Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Pollan er prófessor við Berkeley
háskóla í Kaliforníu og leiðir
þverfaglegar rannsóknir vísinda og
umhverfismála. Auk þess sem hann
er höfundur Netflix-seríunnar How
to Change Your Mind.
Möguleikar hugvíkkandi efna
Í máli Pollan kom meðal annars
fram að hann telji að hugvíkkandi
efni geti falið í sér mikla möguleika
til lækninga á alvarlegum geð-
sjúkdómum eins og þunglyndi og
fíkn sem eigi möguleg upptök í
áföllum. Hann sagði líka að það væri
því sjálfgefið að leyfa rannsóknir á
efnunum.
Pollan sagði einnig að fólk ætti að
fara varlega þegar kæmi að notkun
hugvíkkandi efna og að fólk ætti
ekki að nota þau of snemma á ævinni
og alls ekki nema að það teldi sig
tilbúið til þess.
Stríðið gegn eiturlyfjum
Hann rifjaði einnig upp að
rannsóknir á hugvíkkandi efnum
væru ekki nýjar og að þær hafi
verið stundaðar allt frá þarsíðustu
aldamótum og reyndar enn lengur,
væri neysla á þeim meðal forfeðra
okkar tekin með í reikninginn. Að
hans sögn blómstruðu rannsóknir
í Bandaríkjunum upp úr 1950 og
allt þar til Nixon bannaði efnin árið
1971, í kjölfarið hættu rannsóknirnar.
Á sínum tíma var ástæðan sögð
vera sú að Nixon vildi draga úr
skaðlegum áhrifum efnanna á
ungt fólk og samfélagið í heild. Í
seinni tíð hefur aftur á móti verið
bent á að gagnrýni ungs fólks í
Bandaríkjunum á Víetnamstríðið
hafi verið tengt hippum og neyslu
á hugvíkkandi efnum, því þóttu þau
stríðsrekstrinum í óhag.
Garðyrkjumaður að ástríðu
Í samtali við Bændablaðið sagði
Pollan að hann hafi allt frá því að
hann var barn haft áhuga á plöntum
og að fyrstu bækurnar hans
hafi fjallað um plöntur og
matvæli.
„Afi minn átti garð
og sem pjakkur eyddi ég
miklum tíma með honum í
garðinum. Garðyrkja hefur
alltaf verið mín ástríða og
þar sem plöntur hafa áhrif á
öll skilningarvit okkar rækta
ég bæði plöntur fyrir munninn
og magann og skraut- og
ilmplöntur. Ég rækta grænmeti
í þremur upphækkuðum beðum
og svo er ég með alls konar
ávaxtatré og í öðrum hluta
skrautplöntur.“
Nánast hættur á borða kjöt
Pollan segir að í dag borði hann
lítið sem ekkert kjöt enda blöskri
honum meðferðin á dýrum sem alin
eru upp til slátrunar og að hann
vilji einfaldlega ekki borða kjöt af
dýrum sem fái slíka meðferð.
„Ég borða aftur á móti einstaka
sinnum kjöt af dýrum sem eru
alin á litlum býlum þar sem vel er
hugsað um dýrin og dýravelferð er
í fyrirrúmi og þeim slátrað á réttan
hátt. Umræða um kjöt, meðhöndlun
þess og innihaldsefni er vaxandi í
Bandaríkjunum og víða um heim
og ekki að ástæðulausu þar sem
kjötframleiðsla var lengi vel fólki
ósýnileg og margir héldu að kjötið
yrði til í kjötborði stórmarkaðanna.
Margt af því sem hefur verið og
er í boði er hreinlega skelfilegt og
ekkert tekið tillit til dýravelferðar
í framleiðsluferlinu og margt enn
ógert til að bæta ástandið.
Ég taldi í barnaskap mínum að
upplýsingar gætu breytt heiminum
og að ef fólki væri sagt hvernig
maturinn sem það borðaði yrði til
þá mundi það breyta neyslumunstri
sínu en ég hafið rangt fyrir mér.
