Bændablaðið - 26.01.2023, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
FRÉTTIR
Gæði fyrir dýrin og þig!
FB Reykjavík
Korngarðar 12
570 9800
FB Selfoss
Austurvegur 64 a
570 9840
FB Hvolsvöllur
Duftþaksbraut 1
570 9850
www.fodur.is
fodur@fodur.is
Skýrsluhald mjólkurframleiðenda fyrir árið 2022:
Stakkhamar 2 skýst upp á toppinn yfir
afurðahæstu kúabúin miðað við meðalnyt
Stakkhamar 2 í Eyja- og Mikla-
holtshreppi á Snæfellsnesi hefur
skotist á toppinn yfir afurðahæstu
kúabúin á Íslandi samkvæmt nýju
uppgjöri Ráð gjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins úr skýrsluhaldi
síðasta árs. Árið 2021 var búið í
13. sæti sama lista.
Ábúendur á Stakkhamri 2 eru
þau Laufey Bjarnadóttir og Þröstur
Aðalbjarnarson. Árskýr þar eru
57,4 og skiluðu þær að meðaltali
8.910 kílóum hver, sem er tveimur
kílóum meira en var á Búrfelli í
Svarfaðardal þegar það var á toppi
listans árið 2021. Það ár voru árskýr
á Stakkhamri 58,1.
Búrfell fellur niður í sjötta sæti
Búrfell, sem var í efsta sæti listans
fyrir árin 2020 og 2021, fellur niður
í sjötta sæti með 8.374 kíló mjólkur
eftir hverja árskú. Á síðasta ári
fjölgaði þar árskúm úr 39,7 í 43,7.
Annað afurðahæsta kúabú
landsins er Dalbær 1 í Hruna
mannahreppi, en það var fjórða árið
2021. Á síðasta ári skilaði búið 8.672
kílóum að meðaltali á hverja árskú,
en þeim fækkaði á milli ára úr 65
í 60,3. Göngustaðir í Svarfaðardal
stökkva einnig hátt á listanum, frá 16.
sæti árið 2021 í þriðja sætið í fyrra.
Að meðaltali skilaði búið 8.596
kílóum mjólkur að meðaltali á hverja
árskú, sem voru 61,6 í fyrra en 60,9
árið 2021.
Fata mjólkaði mest
Fata 2106 var nythæsta kýr landsins
árið 2022 en hún er á búi Gunnbjörns
ehf. í Gunnbjarnarholti í Eystrihreppi,
undan Sjarma 12090, og móðurfaðir
hennar er Þrymur 02042. Hún mjólkaði
14.739 kg en hún bar sínum fimmta
kálfi 29. janúar á síðasta ári.
Hæsta dagsnyt Fötu á árinu var 55,6
kg, en Fata er fædd í júní 2015.
Meðalinnlegg jókst nokkuð
en búum fækkar
Kúabúum fækkaði um sextán á síðasta
ári og voru í árslok 496 sem leggja
inn mjólk. Fjögur bú til viðbótar hættu
framleiðslu í byrjun þessa árs.
Meðalbústærð á síðasta ári var 51,2
árskýr, var árið á undan 50 árskýr.
Meðalinnlegg á bú jókst nokkuð á milli
ára og var 298.655 kg á síðasta ári,
samanborið við 288.088 árið á undan.
Af núlifandi kúm hefur Gullbrá
357 á Hóli við Dalvík skilað mestum
æviafurðum, eða 102.557 kg
Þröstur Aðalbjarnarson og Laufey Bjarnadóttir á
Stakkhamri 2.
Heimild: Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Fata, á búi Gunnbjörns ehf. í Gunnbjarnarholti,
mjólkaði mest.
Stakkhamar 2 í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Mynd / Aðsendar
Nautakjötsframleiðslan 2022:
Innflutningur erfðaefnis skilar góðum árangri
Samkvæmt niðurstöðum Ráð-
gjafar miðstöðvar land búnaðarins
(RML) úr skýrslu haldi nauta-
kjötsframleiðslunnar fyrir síðasta
ár var þyngsta ungneytið sem
slátrað var á árinu 502,2 kg, naut
nr. 1204 í Nýjabæ undir Eyjafjöllum.
Sama naut náði einnig hröðustum
vexti ársins, eða 729,5 grömm á dag
sem þykir afar hraður vöxtur.
Skýrsluhaldið nær til 126 búa og
þar af holdakýr af erlendu kyni á 96
búum. Heildarframleiðslan á þessum
búum nam um 885 tonnum, sem er
201 tonni meira en árið 2021. Þessi
bú framleiða nálægt 18 prósenta alls
nautgripakjöts á landinu, en yfirlitið
nær ekki yfir þær holdakýr sem eru á
búum þar sem mjólkurframleiðsla er.
