Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
LÍF&STARF
Þeir eru heldur betur hressir öðlingarnir hér á myndunum, en
félagsstarf þeirra er lokið hafa lífskafla sínum á vinnumarkaði
er afar virkt víða um landið. Til dæmis eru heil fimmtíu og fimm
félög einungis ætluð þeim er orðnir eru sextíu ára og þar yfir.
Ferðalög, lestur bóka, líkamsrækt, kórastarf, dansleikir og ýmiss
konar vinna handverks er meðal þess sem hægt er að taka sér fyrir
hendur enda nauðsynlegt að hafa eitthvað fyrir stafni og njóta
(félags)lífsins. Hér fáum við að líta á brot af starfsemi félaga eldri
borgaranna okkar landshorna á milli – og má með sanni segja að
þeim leiðist síður en svo! /SP
Úr Vísnakveri Rósbergs Guðnasonar
Snædal, sem ég kynnti lesendum í síðasta
vísnaþætti, verða næstu stökur teknar.
Sumar þeirra hef ég örugglega ekki birt
áður. Vísurnar einkennir sá knappi stíll,
fá orð en falleg samfella sem einkenndi
flestar vísur skáldsins úr Laxárdalnum.
Vísurnar bera yfirskrift frá hendi skáldsins:
Upp og ofan:
Oft hef ég notið yndis hér,
yfir flotið skerin.
Oft hef ég brotið illa’ af mér,
oft hefur hnotið merin.
Manvísa:
Lýsa hvarmaleiftrin blá,
léttir harmi mínum.
Lífsins varma leggur frá
ljósum barmi þínum.
Eftirköst:
Herðalotinn, haldinn geig,
heim í kotið fer ég.
Nú er þrotin nautnaveig,
niðurbrotinn er ég.
Glæður:
Sæll í móðu Sónar-víns
syng ég óð til kvenna.
Inn í hlóðum hjarta míns
heitar glóðir brenna.
Bisnessmaður:
Innilegið auraþý
aðra flegið hefur.
Svikatreyju sýslar í,
sápuþveginn refur.
Kvöld:
Voga strýkur blíður blær,
burtu víkur tregi.
Friður ríkir fjær og nær,
fögrum lýkur degi.
Sigling:
Bátur þekkir bólstað sinn,
blys þótt ekki logi.
Litli hrekkjalómurinn
lenti í Snekkjuvogi.
Heimilið:
Konan öllu illu hótar,
undir tekur sifjalið.
Karlinn dauðadrukkinn blótar.
Drottinn blessi heimilið.-
Slys:
Detta hlýt eg, Drottinn, hér,
dyggða- þrýtur -veginn.
Syndin ýtir eftir mér
inn á vítateiginn.
Í sveita þíns andlits....:
Meðan eitruð Mammonsþý
moða í reitum sínum,
brauðsins neyti’ ég aðeins í
andlitssveita mínum.
Um gengið skáld, Svein Hannesson:
Yfir hrjóstur oft þig bar,
ýmsa slóstu brýnu.
Stífur gjóstur stökunnar
stóð frá brjósti þínu.
Staka:
Sárið grær, en svíður þó,
sorgir ljær og kvíða.
Tækifæri í tímans sjó
tapast ærið víða.
Örlög:
Réðu fornar rúnir þar,
reiði norna hlaut ég.
Öll á morgni ævinnar
af mér hornin braut ég.
Neisti í ösku:
Þennan fund ég muna má,
mæddur stundar sorgum.
Lítil tundur logað fá
lengi í hrundum borgum.
Leikslok:
Varð mér heldur dropinn dýr,
dómsins hrelldur bíð ég.
Eftir kveldsins ævintýr
undir feldinn skríð ég.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Jólabingóstjórarnir frá Dalvíkurbyggð, þau
Herdís Geirsdóttir og Sigurjón Pálsson.
Hér má sjá félagskonur í Félagi eldri borgara
Eyjafjarðarsveitar. Sitjandi er Guðrún
Finnsdóttir, Elísabet Skarphéðinsdóttir, Helga
Björg Haraldsdóttir, Hanna Jóhannedóttir og
Sveinbjörg Helgadóttir. Þær stöllur eru staddar
uppi á Helguhóli við Grund í Eyjafirði í einni af
gönguferðum félagsmanna.
Það er glatt á hjalla í Húnaþingi vestra.
Meistararnir Guðmundur Jóhannesson, Haraldur
Pétursson og Ásbjörn Guðmundsson leika
fyrir dansi á 120 manna þorrablóti Félags eldri
borgara í Húnaþingi vestra þann 21. janúar sl.
Joachim B. Schmidt, höfundur bókarinnar
Kalmann, kynnir verk sitt í Breiðabliki, félags-
heimili þeirra eldri borgara Raufarhafnar.
Hlustað er af athygli enda gerist sögusvið
Kalmanns í Raufarhöfn.
Stöllurnar Erna, Lóa, Heiða og Dóra sitja við
spilamennsku í Strandasýslunni.
Garðabæjarskvísur í leikfimi eins og þeim einum er lagið.
Snæfellsbæjarrokkararnir, þeir Páll Mortensen,
Reynir Rúnar Reynisson og Magnús
Höskuldsson spila á jólahlaðborði Félags eldri
borgara þar í bæ í desember sl. við taumlausa
gleði og aðdáun viðstaddra.
Einbeitingin er nauðsynleg í henni Reykjavík,
enda getur eitt skref í vitlausa átt orðið til falls.
Ljósmyndari myndarinnar, Einar S. Einarsson,
fangar einbeitingu augnabliksins með miklum
sóma.
Í Rangárvallasýslu er upplagt að spila svolítið golf og ræða heimsmálin þar í bland.
Á Ísafirði er gengið hægt um gleðinnar dyr,
enda óþarfi að vera með nokkurn asa. Þau Jóhann Þ. Bjarnason á Auðólfsstöðum og
Ásgerður Pálsdóttir á Geitaskarði sitja hér við
kvöldverð á Hótel Ísafirði er félagið var í
skemmtiferð um Vestfirðina á dögunum.
Hveragerðisdömurnar Þyrnirósir, þær stöllur Anna Jórunn Stefánsdóttir, Jóna Einarsdóttir og Hólmfríður Kristín Kristjánsdóttir, standa fyrir skemmtun á árshátíð eldri borgara við ákafann fögnuð gesta.
Félagsstarf landshorna á milli