Bændablaðið - 09.02.2023, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
LÍF&STARF
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum
Fornleifastofnun hefur sent erindi
á Rangárþing ytra og Rangárþing
eystra þar sem leitað er eftir
samstarfi um miðlun upplýsinga
um fornleifar á sögusviði Njálu.
Kristborg Þórsdóttir hjá Forn-
leifastofnun fer fyrir verkefninu en
hún hefur unnið við fornleifaskráningu
í sveitarfélögunum á nánast hverju
sumri í fimmtán ár og er því farin að
þekkja aðalsögusvið Njálu mjög vel.
„Þar sem mikill áhugi er á Njáls-
sögu, ekki síst heima í héraði, fannst
mér það liggja beint við að nýta þann
stóra gagnabanka um fornleifar á
svæðinu sem við höfum safnað í
um árabil til þess að leiða fólk um
sögusvið Njálu og slá þannig tvær
flugur í einu höggi með því að
miðla upplýsingum um fornleifar á
sögusviðinu,“ segir Kristborg.
Menningararfur sem mótað
hefur kynslóðir
Verkefnið snýst um að búa til
kynningarefni um fornminjar á
völdum sögustöðum í Njálu byggt á
fornleifaskráningu, sem þegar hefur
verið unnin fyrir sveitarfélögin á
svæðinu og úr gagnagrunninum
Sagamap.is. Ekki er verið að ýja að
því að minjarnar tengist Njálssögu að
öðru leyti en því að þær eru á stöðum
sem koma við sögu í verkinu.
„Á hverjum stað verður tekið fram
hvaða persónur og eða atburðir í
sögunni tengjast staðnum. Markmiðið
er að samtvinna menningararf sem
fólginn er í ritverkum fyrri alda og
í jarðföstum minjum sem saman
mynda stórbrotið menningarlandslag
og hefur haft áhrif á og mótað
ótalmargar kynslóðir Íslendinga,“
segir Kristborg aðspurð og tilgang
og markmið verkefnisins.
Verkefni á frumstigi
Að sögn Kristborgar er fyrstu
umferð fornleifaskráningar lokið í
Rangárþingi ytra og er komin vel
á veg í Rangárþingi eystra. Í þeirri
vinnu hefur margt forvitnilegt komið
í ljós og mikill fjöldi merkra minja er
á svæðunum báðum.
„Ég á ekki von á því að
margar nýjar minjar komi í ljós í
þessu tiltekna verkefni en það er
sannarlega mögulegt. Verkefnið er
á frumstigi og á vonandi eftir að
þróast áfram. Sá verkhluti, sem er í
undirbúningi og sótt hefur verið um
styrki fyrir, er fremur smár í sniðum
og ekki kostnaðarsamur.
Ef styrkur fæst verður vonandi
hægt að nota afraksturinn til þess
að þróa verkefnið áfram og hugsa
stærra. Ekki hefur verið úthlutað
úr sjóðnum sem sótt hefur verið
um beint fjármagn til en þegar
hefur verið komið á samstarfi milli
Fornleifastofnunar Íslands við
sagamap.is, sveitarfélögin Rangár-
þing ytra og Rangárþing eystra og
Ferðafélag Rangæinga.
Þannig að viðtökurnar hafa verið
góðar og greinilegt að mikill áhugi
er á verkefninu,“ segir Kristborg.
Raunhæft sé að áætla þrjú ár að
lágmarki í stórt verkefni sem fæli í
sér öflun gagna, ritun texta, hönnun
og miðlun.
/ MHH
Bændageð Bændasamtakanna:
Fræðslumyndbönd
frumsýnd á búgreinaþingi
Kvikmyndatökum Bænda-
samtaka Íslands (BÍ) vegna
framleiðslu á fræðslu mynd-
böndum um andlega heilsu bænda
er nú lokið og er stefnt að því að
frumsýna þau á búgreinaþingi
sem haldið verður 22.-–23. febrúar
næstkomandi á Hótel Natura
Reykjavík.
Framleiðsla myndbandanna
er liður í átaki BÍ, sem heitir
Bændageð, þar sem leitast verður
við að vinna að forvörnum gagnvart
þessu heilsufarslega vandamáli
margra bænda. Ætlunin er að
aðstoða bændur og aðstandendur við
að læra hvernig koma megi auga á
vísbendingar um hrakandi andlega
heilsu þeirra.
