Bændablaðið - 26.01.2023, Síða 40

Bændablaðið - 26.01.2023, Síða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 „Þetta getur nú ekki verið svo flókið, við hljótum að gera gert þetta.“ Hver hefur ekki látið svona setningar falla á góðri stundu í sumarbústað án frekari afleiðinga? Tveir félagar skoða miða á bjórflösku og sjá að það eru bara fjögur hráefni listuð á þessum Erdinger bjór sem þeir voru að drekka. Þar af er vatn eitt af þeim og ger annað, þannig að raunverulega eru þetta tvö hráefni sem þarf að hafa áhyggjur af. Sósan með matnum var með átta hráefnum. Alla jafna er það ekki fréttnæmt að svona samtal eigi sér stað, nema þegar félagarnir eru Kjartan Vídó og Jóhann Guðmundsson, Vestmannaeyingar í húð og hár. Það hefur nefnilega löngum verið sagt að í Vestmannaeyjum hafi aldrei ríkt sérstakt áfengisbann og fæstir þar kannast við að bjór hafi ekki verið leyfður. Það var því eðlilegt framhald af þessum bústaðarumræðum að láta reyna á fullyrðinguna og félagarnir hóuðu í bræður sína, Davíð og Hlyn, fjárfestu í f rumstæðum bruggtækjum og hófu að prófa sig áfram með bjórframleiðsluna. Nafnið kom þannig hálfpartinn af sjálfu sér, Brothers Brewery var fætt í sinni fyrstu mynd árið 2012. Fljótlega datt þó einn bróðir úr skaftinu og annar kom í staðinn, Hannes Eiríksson, og þrátt fyrir að sá héti hvorki Vídó né væri Guðmundsson að þá átti hann bæði bílskúr og var stálsmiður, sem átti heldur betur eftir að koma sér vel. Lítið sást af brugglaunum Upphaflega var framleiðslan öll til einkanota. Félagarnir voru þó gjafmildir á framleiðsluna og töldu sig ekki of góða til að leyfa öðrum að njóta framtaksins, við misgóðan orðstír. Þannig vildi það til að Einar Björn Árnason matreiðslumeistari datt í skúrinn til þeirra eitt kvöldið og upp hófust umræður um að framleiða bjór til að para með mat. Þurr Saison í góðu jafnvægi var við hönd og niðurstaðan varð sú að slá til, bræðrahópurinn óskyldi skyldi brugga bjór fyrir veitingastaðinn Einsa kalda og veitingastaðurinn skaffa aðstöðuna til verksins. Veitingastaðurinn fékk leyfi til að framleiða bjór og voru tæki og tól sem Hannes hafði endurbætt flutt í eitt hornið þar sem þeir brugguðu. Upphaflega var markmiðið að brugga um 150 lítra, þar sem að þriðjungur átti að ganga í brugglaun og þar með til einkanota, en strax varð ljóst að lítið sást af þeim, þar sem viðtökurnar voru vonum framar. Gekk það svo langt að félagarnir áttu sjaldnast eigin bjór og ef þeir ætluðu að fá sér eigin framleiðslu þurfti að greiðast fyrir það á barnum. Fyrst um sinn var ástandið þannig að erfiðlega gekk að hafa smakkbakka frá þeim í sölu, því bjórinn var oft búinn þannig að ljóst var fljótt í hvað stefndi. Til viðbótar við þetta mættu þeir svo á Bjórhátíðina á Hólum sumarið 2016 þar sem Brothers Brewery brugghúsið vann til fyrstu verðlauna í samkeppni um bjór hátíðarinnar það árið, en það eru gestir bjórhátíðarinnar sem greiða atkvæðin í þeirri keppni. Skemmst er frá því að segja að varla var aftur snúið, þeir gengu í það að panta sér bruggtæki að utan, einir fyrstu til að kaupa tæki sem síðar áttu eftir að rata í ansi mörg brugghús, útvega húsnæði sem þeir fengu í nóvember sama ár og loks fengu þeir starfsleyfi fyrir