Bændablaðið - 26.01.2023, Page 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is
TRAUST FASTEIGNASALA
464 9955 byggd@byggd.iswww.byggd.is
SKIPAGATA 16 ◊ OPIÐ KL. 9-17 FÖS 9-16 ◊ FASTEIGNASALAN BYGGÐ
VÍÐIGERÐI Í EYJAFJARÐARSVEIT
Til sölu er jörðin Víðigerði í Eyjafjarðarsveit í um 16 km aksturs-
fjarlægð frá Akureyri. Á jörðinni stendur stórt einbýlishús á þremur hæð-
um, hlaða, votheysturn, fjós sem var fyrst byggt árið 1967 og viðbygging
frá 2008. Lítið alifuglahús, fjárhús og hlaða við það sem stendur efst
og nyrst af byggingunum. Einnig eru þar tvær véla og verkfærageymslur,
neðst bygginga á jörðinni.
Stærð jarðar er talin vera um 200 ha. og af því ræktað land um 50 hektarar
Jörðinni fylgir um 235 þús l. mjólkurkvóti, nú 45 mjólkandi kýr og 40 aðrir
gripir í uppeldi Tæki sem fylgja skv. tækjalista sem má nálgast með því að
hafa samband á skrifstofu
Kýrnar þar mjólkuðu 8.477 kg/
árskú. Hraunháls sker sig úr að því
leyti að þar er að finna básafjós með
rörmjaltakerfi. Sjötta afurðahæsta
bú ársins 2022 var svo bú Guðrúnar
Marinósdóttur og Gunnars Þórs
Þórissonar á Búrfelli í Svarfaðardal
en það skipaði efsta sæti þessa lista
árin 2020 og 2021. Á nýliðnu ári
skiluðu kýrnar á Búrfelli 8.374
kg/árskú en á búinu er nýlegt
legubásafjós með mjaltaþjóni.
Þessum búum til viðbótar náðu
tíu bú yfir 8.000 kg meðalafurðum
eftir árskú eins og sjá má í
meðfylgjandi töflu. Það er einu
búi færra með yfir 8 þús. kg
meðalafurðir en á árinu 2021.
Fata 2106 hjá Gunnbirni ehf.
mjólkaði allra kúa mest
Nythæsta kýr landsins árið 2022
reyndist vera Fata 2106 á búi
Gunnbjörns ehf. í Gunnbjarnarholti
í Eystrihreppi, undan Sjarma 12090
og móðurfaðir hennar er Þrymur
02042. Fata mjólkaði 14.739 kg
með 3,40% fitu og 3,29% próteini.
Burðartími hennar féll nokkuð að
almanaksárinu en hún bar sínum
fimmta kálfi 29. janúar 2022.
Hæsta dagsnyt Fötu á nýliðnu
ári var 55,6 kg og hún var enn í
yfir 45 kg að áliðnu sumri eða um
mánaðamót ágúst og september. Nú
um áramótin var dagsnytin komin
í 28 kg sem verður að teljast harla
gott, 11 mánuðum eftir burð. Fata
er fædd í júní 2015 og bar fyrsta
kálfi 7. október 2017. Skráðar
æviafurðir hennar voru 56.924 kg
um síðustu áramót og á yfirstandandi
mjólkurskeiði eru afurðir hinar
sömu og ársafurðirnar eða 14.739
kg mjólkur.
Önnur í röðinni á nýliðnu ári var
Stella 797 á Tannstaðabakka við
Hrútafjörð, undan Bessa 494 og því
sonardóttir Myrkva 14007. Stella
mjólkaði 13.651 kg á árinu með
4,04% fitu og 3,19% próteini. Hún
bar sínum öðrum kálfi 22. desember
2021. Hæsta skráða dagsnyt Stellu
var 45,3 kg og um nýliðin áramót
var hún enn í kringum 20 kg. nyt.
Stella fæddist 14. október 2018 og
átti sinn fyrsta kálf 26. nóvember
2020. Skráðar æviafurðir við lok
síðasta árs voru 20.575 kg mjólkur.
Þriðja í röðinni árið 2022 var
kýr númer 1112 í Hrepphólum í
Hrunamannahreppi, undan Roða
11051 og móðurfaðir er Slagur
14082. Þessi kýr mjólkaði 13.578
kg á árinu með 3,49% fitu og 3,30%
próteini en sínum öðrum kálfi
bar hún 20. febrúar 2022. Hæsta
dagsnyt hennar var 51,3 kg og hún
var enn í 37,4 kg dagsnyt um síðustu
áramót. Þetta er ung kýr, fædd á
nýársdag 2019 og fyrri kálf sinn
fram að þessu átti hún 14. febrúar
2021. Skráðar æviafurðir hennar um
síðustu áramót voru 22.660 kg.
Fjórða nythæsta kýrin var Snotra
273 í Villingadal í Saurbæjarhreppi
hinum forna í Eyjafirði. Snotra telst
orðið til heldri kúa, fædd í nóvember
2010 og er því á sínum 13. vetri.