Talað við bændur,
aðstandendur og sálfræðing
Átaksverkefnið hófst síðastliðið
haust og er staða þess þannig nú,
að sögn Stellu Bjarkar Helgadóttur,
verkefnastjóra hjá BÍ, að búið er
að taka upp myndbönd sem verða
síðar aðgengileg félagsmönnum
BÍ. „Myndböndin byggja á
jafningjafræðslu. Við tökum þar fyrir
málefni eins og þunglyndi, streitu,
sjálfsvíg og samúðarþreytu. Tölum
bæði við núverandi og fyrrverandi
bændur, sem deila þeim áföllum
sem þeir hafa lent í, aðstandendur
og sálfræðing.
Þannig að það er reynt að fara í þetta
frá sem flestum sjónarhornum.
Planið er að myndböndin
verði tilbúin fyrir búgreinaþing
og svo aðgengileg félagsmönnum
í kjölfarið. Við munum fara í
einhverja kynningu á verkefninu
og svo ef fjármagn leyfir að þá yrði
farið í gerð fleiri myndbanda þar
sem önnur málefni yrðu tekin fyrir.“
Stella segir að ljóst sé að andleg
vanlíðan, streita og kvíði séu algeng
andleg vandamál sem herji á bændur
hér á landi og reynist mörgum
bændum erfið, einkum hjá þeim sem
hafa þurft að skera niður í bústofni
vegna dýrasjúkdóma.
Reynslan sýni að geðheilsa bænda
og vandamál tengd dýravelferð
séu nátengd. /smh
Stella Björk Helgadóttir, verkefnis-
stjóri hjá Bændasamtökum Íslands.
Frá tökum á fræðslumyndböndunum fyrir átaksverkefnið Bændageð.
Pottaplöntur:
Flöskuliljan sérkennilega
Harðgerð og allsérstæð potta-
planta sem ekki þarf mikla
umhirðu og sómir sér vel í austur-
eða suðurglugga standi hún í
eilitlum skugga frá beinni sól af
öðrum pottaplöntum.
Plantan kallast á latínu Beaucarnea
recurvata og hefur gengið undur
nokkrum heitum á íslensku, fílafótur,
taglhnúður, skúfhnúður, taglskúfur
og flöskulilja, sem líklegast er besta
heitið.
Útlit flöskulilju er skemmtileg.
Ungar plöntur eru kúlu- eða egglaga
og löng og mjó blöð vaxa upp af
bolnum. Langlíf planta sem vex hægt
en með tímanum og góðri umhirðu
getur hún orðið fjögurra metra há.
Gamlar plöntur líkjast kúlulaga
flösku með einum eða fleiri löngum
hálsum. Bolurinn brúnleitur og
sléttur viðkomu. Efst á hálsinum sitja
hvirfingar með leðurkenndum og
sígrænum löngum og dökkgrænum
blöðum sem svigna niður á við.
Blómstrar sjaldan og yfirleitt ekki
fyrr en hún hefur náð að minnsta
kosti tíu ára aldri og því ræktuð sem
falleg blaðplanta.
Upprunnin við jaðra eyðimarka og
upp til fjalla í austanverðri Mexíkó
og Mið-Ameríku og nýtur í dag
mikilla vinsælda sem pottaplanta
víða um heim. Bolurinn geymir
vatn og plantan því þurrkþolin og
varast ber að ofvökva hana og nóg
er að gefa henni væga áburðarlausn
nokkrum sinum, eða eftir minni, yfir
sumartímann. Vökva skal með volgu
vatni. Kjörhiti flöskulilju er 18 til 25°
á Celsíus.
Tegundir innan ættkvíslarinnar
Beaucarnea eru 13 til 15 og sumar
þeirra eru í útrýmingarhættu, þar á
meðal B. recurvata vegna ágangs
í þær í náttúrulegum heimkynnum
sínum. /VH
Útlit flöskulilju er sérkennilegt.
Ungar plöntur eru kúlu- eða egglaga
og löng og mjó blöð vaxa upp af
bolnum. Mynd / dengarden.com
Fornleifar á sögusviði Njálu:
Stórbrotið menningarlandslag
Kristborg Þórsdóttir fornleifafræðingur segir að sá hluti verkefnisins, sem nú er í undirbúningi, hefjist í sumar ef
styrkur fæst og er gert ráð fyrir verklokum um næstu áramót. Mynd / Andrés Skúlason