bjórgerð 16. desember 2016. Bera nöfn heimamanna En í upphafi skyldi endinn skoða. Upphaflega markmiðið var í sjálfu sér ekki að framleiða bjór fyrir aðra en þá sjálfa, þannig að nafngiftin tók mið af því en ljóst er af framansögðu að það sprakk fljótlega í andlitið á þeim. Síðar hafa þeir félagar sagt frá því að ef þá hefði órað fyrir þeim árangri sem brugghúsið myndi ná hefðu þeir alltaf valið því annað nafn, meira lýsandi fyrir paradísareyjuna Vestmannaeyjar, meðan hitt vísaði til upphafsins. Þess í stað tóku nafngiftir á bjórunum frá Brothers Brewery meira frá heimaslóðunum. Bjórana 23.1.73 og Eldfell t.d., sem voru með fyrstu bjórunum í almennri sölu, þarf vart að útskýra, verðlaunabjórinn Togari var bjór sem gerður var fyrir sjómannadaginn upphaflega en svo fóru sumir bjórarnir að bera nöfn heimamanna. Sá langlífasti af þeim er Gölli IPA sem nefndur var eftir sjómanninum Árna Valdasyni, sem var svo annálaður fyrir hreystimennsku, bæði á sviðum vinnu og skemmtana, að hann lifir enn í vísnaminni Vestmannaeyja. Heimir Pale ale og fleiri góðir hafa litið dagsins ljós, en óljóst er og ósagt látið í hvaða eyjabúa IPA bjórinn „Dirty Julie“ vísar í. Vatnið betra og sólin skærari Eftir að hafa stækkað við sig enn frekar árið 2018, þá hafa þeir félagar núna haldið úti bjórhátíðum síðustu sumur sem hafa verið virkilega vel sóttar hátíðir og hafa færri komist að en vilja. Þessi bjórhátíð hefur haft LÍF & STARF Hólmar Bragi Pálsson, áður búsettur á Minni-Borg í Grímsnesi en nú á Selfossi, vann árið 1962 á Massey Ferguson 702, sem var fyrsta traktorsgrafan sem kom til landsins frá þessum framleiðanda. Þessi vél var frumsýnd á skeiðvellinum í Víðidal í byrjun júní árið 1961 og vakti þar mikla athygli. Á þessum árum voru gröfur með vökvakerfi ekki búnar að ná almennri dreifingu og var þetta því ný tækni. Verktakafyrirtækið Fjöliðjan í Kópavogi var fyrsti eigandi þessarar traktorsgröfu og vann Hólmar á vélinni þegar hann var starfsmaður þeirra. Helstu verkefni hans sumarið 1962 var vinna við endurbætur á símalögnum Landsímans á ýmsum stöðum, allt frá Borgarfirði norður á Siglufjörð. Þá var Hólmar 22 ára. Húsið á vélinni var tvískipt. Að framan settu eigendurnir ökumannshús af veghefli og að aftan var örlítið hús sem setið var í þegar unnið var á bakkóinu. Þegar Hólmar var einn á gröfunni þá þurfti hann að hlaupa á milli húsanna tveggja í hvert skipti sem hann færði vélina. „Síminn setti þau skilyrði að það væru strákar með mér – þeim gekk ekkert mjög vel að grafa, en það var ógurlegur flýtir af því að þeir væru frammi í vélinni,“ segir Hólmar, en þeir gátu þá séð um að færa vélina á meðan hann sat við bakkóið. Misjafnt var hvernig Hólmar fór á milli svæða. Ef um stuttan veg var að fara, þá keyrði hann gröfuna – annars var vörubíll á vegum Landsímans sem gat tekið vélina upp á vagninn. Sumarvinnan byrjaði við endurnýjun símastrengja við Gljúfurá í Borgarfirði, en þaðan fór Hólmar með traktorsgröfuna á vörubílspalli norður á Blönduós. Vann 91 tíma á viku Aðsóknin í gröfuna var mjög mikil og vann hann flestar helgar í aukaverkefnum, þegar ekki var unnið fyrir Símann. Hann var fenginn í að grafa fyrir húsgrunnum og lögnum, bæði í sveit og þéttbýli. Eftir 