Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
FRÉTTIR
Veiðibann á grágæs hefur ekki
tekið gildi á Íslandi og ekki
stendur til að banna slíkar veiðar,
þrátt fyrir alþjóðlegt veiðibann
sem gekk í gildi þann 1. janúar
í gegnum alþjóðasamning sem
Ísland er aðili að.
Samkvæmt upplýsingum
úr umhverfis-, orku- og
loftslagsráðuneytinu þá gerðu
Íslendingar og Bretar fyrirvara
við þá breytingu á flokkun
tegundarinnar í verndarflokk, sem
leiddi til veiðibannsins. Aukinheldur
er tegundin stjörnumerkt í
samningnum, sem þýðir að þrátt
fyrir veiðibann þá eru veiðar
heimilaðar svo framarlega sem
þær eru sjálfbærar og í samræmi
við alþjóðlega stjórnunar- og
verndaráætlun.
Vinna við áætlunargerð
að hefjast
Í ráðuneytinu er að hefjast vinna
við gerð slíkrar áætlunar í samstarfi
við Breta. Til að tryggja að veiðar
séu áfram heimilaðar meðan á gerð
áætlunarinnar stendur var gerður
fyrirvari við breytinguna og með
því veittur meiri sveigjanleiki.
Umræddur alþjóðasamningur,
Agreement on the Conservation
of African-Eurasian Migratory
Waterbirds (AEWA), er ætlað að
vernda afrísk-evrasíska vatnafugla
sem eru farfuglar.
Á fundi AEWA síðastliðið
haust lögðu fulltrúar Bretlands til
að grágæsin yrði stjörnumerkt og
fulltrúar Íslands studdu það ásamt
Evrópusambandinu. /smh
Grágæs:
Ekkert veiðibann á döfinni
Alþjóðlegt veiðibann á grágæs hefur tekið gildi, en veiðar verða þó áfram
leyfðar á Íslandi.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins:
Enn versnar rekstrarafkoma
skuldsettra kúabúa
– Kúabændur sækja í aðra starfsemi samhliða mjólkurframleiðslu
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML) hefur lokið við greiningu á
rekstri 154 kúabúa sem tóku þátt
í verkefninu „Rekstur kúabúa
2019–2021“ og birt helstu meðaltöl
á vef sínum.
Staðan er viðkvæm miðað við
nýjar tölur um rekstrarárið 2021 og
útlit fyrir verri niðurstöður vegna
ársins 2022, sérstaklega fyrir þau
bú sem eru mikið skuldsett og með
háan breytilegan kostnað.
Vegna mikilla breytinga í
rekstrarumhverfi síðasta árs er
ætlun RML nú að birta milliuppgjör,
í síðasta lagi í apríl, út frá gögnum
50 kúabúa að lágmarki.
Miklar aðfanga- og
stýrivaxtahækkanir
Kristján Óttar Eymundsson,
verkefnisstjóri hjá RML, segir
að skuldahlutfall búanna hafi
heldur lækkað á árinu 2021 og
einnig vaxtagjöld sem hlutfall af
heildartekjum. Ljóst sé hins vegar
að það verði breytingar á þessum
þáttum til hins verra fyrir árið 2022
– og vænta megi meiri tíðinda fyrir
það ár en árið á undan.
„Árið 2022 einkenndist af
miklum aðfangahækkunum og
stýrivaxtahækkunum sem hækkuðu
breytilega óverðtryggða vexti,
ásamt mikilli verðbólgu. Á móti
hækkaði verðlagsnefnd búvara
grundvallarverð mjólkur þrisvar
sinnum á árinu. Í ársbyrjun 2022
var verðið tæpar 105 krónur á
lítrann, en var komið í tæpar 120
krónur á lítrann þann 1. desember.
Einnig komu viðbótargreiðslur frá
ríkissjóði; fyrst vegna hækkana á
áburðarverði og svo komu greiðslur
eftir tillögum frá svokölluðum
spretthópi.
Síðan má ekki gleyma því
að það komu mjög jákvæðar
fréttir frá stjórn Auðhumlu
og Mjólkursamsölunni í apríl
síðastliðnum þar sem tilkynnt
var að borgað yrði fullt verð fyrir
fituhluta umframmjólkur ársins
2021 og að greidd yrði 5,5 króna
uppbót á hvern lítra umframmjólkur
ársins 2020,“ segir Kristján.
