Bændablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 2

Bændablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 FRÉTTIR Gæði fyrir dýrin og þig! FB Reykjavík Korngarðar 12 570 9800 FB Selfoss Austurvegur 64 a 570 9840 FB Hvolsvöllur Duftþaksbraut 1 570 9850 www.fodur.is fodur@fodur.is Snjórúllur í Kelduhverfi. Ólafur Jónsson, bóndi á Fjöllum í Kelduhverfi, segir að snjórúllurnar hafi myndast í austanátt og þannig að ein flygsa fauk af stað og rúllaði upp á sig meiri snjó og myndi þannig þessar rúllur. „Ég hef ekki séð þetta áður og horfði á rúllurnar rúlla og safna utan á sig og þær eru milli 18 til 20 sentímetrar að þvermáli. Mér skilst að rúllurnar hafi myndast um alla sveit, á túnum, við fjallshlíðar og meðfram vegum og því um fleiri þúsund rúllur að ræða.“ Mynd / Ólafur Jónson Matvælastofnun: Myndir ekki í samræmi við eftirlitsheimsóknir Síðastliðinn fimmtudag greindi Dýraverndarsamband Íslands frá því á vef sínum að því hefði borist ábending um búfénað á bæ í Skagafirði sem væri í alvarlegum vanhöldum. Matvælastofnun greindi í kjölfarið frá þremur eftirlits- heimsóknum á bæinn, í nóvember, desember og í lok janúar, sem hún hafi farið í eftir ábendingar. Í heimsókninni í nóvember, sem var óboðuð, hafi frávik um hreinleika nokkurra gripa verið skráð – og athugasemd gerð við herðakambslá – en engin önnur frávik í hinum eftirlitsheimsóknunum. Í umfjöllun DÍS um málið kom fram að sambandið hefði myndefni undir höndum sem sýndi horaðan búfénað sem stæði skítugur í mykju upp að hnjám, ábendingin hafi átt við um ástandið á bænum um viku eftir að eftirlit Matvælastofnunar hafi farið fram á bænum í nóvember. Matvælastofnun segir að þær myndir sem hún hafi fengið af meintu ástandi, gefi ekki rétta mynd af holdafari nautgripanna eða aðstæðum á bænum á því tímabili sem eftirlitsheimsóknirnar ná til. Þær séu því ekki í samræmi við aðstæður eins og þær birtust eftirlitsmönnum í þau þrjú skipti sem stofnuninni bárust ábendingar um umhirðu og aðbúnað nautgripa á bænum. Skoðunaratriði hafi verið metin í samræmi við skoðunarhandbók sem gefin hafi verið út varðandi nautgripaeldi og áfram muni búfjárhald á bænum sæta reglubundnu eftirliti. /smh Gengi Ístex hefur tekið stakka- skiptum á undanförnum tveimur árum og hefur ullarvinnslu- fyrirtækið skilað góðum hagnaði á þessu tímabili. Mikil eftirspurn er eftir prjónabandinu frá því og annar það ekki eftirspurn – þrátt fyrir að hafa ráðist í talsverðar fjárfestingar í tækjabúnaði. Sauðfjárbændur eiga langstærstan hluta í fyrirtækinu, en í kjölfar nýlegra tíðinda af hinu góða gengi létu ýmsir þeirra í ljós óánægju sína með lágt afurðaverð fyrir ullina. Lýstu sumir sauðfjárbændanna því yfir á Facebook-síðu Bænda- blaðsins að frekar hendi þeir ullinni en að hafa fyrir því að koma henni í þetta lága verð. Gunnar Þórarinsson, sauðfjárbóndi á Þóroddsstöðum í Hrútafirði og stjórnarformaður Ístex, segist vita af þessari óánægju. Sumir taka því mjög illa ef ullin er felld „Í sumum tilfellum eru bændur ekki að skila frá sér þeirri vöru sem skilar miklum verðmætum á mörkuðum,“ segir Gunnar. „Ullin þarf að standast ákveðnar kröfur um hreinleika og gæði til að flokkast í þá flokka sem greitt er mest fyrir, það er þá flokka sem nýttir eru í bandframleiðsluna. Ef flokkunin frá bændum stenst ekki þær kröfur þarf að fella hana í verðminni flokka. Ég veit að þetta er hluti af vandamálinu, sumir virðast einfaldlega taka þessu afskaplega illa ef ullin er felld í mati í Þvottastöðinni. Stundum bregðast bændur of harkalega við þessu og segjast hættir að flokka ullina og verða þá af þeim fjármunum sem þeir geta fengið fyrir ullina með því að laga fráganginn – stundum bara lítillega.