17 vikna útgerð, eða rétt rúma fjóra mánuði, hafði hann notað vélina 1.550 vinnustundir, eða að jafnaði 91 tíma á viku. „Ég var með skrúfstykki á horninu á henni og helstu slöngur sem gætu farið í poka. Það sprungu þrjár, fjórar,“ segir Hólmar, en að öðru leyti var vélin mjög áreiðanleg og laus við bilanir allt sumarið. Jarðýtustjórinn lagði ekki í brekkuna Eftir að hafa verið á Blönduósi um hríð var Hólmar fenginn í verkefni á Siglufirði. Þar stóð til að grafa breiðan lagnaskurð fyrir fjarskiptabúnað í Hvanneyrarskál. Þá var þegar kominn slóði sem fór í sneiðingum upp fjallshlíðina. Lagnaskurðurinn átti ekki að fylgja slóðanum, heldur að fara í miklum bratta niður hlíðina og var lagt upp með að jarðýta færi niður fyrst til að undirbúa jarðveginn. Ýtustjórinn guggnaði hins vegar á verkefninu þegar á hólminn var komið. „Þá voru góð ráð dýr. Ég ákvað að við skyldum bara reyna þetta en við yrðum með taug í ýtuna sem héldi í mig þegar ég færði mig. Þetta var svo mikill halli,“ segir Hólmar. Til að rétta traktorsgröfuna þá setti hann lappirnar að aftan eins lítið niður og hann gat, en ámoksturstækin eins langt niður og mögulegt til að hún spenntist upp að framan. „Maður náði ekki að gera hana lárétta nema stöku sinnum.“ Eins og áður segir þá var Hólmar oftar en ekki með einhvern með sér sem sá um að færa gröfuna. Aðstoðarmaðurinn var þó svo lofthræddur að þetta verkefni féll í hendur Hólmars á verstu köflunum. Ef þeir voru báðir í vélinni, þá reyndi Hólmar að halda í með arminum. Lögregla vaktaði grjóthrun Vökvakerfið var ekki öflugt í þessari MF traktorsgröfu. Því þurfti Hólmar að passa sig sérstaklega að lyfta bakkóinu ekki hátt með fulla skóflu, því þá verkaði þyngdaraflið á það þannig að það skall til hliðar í vinkil. Stundum þurfti að rétta bakkóið með spotta. „Það var á ákveðnum kafla sem ég náði arminum ekki alltaf til baka.“ Nokkurt grjót kom upp við skurðgröftinn sem hrundi niður fjallshlíðina. „Um tíma þurfti að vera með lögreglu niður á vegi fyrir ofan byggðina af því að krakkar voru að forvitnast,“ en Hólmar segir hnullungana hafa getað náð talsverðri ferð í þessari löngu brekku. Ekki var talið mögulegt að fylla ofan í skurðinn með vinnuvélum og segir Hólmar að unglingaflokkar hafi gert það með handafli eftir að hann var farinn. Í dag er eigandi vélarinnar Jón Árnason, sem rekur verktakafyrirtækið Verktækni. Unnið er að uppgerð hennar á Blikastöðum í Mosfellsbæ og er stefnt að því að koma henni í upprunalegt ástand. /ÁL Saga vélar: Við skurðgröft í snarbrattri hlíð Árið 1962 var Hólmar Bragi Pálsson fenginn til að grafa lagnaskurð á fyrstu Massey Ferguson traktorsgröfu landsins úr Hvanneyrarskál ofan við Siglufjörð. Til þess að grafan myndi ekki hrapa niður hlíðina þurfti að festa í hana kapla sem tengdir voru við jarðýtu uppi í skálinni. Mynd / ÁL Handverksbrugghúsin á Íslandi: „Þetta getur varla verið svo flókið“ Höskuldur og Stefán hoskuldur@bondi.is Hlynur, Hannes, Kjartan og Jóhann eru upphafsmenn Brothers Brewery. Eftir áhugaverðar umræður var ákveðið að bræðrahópur óskyldur skyldi brugga saman bjór fyrir veitingastað í Vestmannaeyjum. Viðtökurnar voru vonum framar.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.