Bændablaðið - 09.02.2023, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
FRÉTTIR
Gæði fyrir dýrin og þig!
FB Reykjavík
Korngarðar 12
570 9800
FB Selfoss
Austurvegur 64 a
570 9840
FB Hvolsvöllur
Duftþaksbraut 1
570 9850
www.fodur.is
fodur@fodur.is
Snjórúllur í Kelduhverfi. Ólafur Jónsson, bóndi á Fjöllum í Kelduhverfi, segir
að snjórúllurnar hafi myndast í austanátt og þannig að ein flygsa fauk af
stað og rúllaði upp á sig meiri snjó og myndi þannig þessar rúllur. „Ég hef
ekki séð þetta áður og horfði á rúllurnar rúlla og safna utan á sig og þær eru
milli 18 til 20 sentímetrar að þvermáli. Mér skilst að rúllurnar hafi myndast
um alla sveit, á túnum, við fjallshlíðar og meðfram vegum og því um fleiri
þúsund rúllur að ræða.“ Mynd / Ólafur Jónson
Matvælastofnun:
Myndir ekki í samræmi
við eftirlitsheimsóknir
Síðastliðinn fimmtudag greindi
Dýraverndarsamband Íslands frá
því á vef sínum að því hefði borist
ábending um búfénað á bæ í
Skagafirði sem væri í alvarlegum
vanhöldum.
Matvælastofnun greindi í
kjölfarið frá þremur eftirlits-
heimsóknum á bæinn, í nóvember,
desember og í lok janúar, sem hún
hafi farið í eftir ábendingar.
Í heimsókninni í nóvember, sem
var óboðuð, hafi frávik um hreinleika
nokkurra gripa verið skráð – og
athugasemd gerð við herðakambslá
– en engin önnur frávik í hinum
eftirlitsheimsóknunum.
Í umfjöllun DÍS um málið kom
fram að sambandið hefði myndefni
undir höndum sem sýndi horaðan
búfénað sem stæði skítugur í mykju
upp að hnjám, ábendingin hafi átt
við um ástandið á bænum um viku
eftir að eftirlit Matvælastofnunar
hafi farið fram á bænum í nóvember.
Matvælastofnun segir að þær
myndir sem hún hafi fengið af
meintu ástandi, gefi ekki rétta
mynd af holdafari nautgripanna
eða aðstæðum á bænum á því
tímabili sem eftirlitsheimsóknirnar
ná til. Þær séu því ekki í samræmi
við aðstæður eins og þær birtust
eftirlitsmönnum í þau þrjú skipti
sem stofnuninni bárust ábendingar
um umhirðu og aðbúnað nautgripa
á bænum.
Skoðunaratriði hafi verið metin
í samræmi við skoðunarhandbók
sem gefin hafi verið út varðandi
nautgripaeldi og áfram muni
búfjárhald á bænum sæta
reglubundnu eftirliti.
/smh
Gengi Ístex hefur tekið stakka-
skiptum á undanförnum tveimur
árum og hefur ullarvinnslu-
fyrirtækið skilað góðum hagnaði
á þessu tímabili. Mikil eftirspurn
er eftir prjónabandinu frá því og
annar það ekki eftirspurn – þrátt
fyrir að hafa ráðist í talsverðar
fjárfestingar í tækjabúnaði.
Sauðfjárbændur eiga langstærstan
hluta í fyrirtækinu, en í kjölfar nýlegra
tíðinda af hinu góða gengi létu ýmsir
þeirra í ljós óánægju sína með lágt
afurðaverð fyrir ullina.
Lýstu sumir sauðfjárbændanna
því yfir á Facebook-síðu Bænda-
blaðsins að frekar hendi þeir ullinni
en að hafa fyrir því að koma henni í
þetta lága verð. Gunnar Þórarinsson,
sauðfjárbóndi á Þóroddsstöðum í
Hrútafirði og stjórnarformaður Ístex,
segist vita af þessari óánægju.
Sumir taka því mjög illa
ef ullin er felld
„Í sumum tilfellum eru bændur ekki
að skila frá sér þeirri vöru sem skilar
miklum verðmætum á mörkuðum,“
segir Gunnar. „Ullin þarf að standast
ákveðnar kröfur um hreinleika og
gæði til að flokkast í þá flokka sem
greitt er mest fyrir, það er þá flokka
sem nýttir eru í bandframleiðsluna.
Ef flokkunin frá bændum stenst
ekki þær kröfur þarf að fella hana í
verðminni flokka. Ég veit að þetta
er hluti af vandamálinu, sumir
virðast einfaldlega taka þessu
afskaplega illa ef ullin er felld í mati
í Þvottastöðinni.