Jákvæðar fréttir efldu
framleiðsluviljann
Kristján segir að í framhaldinu
hafi fylgt jákvæðar tilkynningar
um hækkanir á verði umfram-
mjólkur ársins 2022, sem efldi
framleiðsluvilja bænda þar sem
að aðstæður voru fyrir hendi
heima á búum. Hann segir að eftir
standi þó að rekstrarafkoma búa
sem eru með hlutfallslega mikinn
breytilegan kostnað á bak við
framleiddan mjólkurlítra – og eru
jafnframt mikið skuldsett – hafi
líklega versnað töluvert á árinu
2022. Meira geti hann ekki sagt
um síðasta ár í bili.
Framlegðarstig afurðatekna
lækkar áfram
Að sögn Kristjáns gefa meðaltöl
gagnasafnsins fyrir árið 2021
ekki til kynna miklar breytingar
á rekstrarárinu miðað við árið
á undan. „Þó vekur athygli að
framlegðarstig afurðatekna heldur
áfram að lækka, sem skýrist af því
að afurðatekjurnar hafa hlutfallslega
ekki náð að fylgja eftir hækkunum
á aðföngum og aðkeyptri þjónustu.
Síðan er umhugsunarefni að
afurðasemi búanna, mælt í innlagðri
mjólk eftir árskú, skuli nánast
standa í stað á tímabilinu.
Það má tengja að einhverju leyti
lágu afurðaverði fyrir umframmjólk
og mögulega lakari heygæðum.
Bundnar eru vonir við þá umbyltingu
í kynbótastarfinu sem nú er hafin
með notkun á erfðamengisúrvali
til að hraða erfðaframförum í
stofninum.
Athygli vekur að aðrar tekjur
fara hlutfallslega vaxandi á
þátttökubúunum sem bendir til
þess að bændur séu farnir að
sækja í aðra starfsemi samhliða
mjólkurframleiðslu,“ segir Kristján.
Búrekstrarlegum þáttum
stöðugt bætt við
Verkefnið Rekstur kúabúa 2019–
2021 hófst á árinu 2020, en þá
tóku 90 kúabú þátt. Kristján
segir að stöðugt sé verið að bæta
við búrekstrarlegum þáttum inn
í greiningarvinnuna og leggja
meiri áherslu á ráðgjöf um betri
bókhaldsvinnu til að fá sem skýrust
gögn til úrvinnslu.
/smh
Útlit er fyrir enn verri rekstrarniðurstöður kúabúa fyrir síðasta ár en var árið
2021. Mynd / MÞÞ
Syðri-Hamrar í Ásahreppi:
35 kindur drápust
í bruna
„Aðkoman var óhugnanleg og
þetta er mikið áfall,“ segir Guðjón
Björnsson, bóndi að Syðri-
Hömrum II, sem missti 35 kindur
í bruna 23. janúar síðastliðinn.
Auk þess sem útihús, rúlluvél og
hlaða brunnu.
„Húsin, sem voru gamalt fjós, tvö
samliggjandi fjárhús og hlaða, eru
að mestu ónýt. Við ætlum að reyna
að endurreisa nýrra fjárhúsið en hin
húsin eru ónýt og ekkert annað að
gera en að rífa þau.
Við gerðum allt sem var hægt
að gera og fjöldi slökkviliðsmanna
kom okkur til aðstoðar og það náðist
að bjarga fé nágrana míns en allur
okkar fjárstofn, 35 kindur, drapst í
brunanum. Í hlöðunni var eitthvað af
gömlu heyi í rúllum og þær brunnu
og ég var með rúlluvél í geymslu og
hún brann líka.“
Eldur kom líklega upp
í dráttarvél
Guðjón segir að konan sín, Helga
Björk Helgadóttir, hafi fyrst orðið
vör við eldinn um klukka níu um
kvöldið og að henni hafi sýnst að
það hafi kviknað í út frá dráttarvél
sem var sett í hús fyrr um daginn
eftir notkun.
Ég geri mér ekki grein fyrir
því hversu mikill fjárhagslegur
skaði varð af brunanum en hann er
talsverður. Bara rúlluvélin kostar
á fimmtu milljón og svo á eftir að
meta húsin og féð.“
/VH
Auk þess sem 35 kindur drápust í eldinum, brunnu útihús, hey og rúlluvél.
Mynd / Aðsend
www.bbl.is