Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 54

Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 LESENDARÝNI Hugum að- eins að því hvar íslenska féð stendur í svona samanburði við önnur fjárkyn. Við getum sagt að einkenni íslenska fjárins í svona s a m a n b u r ð i er einkennaleysi þess. Íslenska féð tilheyrir norður-evrópsku stuttrófukynjunum. Það er um leið fjárflesta kynið af þeim kynstofni öllum. Það er tiltölulega samstætt með tilliti til dindilstærðar og -lengdar eftir að öll einkenni erlendu kynjanna sem blönduðust því íslenska hafa ræktast úr íslenska kyninu. Það heyrir til hreinna undantekninga að finna fjárkyn sem sýna viðlíka fjölbreytni í lit og litaafbrigðum og finnast hjá íslenska fénu. Hjá öðrum fjárkynjum er nánast allt fé annaðhvort hyrnt eða kollótt svo að ekki sé talað um ferhyrnt sem er fáséð. Ólík kyn myndast eftir að fé var tamið Höfundarnir segja að ólík kyn hafi myndast eftir að fé var tamið sem húsdýr, annaðhvort með náttúruvali eða markvissu vali, oftast með tilliti til þessara nefndu eiginleka og oft fleiri þátta. Þannig benda þeir á að fituhalafé hafi myndast sem aðlögun að erfiðu umhverfi og tímabundnum fóðurskorti. Þeir benda á að mjódindilsfé hafi síðar þótt hagfelldara með tilliti til fjölmargra þátta eins og hreyfingar, æxlunar og fóðurnýtingar m.a. Horn voru áður vopn gegn rándýrum og skiptu máli í baráttu hrútanna um ærnar á fengtíma en nú þyki það kollótta hagkvæmara til að losna við hornnám til að forða öðru fé og hirðinum frá slysum. Litir geta haft áhrif á aðlögun að umhverfi og sem vörn gegn sníkjudýrum. Gildi hvíta litarins hjá fjölmörgum ullarframleiðslukynjum blasir einnig við. Telja þeir síðan fjölda gena fyrir þessa eiginleika sem hafa verið greind. Runur af heitum slíkra gena verða ekki þuldar hér en áhugasömum sem vilja læra slík erlend nöfn vísað til greinarinnar sjálfrar sem finna má í fyrsta hluta greinaflokksins. Þeir ljúka innganginum með að segja að þeir vænti þess að uppgötvun nýrra gena sem ráða svipfari útlitseiginleika sauðfjár muni styrkja ræktunaráætlanir og erfðabundnar aðgerðir til hraðari framfara í framleiðslu og velferð sauðfjárkynja í heiminum. Blessaður dindillinn Það er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar höfundar byrja að fjalla um erfða- og svipfarsform mismunandi eiginleika heldur ráðist á sjálfan dindilinn. Vafalítið er það að hluta til vegna þess að sumir höfundanna munu heimsþekktir vísindamenn í þessum göfuga líkamshluta sauðfjár. Ég ætla að leyfa mér að fara mjög léttilega yfir þessi vísindi og losa lesendur undan nafnaþulum um tugi gena sem ráða vexti og mismunandi þroska þessa líffæris. Höfundarnir segja að þau gen sem mest áhrif hafi séu þau sem stjórna því hvort kindurnar séu með fituhala eða mjódindilsfé. Þá séu gen sem ráða lengd dindilsins þýðingarmikil en það stjórnist bæði af fjölda rófuliða auk lögunar og stærð liðanna. Til viðbótar séu áreiðanlega fjöldi áhrifaminni gena sem hafi áhrif á lögun dindilsins sem enn eru að meira og minna leyti óþekkt og órannsökuð. Karakúlblendingar Þó að íslenska féð sé í dag samstætt um dindil þá er reynsla frá fyrri hluta síðustu aldar af erlendum kynjum sem voru skrautlegri um dindillögun og dindilstærð og -lengd. Þetta var fé af Border Leicester (BL) kyni, Svarthöfða- og Cheviotfé en allt eru þetta langrófukyn nema Karakúlféð (K) sem var fituhalafé. Af Svarhöfðum og Cheviot fékkst aðeins reynsla sem fyrsta kynslóð blendingsfjár. Af BLblendingunum og Kblendingunum fékkst miklu meiri reynsla. Kblendingana með einkenni sá ég aldrei sjálfur en hafði spurnir af þeim á tveim stöðum. Brynjólfur Sæmundsson sagði mér af afkomendum hrútsins fræga sem Matthías í Kaldrananesi sökkti í Húnaflóa sem þjóðfrægt varð og taldi sig hafa bjargað Vestfjörðum frá mæðiveikinni með því. Brynjólfur sagði að afkomendur hrútsins hefði verið til norður í Kaldrananeshreppi fram yfir 1970 þegar því síðasta hafði verið eytt af þessu fé. Hitt var fé í Öræfum sem þar er líklega enn til og miklu víðar vegna þess að bændur þar sem sögðu mér af þessu sögðu að allir hrútar sem stöðvarnar sóttu þangað í sveit um aldamótin væru afkomendur kinda sem þeir mundu eftir að sýndu einkenni þessarar blöndunar. Því miður nær ættrakning mín á nokkrum bæjum í Öræfum aðeins aftur til um 1940, vantar um hálfan áratug til að fanga Karakúlhrútinn sem góðu heilli olli engum skaða. Bændur í Öræfum voru sennilega þeir einu sem sóttu um undanþágu frá lögum til að