa- staðahreppi sem eru næst núverandi byggð. Miðað við stöðuga þróun er áætlað að þessi svæði verði fullbyggð árið 2018 og er því þetta ártal valið við áfangaskiptingu svæðisskipu- lagsins. Eftir árið 2018 mun byggð þróast til norðurs, upp í Álfsnes, til suðurs, suður fyrir Hafnarfjörð eða hugsanlega að hluta til á flugvallarsvæðið í Vatnsmýrinni en eins og fram hefur komið er þar um töluverða óvissu að ræða sem Ijósi verður varpað á áður en endanleg svæðisskipulagstillaga verður samþykkt. I. I íbúar og ibúdrir íbúafjöldi á höfuðborgarsvæðinu vex á skipu- lagstímanum úr 164.000 manns árið 1997, (171.000 árið 1999) í um 230.000 manns árið 2024. Gert er ráð fyrir að íbúum í hverri íbúð fækki að meðaltali úr 2.66 árið 1997 í 2.45 íbúa/íbúð árið 2024. Þéttleiki verður mismikill eftir hverfum og verður íbúafjöldinn minnstur á þéttingarsvæðum og innan núverandi byggðar, 2.33, og mestur í nýjum hverfum, 2.85 íbúar/íbúð m.a. vegna breyt- trar aldurssamsetningar en eldra fólki fjölgar mikið og færri börn verða í heimili en nú er. Þörf fyrir nýjar íbúðir er að hluta til vegna fólksfjölgunar og að hluta til vegna fækkunar í heimili. Þessum þörfum er mætt með þéttingu byggðar innan núverandi hverfa og með nýrri byggð á nýjum landsvæðum. 84
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.