Bændablaðið - 26.01.2023, Page 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Skógræktin óskar eftir að ráða starfsfólk í fullt starf við starfstöðvar
sínar í Hvammi Skorradal, Vaglaskógi, Hallormsstaðaskógi
og Tumastöðum Fljótshlíð. Leitað er að öugu fólki sem er tilbúið að
takast á við fjölbreytt störf við ræktun og umhirðu skóga.
Hlutverk og markmið:
• Þátttaka í skipulagi, framkvæmd, úttektum og skýrslugerð vegna
grisjunar- og gróðursetningarverkefna
• Ýmis störf við úrvinnslu á viðarafurðum
• Ýmis viðhaldsverkefni tengd vinnuvélum
• Á Tumastöðum er vinna við ræktunarstöð
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Próf í skógtækni, skógfræði eða garðyrkju æskilegt
• Almenn tölvukunnátta
• Enskukunnátta æskileg
• Vinnuvélaréttindi æskileg
• Þekking á viðhaldi véla
• Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Starfsfólk í þjóðskógunum
Æskilegt er að umsækjandi geti hað störf sem fyrst
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um
starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr 70/1996.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar nk.
Nánari upplýsingar um störn er að nna á Starfatorgi og á vef Skógræktarinnar, skogur.is/atvinna.
Markmið Skógræktarinnar er að stofnunin sé eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn, starfsfólki búin
góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun sem stuðli að starfsþróun og verðmæta-
sköpun innan Skógræktarinnar og alls skógræktargeirans.
Skógræktin hefur hlotið jafnlaunavottun, innleitt styttingu vinnuvikunnar og græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér
um-hvers- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um
áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.
Viltu taka þátt í grænni framtíð?
NÁNAR Á
skogur.is/atvinna
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Viltu taka þátt í grænni framtíð - starfsfólk þjóðskógum BBL jan2023.pdf 1 10.1.2023 14:20:06
109.900.000
Hólagerði 561 Varmahlíð
Jörð/lögbýli/sumarhús/skemma/hesthús 62 ha
Grensásvegi 11 108 Reykjavík | Sími 588-9090 | eignamidlun.is
Lárus Ómarsson
Löggiltur fasteignasali
larus@eignamidlun.is
824 3934
yfir sér sama anda og
öll starfsemin hingað
til, fjölskylda og
vinir hafa tekið
höndum saman til
að láta hana ganga
upp og ef þú ert
með millinafnið
Vídó eru afar góðar
líkur á því að finna
þig einhvers staðar í
kringum þessa hátíð eða
í kringum starfsemina ef út
í það er farið.
Í dag rekur Brothers Brewery
bruggstofu í hjarta Vestmannaeyja,
eru með 15 manns í vinnu
og samhentur hópur vina og
vandamanna lætur dæmið ganga
upp. Bræður, konur, mæður,
eiginmenn, afar og börn hlaupa
til og frá og ganga þar í öll verk.
Matur er seldur af nærliggjandi
veitingastöðum og stríður straumur
heimafólks og ferðamanna liggur
á barinn. Ástríðan fyrir verkefninu
og velvild nærsamfélagsins má
hverjum vera ljós
þegar komið er til
Eyja en oft getur
reynst erfitt að
fá sæti, slík er
ásóknin.
E i n h v e r n
tíma varð öðrum
gre inarhöfundi
það á að spyrja
ónefndan forkólf
úr eigendahópnum
hvort þeim hefði í ljósi
eftirspurnar ekki dottið í hug að
færa sig á stærri markað, t.d. til
Reykjavíkur. Eftir langa ræðu
um kosti paradísareyjunnar
Vestmannaeyja þar sem meira að
segja vatnið bragðaðist betur, eftir
að því hafði verið dælt frá landi,
sólin skini skærar og allt a.m.k.
helmingi betra en á norðureynni var
ljóst að spurningin var greinilega
móðgandi. Vestmannaeyjar voru
það, Vestamannaeyjar eru það og
Vestmannaeyjar skyldi það vera:
Þar slær hjarta Brothers Brewery.
Bjórhátíðin í Vestmannaeyjum eru vel sóttar.
Bruggtækin eins og þau voru í horninu í eldhúsinu hjá Einsa kalda.
Þegar bugghúsið vann til fyrstu verðlauna í samkeppni um bjór hátíðarinnar
á Hólum var ekki aftur snúið.