Bændablaðið - 09.02.2023, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
MENNING
Halaleikhópurinn er leik-
hópur fatlaðra og ófatlaðra
sem hafa leikið og stýrt leik-
félaginu jöfnum höndum
í nú þrjátíu ár.
Halaleikhópurinn, sem
heldur um þessar mundir, upp
á 30 ára afmæli sitt, frumsýnir
af því tilefni verkið Obbosí
– eldgos, sem er sérstaklega
skrifað fyrir hópinn. Alls níu
leikarar stíga á svið í verkinu
sem skrifað er og leikstýrt af
Sigrúnu Valbergsdóttur.
Við fáum að kynnast
lífrænt vottaða sveitabænum
Snotrustöðum. Þar er boðið
upp á bændagistingu og ýmsa
óvenjulega afþreyingu – en
sögusviðið gefur til kynna
glaum og glens með tengingu
við hið yfirskilvitlega.
Heimasætan hún Fjóla fær
þá snjöllu hugmynd að glæða
ferðamannastrauminn með
því að auglýsa í Bændablaðinu
og býður tilvonandi gestum
upp á góðan afslátt af gistingu
og mat ef þeir á móti veita
þjónustu sína á einhvern hátt.
Bærinn stendur á virku
eldgosabelti og um sama leyti
og allt fyllist af gestum fer að
gjósa í nágrenninu auk þess
sem þrjár kýr bera á sama
sólarhringnum.
Fjóla á fullt í fangi með
þetta allt saman og einn
misskilningur rekur annan í
sambandi við dvöl gestanna
á bænum. Til viðbótar ráða
almannavarnir og náttúru-
vársérfræðingar auðvitað ekki
við eitt né neitt.
Þessi ótrúlega atburðarás
á sér öll á einn eða annan hátt
fyrirmynd í raunveruleikanum
og sjón er sögu ríkari.
Frumsýning er 10. febrúar,
miða er hægt að nálgast í síma
897 5007 eða á netfanginu
midi@halaleikhopurinn.is
og miðaverð er 3.000 kr.
Sýnt er í Halanum, leikhúsi
Halaleikhússins í Sjálfs-
bjargarhúsinu að Hátúni 12.
Gengið er inn að norðan-
verðu nr. 3 og sýnt er um
helgar, laugardaga og sunnu-
daga, kl. 17. /SP
Halaleikhópurinn:
Obbosí – eldgos
Grétar Bjarnason
almannavarnamaður.
Hugfangna parið leika þau Sigurbjörg Halldórsdóttir og Jóhann
G. Thorarensen. Myndir / Aðsendar
Freyvangsleikhúsið:
Fólkið í blokkinni
Meistarar Freyvangsleikhússins
hafa nú tekið sér fyrir hendur
gamanleikinn Fólkið í blokkinni
eftir hinn sívinsæla Ólaf Hauk
Símonarson.
Fjallar verkið um spreng-
hlægilegar, þó raunsannar sögur
sem allir geta ímyndað sér sem
einhvern tíma hafa verið búsettir í
blokk. Ákveða íbúar blokkarinnar
að setja upp söngleik þar sem þau
sjálf eru í aðalhlutverkum og má
nefna Hárfinn hárfína, forsvarsmann
hljómsveitarinnar Sóna, sem æfir stíft í
kjallaranum á meðan Robbi húsvörður
reynir ólmur að koma í veg fyrir að
söngleikurinn komist á koppinn og
hefur almennt allt á hornum sér.
Skarpar og skemmtilegar mann-
lýsingar eru í hávegum hafðar og
atburðarásin eftir því kostuleg. Formaður
Freyvangsleikhússins, hún Jósý, Jóhanna
Sigurbjörg Ingólfsdóttir, segir okkur að mikið
stuð sé á sviðinu, hljómsveit og almennur
hressleiki.
Frumsýningin verður þann 24. febrúar
í Freyvangi og miðasala hjá tix.is og í
síma 857-5598. Sýnt verður í átta skipti,
klukkan 20.00, föstudaga og laugardaga frá
frumsýningu þar til 18. mars næstkomandi
og miðaverð er kr. 3500. /SP
Gaman verður að sjá Fólkið í blokkinni á sviði Freyvangs. Þarna má sjá þau Karen Ósk
Kristjánsdóttur, Svein Brimar Jónsson, Aðalbjörgu Þórólfsdóttur, Ingólf Þórsson, Helga
Þórsson og svo sést glitta í hljómsveitarmeðlimi alla: Atla Rúnarsson, Bergsvein Þórsson,
Björn Hreinsson og Bjarma Gunnarsson.
Á myndinni að neðanverðu eru þau í hlutverkum sínum, Robbi húsvörður: Jón Friðrik
Benónýsson, Valerí: Aðalbjörg Þórólfsdóttir auk Helga Þórssonar sem Hárfinns hárfína.
Leikdeild Eflingar Breiðumýri sýnir verkið Gauragang eftir
Ólaf Hauk Símonarson á morgun, 10. febrúar. Sýnt verður á
Breiðumýri að venju, og áætlaðar eru um tíu sýningar. Skemmtilegt er
að segja frá því að í stað hefðbundins leiksviðs verður uppsetningin á
nýstárlegan hátt, sitja gestir í hring,
við borð – kvenfélagið býður upp á
vöfflukaffi – en leikendur láta ljós sitt
skína inni í hringnum. Frumsýningin
er á föstudaginn kl. 20.30 og önnur
sýning laugardag kl. 16.00. Hægt
er að panta miða í síma 618-0847
eða í netfang umfefling@gmail.com.
Á döfinni ...
Opið er fyrir umsóknir í fjölbreytt
sumarstörf í Vatnajökulsþjóðgarði
Hvernig hljómar
sumar á fjöllum?