“ Tvær aðalástæður fyrir því að ull er felld Gunnar segir ástæðuna fyrir því að ull sé felld geta verið bæði verið vegna þess að búið sé að skemma hana áður en rúið er, en síðan geta líka vinnubrögðin við flokkunina verið ófullnægjandi, til dæmis við að taka gallana í burtu. „Munurinn á afurðaverði er mjög mikill, fyrir þá ull sem er vinnsluhæf fyrir bandvinnsluna og svo þeirri sem er bara þvegin hér og svo seld út sem hráull. Þannig skiptir til dæmis miklu máli hvort ull sé flokkuð í H1-flokkinn, sem Ístex greiðir nú 425 krónur á kílóið og nýtist í bandframleiðslunni hér, eða ef hún fellur niður í H2, sem ekki er greitt nema 125 krónur á kílóið fyrir og er þvegin hér og seld á mörkuðum erlendis. Það er býsna mikið verðfall. Hlutur opinbera stuðningsins skiptir líka miklu máli í þessu sambandi og mun fara vaxandi ef ákvæði um hann í núgildandi búvörusamningi halda sér í endur- skoðuninni sem er fram undan. „En svo eru auðvitað einhverjir sem eru bara ekki nógu ánægðir með verðið fyrir ullina sína,“ segir Gunnar og skilur það sjónarmið. „En það má líka benda á að í Noregi er mun lægra ullarverð í boði en hér – og einnig í Bretlandi en þar er meðalverð um 70 krónur á kílóið eins og kom fram í Bændablaðinu fyrir stuttu. Samkvæmt núgildandi verðskrá er Ístex að greiða frá 80 til 600 krónur á kílóið eftir gæðum ullarinnar. Í dag er afkoma Ístex góð, en því má ekki gleyma að fyrir nokkrum árum var staðan í bullandi mínus,“ segir hann. Stjórnar að ákveða ullarverð Gunnar segir að það sé stjórn Ístex sem ákveði afurðaverð fyrir ullarinnlegg og vanalega hafi slíkar ákvarðanir verið teknar á haustin, áður en ullarvertíðin byrjar. „Ég held að það sé nokkuð öruggt að ullarverð til bænda mun hækka talsvert á næstu misserum komi ekkert upp á sem hafi veruleg neikvæð áhrif á rekstur Ístex. Gangi rekstur Ístex vel áfram mun það skila bændum hærra verði fyrir ullina og að því er svo sannarlega stefnt,“ segir hann. Ullarinnlegg til Ístex hefur dregist saman um fjórðung á síðustu fimm árum, sem að mestu má rekja til fækkunar sauðfjár í landinu. Á sama tíma hefur sala aukist um 50 prósent og er ætlunin að bregðast við þeirri þróun með auknum fjárfestingum í tækjabúnaði, til að mynda í nýrri spunavél frá Ítalíu og kembilínu sem getur aukið framleiðsluafköstin um þriðjung. /smh Ístex: Góð afkoma en ullarverðið gagnrýnt – Telur öruggt að ullarverð til bænda muni hækka talsvert á næstu misserum Samkvæmt núgildandi verðskrá er Ístex að greiða frá 80 til 600 krónur á kílóið eftir gæðum ullarinnar. Mynd / smh Gunnar Þórarinsson, sauðfjárbóndi á Þóroddsstöðum í Hrútafirði og stjórnarformaður Ístex. Ull þarf að standast ákveðnar kröfur til að flokkast í verðmætustu flokkana. Mynd /ghp Leiðrétting Vegna mistaka í vinnslu var rangur texti settur hjá töflu í greininni „Niðurstöður skýrsluhaldsársins hjá mjólkurfram- leiðendum 2022” sem birtist í síðasta tölublaði Bændablaðsins. Prentað var „Afurðahæstu mjólkurbúin árið 2022” en rétt er að þar átti að standa „Afurðahæstu búin 2022”. Beðist er velvirðingar á mistökunum. /ghp
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.