Bændablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
HILLTIP
VETRARBÚNAÐUR
____________________
SNJÓTENNUR, FJÖLPLÓGAR,
SALT - OG SANDDREIFARAR
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Yfir tíð þorra hefur hérlendis
jafnan verið fremur kalt. Á öldum
ljósvakans birtust nýverið fregnir
þess efnis að janúarmánuður nú
árið 2023 hefði mælst sá kaldasti
þessarar aldar.
Að minnsta kosti ef miðað
er við Suðurland, við Faxaflóa,
Breiðafjörð, á Ströndum og
Norðurlandi vestra. Nýverið hefur
svo snjókoma eða slydda með hita
í kringum frostmark glatt okkur
Íslendingana sem þykjumst öllu vanir
í veðrabrigðunum.
Samkvæmt gömlum mánaðar-
heitum heitir tímabilið frá þrettándu
viku ársins þorri. Nafn mánaðarins
þorra er tiltölulega óskilgreint, en
einhverjir vilja meina að orðið sé
skylt lýsingarorðinu þurr eða að
þverra og ætti þá við að hart væri í
búi. Kemur fram í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar að þar sem bóndadag ber
upp á fyrsta dag þorra ...
„... skyldu karlmenn fara fyrstir
á fætur allra manna á bænum þann
morgun. Áttu þeir að fara ofan
og á skyrtunni einni, vera bæði
berlæraðir og berfættir, en fara í
aðra skálmina og láta hina lafa
og draga hana á eftir sér á öðrum
fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp
bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti
í kringum bæinn, draga eftir sér
brókina á hinum og bjóða þorra
velkomin í garð eða til húsa. Síðan
áttu þeir að halda öðrum bændum
úr byggðarlaginu veislu fyrsta
þorradag; þetta er að fagna þorra.“
Berrassaðir eður ei
Ekki er víst hve margir fara eftir
þessum gamla íslenska sið; að
vakna fyrir allar aldir og hoppa á
öðrum fæti í kringum heimili sitt,
hálfberrassaðir, dragandi brókina á
eftir sér og gera sér svo dagamun
í kjölfarið. En þeir eru ef til vill
einhverjir sem eiga þetta eftir.
Nú í ár hófst þorri 20. janúar og
stendur til 19. febrúar er góa hefst
á sunnudegi átjándu viku vetrar –
en sá dagur þekkist undir nafninu
konudagur. Þann dag, (a.m.k. síðan
á sjötta áratug 20. aldar) er siður að
færa kvenfólki blóm. Síðasti dagur
góu nefnist góuþræll og samkvæmt
íslenska almanaksvefnum þykir hann
einn versti óhappadagur ársins.
Síðasti dagur þorra hefur hins
vegar þekkst undir nafninu þorraþræll
en ekki fylgir sögunni hvort sá sé
dagur óhappa eða ekki
Samkvæmt vísindavefnum áttu
annars húsfreyjur að fagna góu á
svipaðan hátt og bændur fögnuðu
þorra. Þó ekki með jafnmiklum
óhemjugangi og ekki er talað um að
hoppa um buxnalausar heldur áttu
þær að fara fyrstar allra á fætur, ganga
út fáklæddar fyrsta morgun í góu og
bjóða hana í garð með þessari vísu:
Velkomin sértu, góa mín,
og gakktu í bæinn;
vertu ekki úti í vindinum,
vorlangan daginn.
Njótum þess að vera til
Nokkrar eru þær vísurnar og kvæðin
sem hafa verið sett saman á þessum
árstíma og þekktastur er sjálfsagt
Þorraþrællinn sem saminn var af
Kristjáni Jónssyni fjallaskáldi árið
1866. Það er kannski ekki að undra
að andinn færist yfir menn í ógöngum
vetrarhríða og frá Hvammstanga
kemur ljóðskáldið Einar Georg með
kvæði sitt um þorrann.
Ósköp er þorraveðrið vont á köflum
vindurinn pípar eins og þokulúður.
Umhverfið er þakið ís og sköflum
í öllum húsum skjálfa flestar rúður.
Best mun okkur þá að hírast heima
og hugsa um tilverunnar rökin sönnu.
Illu veðri og trega gömlum gleyma
með gullinn bjór í risastórri könnu.
Sjálfsagt hefur fátt jafn mikil áhrif
á líf mannanna og lundarfar og veðrið.
Við gerum þó gott úr því og njótum
þess að vera inni við, sitja við skriftir,
kveikja á kertum og lesa bækur
á þessum árstíma. Þorramaturinn
fer einnig vel í maga sumra – sá
hefðbundni íslenski matur er rekja
má til miðsvetrarmóta á fyrri hluta
20. aldar, þegar auglýst voru hlaðborð
vel þekktra rétta hefðbundins
sveitamatar. Sem dæmi um slíkt má
nefna sviðakjamma og lundabagga,
bringukolla og blóðmör, hrútspunga
og selshreifa, magál og ekki má
gleyma hákarlinum sem einmitt var
þekktur fyrir að stilla magakveisur á
mörgum heimilum hér á árum áður.
Það er því án efa hægt að láta sér
líða vel á þessum harðangurstímum
og brosa út í óveðrið. /SP
Þurr skyldi þorri, þeysöm góa:
Þorraþræll
Einar Georg gæðir sér á hákarlsbita
í tilefni þorrans. Mynd / SP
Hönnuð eftir þínu höfði!
Örfáar SA-R haugsugur lausar til afgreiðslu næsta vor.
Gæðahaugsugur í stærðum allt að 14.000 lítrum.
Mikið úrval aukabúnaðar í boði.
Fyrir nánari upplýsingar hringið í síma 480 5600 eða sendið
póst á netfangið landstolpi@landstolpi.is
Jöfn dreifing I Mikið flot I Fjaðrandi beisli