Bændablaðið - 09.02.2023, Page 26

Bændablaðið - 09.02.2023, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Fljótsdalshreppur hefur tvö undanfarin ár unnið að uppgerð á gömlum útihýsum og einum gangnamannakofa. Að sögn sveitarstjóra stendur til að halda verkefninu áfram og gera upp fleiri hús á næstu árum. Einnig er staðið að söfnun örnefna og upplýsinga um búsetuminjar í sveitarfélaginu. Helgi Gíslason, sveitarstjóri Fljótsdalshrepps, segir að verkefnið eigi upptök sín í erindum Helga Hallgrímssonar náttúrufræðings til sveitarstjórnar þar sem hann brýnir Fljótsdælinga hressilega til verka við endurbætur á gömlum hlöðnum húsum sem til eru víðs vegar í dalnum. Reykhús, hlaða og gangnamannakofi „Skemmst er frá því að segja að fyrir hvatningu Helga hefur verið ráðist í nokkur endurbótaverkefni á hlöðnum húsum síðustu árin og flest á síðasta ári og var að mestu lokið við að gera upp gangnamannakofann í Fjallaskarði. Í Vallholti var ráðist í að gera upp reykhúsið á Hrólfsgerði og er það komið í notkun. Á Langhúsum var ráðist í endurbætur á kúa- hlöðunni. Hrakstrandarkofi hefur verið gerður upp. Þá er í undirbúningi endurgerð á Hálskofa undir Fellum og verulegt framfaraskref var tekið þegar ráðist var í að hlaða upp glæsilega umgjörð um sögustaði Valþjófsstaðar. Áfram verður unnið að því að gera upp gamla íbúðarhúsið á Hrafn- kelsstöðum, húsið á Þorgerðar- stöðum og þess gætt að viðhalda Melarétt eins og kostur er,“ segir Helgi og bætir við að af nægu sé að taka í þessum málum og að vonandi hafi Fljótsdælingar þolgæði til að halda þessum verkum áfram. Örnefni og búsetuminjar „Af öðrum málum þessu tengt langar mig að nefna að ráðist hefur verið í töluverða vinnu við að færa örnefni á verulegum hluta jarða Fljótsdals yfir á kortagrunn Landmælinga. Það verkefni er langt komið. Fljótsdalshreppur á einnig sam- vinnu við Gunnarsstofnun, Rann- sóknasetur HÍ á Austurlandi, Minja- stofnun Íslands og Sagna brunn ehf. og Fljótsdalshrepp um verkefni tengdu búsetuminjum í Fljótsdal en það er styrkt af Fljótsdalshreppi, Fornminjasjóði og Nýsköpunarsjóði. Verkefnið er hafið og hefur töluverðu af upplýsingum og gögnum verið safnað, svo sem drónamyndum, ljósmyndum, hnitsetningum, upp- tökum af heimamönnum, örnefna- tengingum og fleiru. Það hefur verið kynnt nokkuð víða og nú síðast í desember í sendiráðum Norðurlandanna í Berlín þar sem um 200 manns mættu,“ segir Helgi. /VH LÍF&STARF YLEININGAR Léttar stálklæddar samlokueiningar sem fást með þéttifrauðs- eða steinullarkjarna. Auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Henta vel fyrir eldri gripahús þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum. Hafðu samband: bondi@byko.is Fljótsdalshreppur: Uppgerð húsa og söfnun örnefna Reykkofinn í Hrólfsgerði 2022. Í Hrólfsgerði var haldið hleðslu- námskeið og var leiðbeinandi Þorvaldur P. Hjarðar. Reykkofinn var gerður upp og er þessi mynd af honum og hópnum sem tók þátt í náminu. Á Hrólfsstöðum bíða mörg verkefni og því veitir ekki af að fjölga þeim sem kunna til verka. Mynd / Ásdís Helga Bjarnadóttir Gangnamannakofinn í Fjallaskarði 2022. Fjölmargir komu að endurgerð gangnamannakofans í Fjallaskarði, hleðslumeistari, smiður, vélamenn og aðrir dugmiklir verkmenn Fljótsdælinga. Mynd / Helgi Gíslason Kúahlaðan á Langhúsum 2022. Baldur Pálsson er hleðslumaður á Langhúsum og stjórnar því verkefni. Með honum hefur verið Bjarki í Klúku. Veggir eru að mestu komnir í gott horf og þak bíður sumars. Hið fljótsdælska handverksfélag Droplaug heldur utan um verkefnið. Mynd / Ásdís Helga Bjarnadóttir Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Meðalrétt 2022. Réttin er ein helsta rétt Austfirðinga. Mynd / Jóhann F. Þórhallsson.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.