Hún bar fyrsta kálfi 22. janúar 2013
og sinn 9. kálf eignaðist hún 22.
janúar á nýliðnu ári. Nyt hennar á
árinu var 13.569 kg með 4,49% fitu
og 3,23% próteini. Snotra er dóttir
Sigurfara 08041 og móðurfaðir er
Ljúfur 05040. Hún fór hæst í 54,0
kg dagsnyt á árinu 2022 og skráðar
æviafurðir hennar um áramótin
voru 76.661 kg.
Fimmta afurðahæsta kýrin að
þessu sinni var Ófeig 882 á Stóra-
Ármóti í Flóa, dóttir Skalla 11023
en móðurfaðir hennar var Bolti
09021. Ófeig er fædd 17. október
2018 og átti sinn annan kálf þann
16. nóvember 2021. Fyrsta kálfi bar
hún 5. október 2020. Ófeig mjólkaði
13.485 kg á síðasta ári og hæsta
skráða dagsnyt hennar var 47 kg.
Um nýliðin áramót var hún enn í
25,6 kg dagsnyt. Nú um áramótin
hafði Ófeig skilað samtals 24.038
kg mjólkur.
Alls skiluðu 158 kýr afurðum
yfir 11.000 kg og þar af 45 yfir
12.000 kg. Árið 2021 náðu 143 kýr
nyt yfir 11.000 kg.
Tvær kýr í hóp 100 tonna kúa
Á árinu 2022 náðu tvær kýr þeim
sjaldséða árangri hérlendis að
mjólka 100 þús. kg mjólkur á
æviskeiðinu. Sú fyrri er Gullbrá 357
á búi Þorleifs Kristins Karlssonar á
Hóli á Upsaströnd. Gullbrá er fædd
á Hrafnsstöðum í Svarfaðardal
í apríl 2004 en var seld að Hóli
sem smákálfur. Þessi kýr er dóttir
Hvítings 96032 og móðurfaðir er
Klinton 1513611-0921 Búandasonur
95027. Gullbrá bar fyrst í október
2006 og ellefta sinni í júní á nýliðnu
ári. Um áramótin síðustu stóðu
æviafurðir Gullbrár í 102.557 kg.
Hún er ákaflega sterkbyggð og
endingargóð kýr, hlaut á sínum tíma
85 stig í útlitsdómi.
Undir lok ársins eða á u.þ.b.
þriðja í jólum mjólkaði Bleik
995 á búi Péturs Friðrikssonar á
Gautsstöðum á Svalbarðsströnd
sínu 100 þúsundasta kg mjólkur og
hafði um áramótin náð æviafurðum
upp á 100.096 kg, Bleik er fædd 14.
ágúst 2009 undan Grána 1528871-
0890 Hersissyni 97033 og Stássu
Uppgjörssvæðin eru nú 6 í því uppgjöri sem við birtum
Fjöldi Afurðir
Uppgjörssvæði Bú - árslok 2022 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
Vesturland 370132 Stakkhamar 2 Laufey og Þröstur 57,4 8.910
Vestfirðir 460128 Hvammur Ólöf og Valgeir 38,0 7.706
Norðurland vestra 570508 Daufá Efemía og Egill, Daufá 51,2 8.264
Norðurland eystra 650228 Göngustaðir Göngustaðir ehf. 61,6 8.596
Austurland 761412 Núpur Björgvin Rúnar Gunnarsson 113,2 7.637
Suðurland 871077 Dalbær 1 Dalbær 1 ehf. 60,3 8.672
Afurðahæstu kúabúin eftir landshlutum. Uppgjörssvæðin eru nú sex.
Nythæstu kýrnar
Árið 2022 Árs- Prót-
Kýr Faðir afurðir ein Fita Bú
1665491-2106 Fata 12090 Sjarmi 14.739 3,29 3,40 870909 Skáldabúðir 2
0797 Stella 1441011-0494 Bessi 13.651 3,19 4,04 550104 Tannstaðabakki
1112 11051 Roði 13.578 3,30 3,49 871058 Hrepphólar
0273 Snotra 08041 Sigurfari 13.569 3,23 4,49 651150 Ytri-Villingadalur
1639761-0882 Ófeig 11023 Skalli 13.485 3,52 3,58 870650 Stóra-Ármót
1601161-0555 Lúsý 09003 Gustur 13.251 3,36 3,76 770190 Flatey
614 359 13.246 3,37 4,32 761412 Núpur
1665491-2131 Bella 13011 Jörfi 13.212 3,48 3,75 870909 Skáldabúðir 2
0775 Ísey 10081 Úranus 13.204 3,25 3,96 860326 Skíðbakki
2466 Bettý 2164 13.138 3,25 3,63 860718 Lambhagi
0928 Skvísa 818 13.127 3,14 3,26 560112 Brúsastaðir
0912 Valkyrja 0803 Blámi 13.070 3,60 3,73 570930 Efri-Ás
1461571-0481 Harpa 10081 Úranus 13.035 3,09 4,13 570624 Réttarholt
2457 Hríð 15040 Gnýr 13.033 3,36 4,01 860718 Lambhagi
Hér er svipuð tafla og fór í Bændablaðið í tengslum við uppgjörið 2020 og 2021, hérna birtast kýr fyrir ofan 13.000 kg. nyt.
