Bændablaðið - 09.02.2023, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Fljótsdalshreppur hefur tvö
undanfarin ár unnið að uppgerð
á gömlum útihýsum og einum
gangnamannakofa.
Að sögn sveitarstjóra stendur
til að halda verkefninu áfram og
gera upp fleiri hús á næstu árum.
Einnig er staðið að söfnun örnefna
og upplýsinga um búsetuminjar í
sveitarfélaginu.
Helgi Gíslason, sveitarstjóri
Fljótsdalshrepps, segir að verkefnið
eigi upptök sín í erindum Helga
Hallgrímssonar náttúrufræðings
til sveitarstjórnar þar sem hann
brýnir Fljótsdælinga hressilega til
verka við endurbætur á gömlum
hlöðnum húsum sem til eru víðs
vegar í dalnum.
Reykhús, hlaða og
gangnamannakofi
„Skemmst er frá því að segja að
fyrir hvatningu Helga hefur verið
ráðist í nokkur endurbótaverkefni á
hlöðnum húsum síðustu árin og flest
á síðasta ári og var að mestu lokið
við að gera upp gangnamannakofann
í Fjallaskarði.
Í Vallholti var ráðist í að gera
upp reykhúsið á Hrólfsgerði og er
það komið í notkun. Á Langhúsum
var ráðist í endurbætur á kúa-
hlöðunni. Hrakstrandarkofi hefur
verið gerður upp. Þá er í undirbúningi
endurgerð á Hálskofa undir Fellum
og verulegt framfaraskref var tekið
þegar ráðist var í að hlaða upp
glæsilega umgjörð um sögustaði
Valþjófsstaðar.
Áfram verður unnið að því að gera
upp gamla íbúðarhúsið á Hrafn-
kelsstöðum, húsið á Þorgerðar-
stöðum og þess gætt að viðhalda
Melarétt eins og kostur er,“ segir
Helgi og bætir við að af nægu sé að
taka í þessum málum og að vonandi
hafi Fljótsdælingar þolgæði til að
halda þessum verkum áfram.
Örnefni og búsetuminjar
„Af öðrum málum þessu tengt langar
mig að nefna að ráðist hefur verið í
töluverða vinnu við að færa örnefni
á verulegum hluta jarða Fljótsdals
yfir á kortagrunn Landmælinga. Það
verkefni er langt komið.
Fljótsdalshreppur á einnig sam-
vinnu við Gunnarsstofnun, Rann-
sóknasetur HÍ á Austurlandi, Minja-
stofnun Íslands og Sagna brunn ehf.
og Fljótsdalshrepp um verkefni
tengdu búsetuminjum í Fljótsdal
en það er styrkt af Fljótsdalshreppi,
Fornminjasjóði og Nýsköpunarsjóði.
Verkefnið er hafið og hefur
töluverðu af upplýsingum og gögnum
verið safnað, svo sem drónamyndum,
ljósmyndum, hnitsetningum, upp-
tökum af heimamönnum, örnefna-
tengingum og fleiru. Það hefur
verið kynnt nokkuð víða og nú
síðast í desember í sendiráðum
Norðurlandanna í Berlín þar sem um
200 manns mættu,“ segir Helgi. /VH
LÍF&STARF
YLEININGAR
Léttar stálklæddar samlokueiningar sem fást með þéttifrauðs- eða steinullarkjarna.
Auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi
og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Henta vel fyrir eldri gripahús
þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
Fljótsdalshreppur:
Uppgerð húsa og söfnun örnefna
Reykkofinn í Hrólfsgerði 2022. Í Hrólfsgerði var haldið hleðslu-
námskeið og var leiðbeinandi Þorvaldur P. Hjarðar. Reykkofinn var
gerður upp og er þessi mynd af honum og hópnum sem tók þátt
í náminu. Á Hrólfsstöðum bíða mörg verkefni og því veitir ekki af
að fjölga þeim sem kunna til verka. Mynd / Ásdís Helga Bjarnadóttir
Gangnamannakofinn í Fjallaskarði 2022. Fjölmargir komu að endurgerð gangnamannakofans í Fjallaskarði, hleðslumeistari,
smiður, vélamenn og aðrir dugmiklir verkmenn Fljótsdælinga. Mynd / Helgi Gíslason
Kúahlaðan á Langhúsum 2022. Baldur Pálsson er hleðslumaður á Langhúsum og stjórnar því verkefni. Með
honum hefur verið Bjarki í Klúku. Veggir eru að mestu komnir í gott horf og þak bíður sumars. Hið fljótsdælska
handverksfélag Droplaug heldur utan um verkefnið. Mynd / Ásdís Helga Bjarnadóttir
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Meðalrétt 2022. Réttin er ein helsta rétt Austfirðinga. Mynd / Jóhann F. Þórhallsson.