Í flestum tilfellum er það verðið
og bragðið sem stjórna innkaupum
fólks en ekki gæði og dýravelferð.
Satt best að segja olli þetta mér
talsverðum vonbrigðum.“
Plöntur eru ótrúlegt lífsform
Smám saman, eftir að hafa fjallað
mikið um plöntur, landbúnað og
næringu, færðist áhersla Pollan yfir
á plöntur sem hafa hugvíkkandi
áhrif. „Áhugi minn á plöntum hefur
alltaf tengst heilsu á einhvern hátt
og með því að skoða hugvíkkandi
plöntur er ég að skoða áhrif plantna
á hugann en ekki bara líkamann.
Umfjöllunarefnin eru því ekki
ótengd og ein áhugaverðustu
áhrif plantna og sveppa á menn
eru hugvíkkandi og ég hef lengi
haft áhuga á þeim samhliða áhuga
mínum á næringargildi plantna.
Plöntur eru einfaldlega ótrúlegt
lífsform og ótrúlegt hvaða áhrif
þær geta haft og áhugavert að velta
fyrir sér af hverju sumar þeirra hafa
þróast í þá átt að hafa hugvíkkandi
áhrif.
Mín skoðun er sú að plöntur sem
fullnægja þörfum okkar vegni betur
í lífsbaráttunni og það gera þær
með því að veita okkur fegurð, mat
og með því að breyta meðvitund
okkar. Ég hef því ekki bara áhuga
á hugvíkkandi plöntum því ég hef
áhuga á öllum plöntum sem hafa
áhrif á vitund okkar og kaffi er gott
dæmi um það.“
Í nýjustu bók sinni, This is Your
Mind on Plants, fjallar Pollan um
áhrif kaffeins, ópíum og meskalíns
á mannshugann en það eru allt mjög
ólík efnasambönd.
Meðvitundin
Pollan segir að hann ætli að taka
sér langþráð frí á næsta ári en að
hugsanlega sé í pípunum framhald
á myndinni Food Inc. sem hann
vann, ásamt fleirum, og var gefin
út árið 2008.
„Mig langar síðan að skrifa bók
um meðvitundina út frá mörgum
sjónarhornum. Hvað við vitum um
hana, hvar hún er staðsett, hvernig
hún virkar og til dæmis hvaða áhrif
hugvíkkandi efni hafa á hana.“
Við bjóðum nú sérsniðnar
gúmmímottur í ýmsum gerðum
fyrir allar gerðir gripahúsa
Flestir eru sammála að steypt
undirlag er ekki náttúrulegt
fyrir kýr og getur valdið því að
þeim líði illa og framleiði þar af
leiðandi minna magn af mjólk.
Motturnar eru sérskornar fyrir
hvert verkefni fyrir sig og fer
því nánast ekkert til spillis auk
þess sem fljótlegt er að leggja
þær á gólfið.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
VELFERÐARMOTTUR
5 ÁRA FRAMLEIÐSLUÁBYRGÐ
Michael Pollan sat fyrir svörum hjá Karen Kjartansdóttur og tók við
spurningum úr sal á ráðstefnunni um hugvíkkandi efni til lækninga sem
fór fram í Hörpu fyrir skömmu.
Landbúnaður og hugvíkkandi efni:
Plöntur, heilsa og hugur
Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Michael Pollan var einn af gestum
ráðstefnunnar „Psychedelics as Medicine“ í Hörpu á dögunum. Pollan
hefur lengi haft áhuga á næringarfræði og matnum sem við borðum.
Síðustu tvær bækur hans fjalla aftur á móti um hugvíkkandi plöntur
og áhrif þeirra á mannshugann.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Ég hef því ekki
bara áhuga á
hugvíkkandi plöntum
því ég hef áhuga á
öllum plöntum sem
hafa áhrif á vitund
okkar og kaffi er gott
dæmi um það.“
Michael Pollan segist lengi hafa haft áhuga á plöntum og áhrifum þeirra á
meðvitundina. Myndir / VH
Michael Pollan hefur gefið út fjölda áhugaverðra bóka. Myndir / af vefsíðu
VIÐTAL