Stundum bregðast bændur of
harkalega við þessu og segjast hættir
að flokka ullina og verða þá af þeim
fjármunum sem þeir geta fengið fyrir
ullina með því að laga fráganginn –
stundum bara lítillega.“
Tvær aðalástæður fyrir
því að ull er felld
Gunnar segir ástæðuna fyrir því að
ull sé felld geta verið bæði verið
vegna þess að búið sé að skemma
hana áður en rúið er, en síðan geta
líka vinnubrögðin við flokkunina
verið ófullnægjandi, til dæmis við
að taka gallana í burtu.
„Munurinn á afurðaverði er
mjög mikill, fyrir þá ull sem er
vinnsluhæf fyrir bandvinnsluna og
svo þeirri sem er bara þvegin hér
og svo seld út sem hráull. Þannig
skiptir til dæmis miklu máli hvort
ull sé flokkuð í H1-flokkinn, sem
Ístex greiðir nú 425 krónur á kílóið
og nýtist í bandframleiðslunni hér,
eða ef hún fellur niður í H2, sem
ekki er greitt nema 125 krónur á
kílóið fyrir og er þvegin hér og seld
á mörkuðum erlendis. Það er býsna
mikið verðfall.
Hlutur opinbera stuðningsins
skiptir líka miklu máli í þessu
sambandi og mun fara vaxandi
ef ákvæði um hann í núgildandi
búvörusamningi halda sér í endur-
skoðuninni sem er fram undan.
„En svo eru auðvitað einhverjir
sem eru bara ekki nógu ánægðir
með verðið fyrir ullina sína,“ segir
Gunnar og skilur það sjónarmið.
„En það má líka benda á að í
Noregi er mun lægra ullarverð í boði
en hér – og einnig í Bretlandi en þar
er meðalverð um 70 krónur á kílóið
eins og kom fram í Bændablaðinu
fyrir stuttu.
Samkvæmt núgildandi verðskrá
er Ístex að greiða frá 80 til 600
krónur á kílóið eftir gæðum
ullarinnar. Í dag er afkoma Ístex
góð, en því má ekki gleyma að fyrir
nokkrum árum var staðan í bullandi
mínus,“ segir hann.
Stjórnar að ákveða ullarverð
Gunnar segir að það sé stjórn
Ístex sem ákveði afurðaverð fyrir
ullarinnlegg og vanalega hafi slíkar
ákvarðanir verið teknar á haustin,
áður en ullarvertíðin byrjar.
„Ég held að það sé nokkuð
öruggt að ullarverð til bænda mun
hækka talsvert á næstu misserum
komi ekkert upp á sem hafi veruleg
neikvæð áhrif á rekstur Ístex. Gangi
rekstur Ístex vel áfram mun það skila
bændum hærra verði fyrir ullina og
að því er svo sannarlega stefnt,“
segir hann.
Ullarinnlegg til Ístex hefur dregist
saman um fjórðung á síðustu fimm
árum, sem að mestu má rekja til
fækkunar sauðfjár í landinu. Á sama
tíma hefur sala aukist um 50 prósent
og er ætlunin að bregðast við þeirri
þróun með auknum fjárfestingum
í tækjabúnaði, til að mynda í nýrri
spunavél frá Ítalíu og kembilínu
sem getur aukið framleiðsluafköstin
um þriðjung. /smh
Ístex:
Góð afkoma en
ullarverðið gagnrýnt
– Telur öruggt að ullarverð til bænda muni hækka talsvert á næstu misserum
Samkvæmt núgildandi verðskrá er Ístex að greiða frá 80 til 600 krónur á kílóið eftir gæðum ullarinnar. Mynd / smh
Gunnar Þórarinsson, sauðfjárbóndi
á Þóroddsstöðum í Hrútafirði og
stjórnarformaður Ístex.
Ull þarf að standast ákveðnar kröfur til að flokkast í verðmætustu flokkana.
Mynd /ghp
Leiðrétting
Vegna mistaka í vinnslu var rangur texti settur hjá töflu í
greininni „Niðurstöður skýrsluhaldsársins hjá mjólkurfram-
leiðendum 2022” sem birtist í síðasta tölublaði Bændablaðsins.
Prentað var „Afurðahæstu mjólkurbúin árið 2022”
en rétt er að þar átti að standa „Afurðahæstu búin 2022”.
Beðist er velvirðingar á mistökunum. /ghp