setja á blendingsgimbrar. Lögin um innflutning Karakúlfjárins bönnuðu slíkan ásetning blendingslamba nema með undanþágu sem mátti veita til þess samkvæmt þeim. Öræfingar hafa alltaf verið gætnir og löghlýðnir. Heimildarmönnum mínum á þessum tveim stöðum bar alveg saman um það að síðustu einkenni gripa af þessari blöndun hefði mátt sjá hjá fé fæddu um 1960. Ekki spurði ég hver þessi einkenni hefðu verið, gekk út frá því að það hefðu verið einhverjar leifar af fituhalanum fræga. Border Leicester blendingar Mesta reynslan fékkst af BL- blendingunum. Þegar fjárskiptin um miðja síðustu öld voru afstaðin þá voru leifar frá blöndun þess að finna á þrem stöðum á landinu. Hvað flest mun þetta fé og gleggst einkenni sem tilkomið var frá sæðingum sem Hjörtur Eldjárn stóð fyrir þegar fjárskipti misgengust austan og vestan Eyjafjarðar. Þá fann hann tvo afgamla BLhrúta í Svarfaðardal og flutti úr þeim sæði austur yfir fjörðinn í nýkomið fjárskiptafé í Grýtubakkahreppi, Svalbarðsströnd og hluta Öngulsstaðahrepps. Þessu blendingsfé var viðhaldið þarna á nokkrum búum. Halldór Pálsson varaði bændur strax við að þetta fé muni hratt úrættast væri farið að framrækta blendingana skipulagslaust og fækkaði þessu fé hratt af þeim sökum vegna þess að flestir sem áttu þessa gripi leiddust út í slíka ræktun. Aðallega á tveim búum á Svalbarðsströnd, Brautarhóli og Sigluvík var þessu fé viðhaldið með skyldleikarækt þar sem áhersla var lögð á viðhald kyneinkenna. Hjörðin í Sigluvík taldi á sjöunda áratugina nokkra tugi kinda og dreifðust hrútar frá henni aðeins innan varnarhólfsins þar sem nokkrir bændur vildu reyna slíka hrúta til sláturlambaframleiðslu eins og féð var í upphafi flutt inn til. Virðist sem fé af þessari æð hafi nú verið með öllu eytt líklega mest sökum fjárfækkunar á þessu svæði. Önnur æð kom út af hreinkynja hrúti í Holti í Þistilfirði sem var notaður til sláturlambaframleiðslu en bændur í Holti seldu sveitungum sínum hálfblendingshrúta. Þegar Keldhverfingar keyptu fjárskiptafé haustið 1944 í Þistilfirði seldu Holtsbændur og sumir sveitungar þeirra talsvert af BLblendingum. Þetta fé varð þekktast á búum í Austurgarðahverfinu. Þaðan dreifðist þetta fé sem fjárskiptagimbrar í sveitir eins og Svarfaðardal og Gnúpverjahrepp. Þar úrkynjaðist þetta fé og hvarf fljótt. Ég minnist þessara kollóttu stóru kinda með langan dindil sem komu ein eða tvær á marga bæi í Svarfaðardal. Þessar ær skiluðu oft vænum lömbum sem sælst var til að setja á en reyndist alveg vonlaust fé til framræktunar. Það sem ég hins vegar þekki að enn lifir af blöndun frá Skota í Holti er út af Grákolli í Laufási sem var BLblendingur. Um og upp úr 1960 dreifðust margir gráir hrútar undan honum um flestar sveitir milli Skjálfandafljóts og Jökulsár á Fjöllum. Af þessum meiði var eini hrútur á sæðingastöð sem ég tel mig geta rakið með fullri vissu ættir til BLfjár, Lagður 07-847. Þriðja æðin barst með BLhrútum að fjárbúinu á Rangá og dreifðust hrútar þaðan víða austanlands fyrir miðja síðustu öld. Pétur Jónsson á Egilsstöðum mun hafa skyldleikaræktað lengi og viðhaldið þannig manna lengst BLeinkennum í sínu fé. Hrútar frá honum dreifðust einkum í sveitum sunnan til austanlands. Þessa blöndun má enn finna þar á svæðinu. Hvernig héldust dindilseinkennin í íslenska fénu? Þá er komið að dindillengdarein- kennum BLblendinganna. Lentu þeir í óskipulegri framræktun hurfu þessi einkenni nánast alveg eftir fimm til sjö kynslóðir. Í hjörðum þar sem kyneinkennum var viðhaldið með skyldleikarækt hélst lengri dindill miklu lengur og sennilega lengst í fé ættuðu úr eða í hjörð Péturs á Egilsstöðum. Í næsta hluta mun ég snúa mér að umfjöllun höfunda yfirlitsgreinarinnar þar sem þeir fara að fjalla um erfðir horna hjá sauðfé. Jón Viðar Jónmundsson, sjálfstætt starfandi búvísindamaður. Jón Viðar Jónmundsson. Erfðafræði útlitseinkenna sauðfjár – annar hluti: Myndun sauðfárkynja, útlitseinkenni v Núna skulum við fara yfir yfirlitsgreinina sem ég kynnti ytri umgjörð fyrir í síðasta tölublaði. Í byrjun greinarinnar fjalla höfundarnir um að hin ýmsu fjárkyn séu undantekningarlítið aðgreind eftir útliti og þá fyrst og fremst eftir lit, hornum og dindli. Fjögur mismunandi kínversk fjárkyn, tíbeskt fé, Hu fé, Tong fé, Svarta Turfan féð. Myndir / gsejournal.biomedcent.com Fimm ólíkar dindilgerðir séðar frá hlið. Mjó langrófa, stuttrófa, Langur fituhali, stuttur fitudindill og fiturass.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.