„Segja má að stærstu tíðindin
í kjötframleiðslunni séu þau hve
innflutningur erfðaefnis úr Angus frá
Noregi er að skila góðu. Það má best
sjá á því að synir þeirra nauta raða sér á
toppinn, bæði hvað varðar fallþunga og
vaxtarhraða. Notkun þessa erfðaefnis
býður því upp á áður óþekkt tækifæri
fyrir íslenska nautakjötsframleiðslu,“
segir Guðmundur Jóhannesson,
ábyrgðarmaður í nautgriparækt hjá
RML. Nautið númer 1204 í Nýjabæ
var holdablendingur, 63 prósent Angus,
33 prósent íslenskur og 4 prósent
Limousine, undan VísiET 18400 en
honum var slátrað við 22 mánaða aldur
og flokkaðist hann í UN U+3.
Í yfirlitinu kemur fram hversu
holdablendingarnir skara fram úr
hvað varðar þyngd og vaxtarhraða,
einkum og sér í lagi synir yngri Angus
nautanna frá einangrunarstöðinni á
StóraÁrmóti. „Það er mjög eðlilegt að
gripir af kynjum sem hafa verið ræktuð
m.t.t. vaxtar og kjötgæða, taki þeim
gripum sem eingöngu eru ræktaðir til
mjólkurframleiðslu fram. Þetta ætti
hins vegar að vera þeim sem stunda
framleiðslu nautakjöts mikil hvatning
til þess að nýta það erfðaefni sem nú
stendur til boða úr gripum fæddum á
einangrunarstöðinni á StóraÁrmóti.
Þetta eru gripir sem hafa til að bera
meiri vaxtargetu og kjötgæði en
gömlu Angus og Limousinegripirnir,
auk þess sem þeir voru valdir m.t.t.
mæðraeiginleika.
Þeir sem halda holdakýr ættu því
eindregið að notfæra sér sæðingar
ef nokkur kostur er,“ segir í yfirliti
Guðmundar og Sigurðar Kristjáns
sonar, starfsmanna RML. /smh
Sjá nánari umfjöllun um
niðurstöður skýrsluhalds RML
í nautakjötsframleiðslunni á
blaðsíðum 58–59.
Afurðahæstu kúabúin á Íslandi 2022 - meðalnyt á hverja kú
Bú Skýrsluhaldarar Árskýr Mjólk á árskú Fita á árskú % Prótein á árskú %
370132 Stakkhamar 2 Laufey og Þröstur 57,4 8.910 4,27 3,4
871077 Dalbær 1 Dalbær 1 ehf. 60,3 8.672 3,83 3,45
650228 Göngustaðir Göngustaðir ehf. 61,6 8.596 4,19 3,4
870624 Stóru-Reykir Gísli og Jónína 53,9 8.507 4,14 3,36
370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 26 8.477 4,41 3,34
650221 Búrfell Guðrún og Gunnar 43,7 8.374 4,23 3,56
570508 Daufá Efemía og Egill, Daufá 51,2 8.264 4,07 3,45
861037 Syðri-Hamrar 3 Guðjón og Helga 41,1 8.250 4 3,53
871024 Skipholt 3 Sæludalur ehf. 54,7 8.245 4,25 3,37
860292 Stóra-Mörk 1 Merkurbúið sf 39,9 8.146 4,1 3,44
Nythæstu kýrnar á Íslandi 2022
Kýr Faðir Ársafurðir Prót. yfir árið % Fita yfir árið % Bú Félag
1665491-2106 Fata 12090 Sjarmi 14.739 3,29 3,4 870909 Skáldabúðir 2 Skeiða- og Gnúpverjahr.
0797 Stella 1441011-0494 Bessi 13.651 3,19 4,04 550104 Tannstaðabakki V-Hún.
1112 11051 Roði 13.578 3,3 3,49 871058 Hrepphólar Hrunamanna
0273 Snotra 08041 Sigurfari 13.569 3,23 4,49 651150 Ytri-Villingadalur Saurbæjarhr.
1639761-0882 Ófeig 11023 Skalli 13.485 3,52 3,58 870650 Stóra-Ármót Hraungerðishr. og Ölfuss
við síðustu áramót. Hún er
fædd 9. apríl 2004 og hefur
borið 11 sinnum. Bleik 995 á
Gautsstöðum á Svalbarðsströnd
er þar næst á eftir með 100.097
kg við nýliðin áramót. Hún er
fædd 14. ágúst 2009 og hefur
borið 10 sinnum. /smh
Sjá nánari umfjöllun
um uppgjör skýrsluhaldsins
í mjólkurframleiðslu á
blaðsíðum 56‑57.