Afurðahæstu kýrnar árið 2022. Hér birtast kýr fyrir ofan 13.000 kg. nyt.
Bú þar sem meðalnyt var yfir 8.000 kg/árskú árið 2022
Fjöldi Afurðir
Bú Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
370132 Stakkhamar 2 Laufey og Þröstur 57,4 8.910
871077 Dalbær 1 Dalbær 1 ehf. 60,3 8.672
650228 Göngustaðir Göngustaðir ehf. 61,6 8.596
870624 Stóru-Reykir Gísli og Jónína 53,9 8.507
370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 26,0 8.477
650221 Búrfell Guðrún og Gunnar 43,7 8.374
570508 Daufá Efemía og Egill, Daufá 51,2 8.264
861037 Syðri-Hamrar 3 Guðjón og Helga 41,1 8.250
871024 Skipholt 3 Sæludalur ehf. 54,7 8.245
860292 Stóra-Mörk 1 Merkurbúið sf 39,9 8.146
871114 Drumboddsstaðir 1 Jórunn og Jón 62,2 8.105
550104 Tannstaðabakki Guðrún og Óskar 49,9 8.075
871022 Kotlaugar Kotlaugar ehf. 61,3 8.044
770190 Flatey Birgir Freyr og Vilborg Rún 182,7 8.016
370103 Snorrastaðir 2 Snorrastaðabúið slf. 47,6 8.007
650720 Stóri-Dunhagi Stóri-Dunhagi ehf 36,5 8.005
Hér eru bú með 8.000 kg. meðalnyt á árskú og þar yfir, eins og í uppgjörsyfirlitinu í Bændablaðinu fyrir árin 2020 og 2021
Búin sem ná 8.000 kg eftir árskú eru 16 en voru 17 árið 2021
Afurðahæstu mjólkurbúin árið 2022. Búin sem náðu 8.000 kg eftir árskú eru sextán en voru sautján árið 2021.
873 Stássadóttur 04024. Bleik hefur
borið tíu sinnum, síðast í janúar 2022
og hún á tal núna í apríl n.k.
Núverandi Íslandsmet í
æviafurðum á Mókolla 230, dóttir
Snarfara 93018, á Kirkjulæk 2 í
Fljótshlíð, 114.635 kg.
Ár breytinga
Árið 2022 hlýtur að teljast ár
breytinga í íslenskri nautgriparækt.
Tekið var í notkun svokallað
erfðamengisúrval en með því er
horfið frá afkvæmaprófunum á
nautum og nautin koma til notkunar
á grunni arfgerðargreininga. Þessi
breyting þýðir að þau koma til fullra
nota strax og þau fara að gefa sæði
u.þ.b. 13-14 mánaða gömul.
Ekki þarf að fjölyrða um
hvílík bylting þetta er og hvað
erfðaframfarir munu aukast
stórkostlega, einkum með styttra
ættliðabili. Áfram er og verður þó
skýrsluhaldið kjölfestan sem allt
ræktunarstarf byggir á.
Með erfðamengisúrvali er reyndin
sú að gott og vel fært skýrsluhald er
mikilvægara en nokkru sinni áður en
tenging arfgerðanna við raunveruleg
gögn er það sem skapar matið
eða spána um hið raunverulega
kynbótagildi gripanna. Þarna liggja
því tækifæri til þess að gera enn
betur, bæta reksturinn og hagræða
svo um munar. Gott skýrsluhald er
grunnur að góðri bústjórn og einn
mælikvarði á gæði skýrslnanna er
t.d. mjólkurnýting.
Með því er átt við það hlutfall
af framleiddri mjólk samkvæmt
skýrslum sem skilar sér sem
innvegin mjólk. Því miður er í
mörgum tilfellum of mikill munur
þarna á og alveg ljóst að allmörg
bú geta bætt sitt skýrsluhald og/eða
rekstur með því að minnka þennan
mun. Þetta á við um bæði þau bú
sem skipa efstu sæti afurðalistanna
og þau sem neðar eru. Munum að
gott skýrsluhald er gulli betra!
Mjólkurframleiðendum öllum, en
ekki síst ábúendum á Stakkhamri
á Snæfellsnesi, Gunnbjarnarholti
í Eystrihreppi, Hóli á Upsaströnd
og Gautsstöðum á Svalbarðsströnd
óskum við til hamingju með
glæsilegan árangur og þökkum gott
samstarf á nýliðnu ári.
Guðrmundur Jóhannsson
og Sigurður Kristjánsson,
starfsmenn RML.
www.bbl.is