Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Alls voru um síðustu áramót 498
virk fjós í mjólkurframleiðslu og
af þeim voru 175 básafjós með
rörmjalta- og/eða fötukerfi, þ.e.
35,1% fjósa landsins. Önnur voru
þá lausagöngufjós með annaðhvort
mjaltaþjóna eða mjaltabása.
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að mjaltaþjónar hafa tekið við
sem mest notaða mjaltatæknin á Íslandi
og hlutdeild þessarar mjaltatækni í
heildarframleiðslu landsins hélt áfram
að aukast árið 2022 og var í árslok í
254 fjósum, eða 51% þeirra.
35% fjósanna en 19%
framleiðslunnar
Þrátt fyrir að básafjós séu enn um
35% fjósanna, 175 talsins eins og
áður segir, þá er framleiðsla þeirra
hlutfallslega mun minni og sé litið
til innlagðrar mjólkur árið 2022 þá
nam framleiðsla básafjósa 18,6%
af landsframleiðslunni, en innlögð
mjólk var alls 148 milljónir lítra á
liðnu ári. 81,4% mjólkur landsins var
því um áramótin frá fjósum þar sem
kýr eru lausar.
Langmest af þessari mjólk, þ.e. frá
kúm í lausagöngu, er frá fjósum þar
sem mjólkað er með mjaltaþjónum
en um 68,9% mjólkurinnar er frá
fjósum með þá tækni.
Til samanburðar má geta þess að
í árslok 2019 var hlutfall mjólkur frá
mjaltaþjónafjósum 55,7%. Rétt er að
taka fram að útreikningarnir miðast
við þann mjaltatæknibúnað sem var
í fjósunum um síðustu áramót og því
er um örlítið ofmat að ræða á þessu
hlutfalli, enda skipta sum fjós um
tækni innan ársins og því er framleiðsla
ársins skráð á hina nýju tækni.
1,2 mjaltaþjónar að jafnaði
á hverju búi
Séu niðurstöður skráninga mjalta-
tækninnar skoðaðar nánar kemur
í ljós að 203 fjós voru með
1 mjaltaþjón, 45 með tvo og 6 fjós með
þrjá eða fleiri.
Í lok síðasta árs lauk þriggja
ára uppgræðsluverkefni í
samstarfi Landgræðslunnar
og Alcoa í landi Arnórsstaða
við Háreksstaðaleið á
Jökuldalsheiði.
Eftir 10 ára uppgræðslustarf
á svæðinu var enn mikið rof og
jarðvegseyðing vegna rofabarða
sem illa gekk að loka og var
jarðvegseyðingin stöðugt að
ganga lengra inn í gróðurlendi og
eyða upp algrónum svæðum. Því
var ráðist í átaksverkefni, sem
styrkt var af Alcoa Foundation,
til að stöðva rof á svæðinu.
Var aðgerðaráætlunin þríþætt:
rofabörð voru felld niður
með beltagröfu, þakning með
heyrúllum í rofabörð og sár og
tilbúinn áburður, ásamt grasfræi,
var notaður til uppgræðslu á
börðin sjálf og nærliggjandi
svæði.
Kortlagning
Í upphafi verkefnisins var svæðið
kortlagt með tilliti til gróðurfars,
jarðvegsrofs og annarra
yfirborðsþátta. Slík kortlagning
við upphaf uppgræðsluaðgerða
hjálpar til við mat á árangri
uppgræðsluaðgerða og fram-
vindu svæðis.
Af þeim tæplega 75 ha sem
voru kortlagðir reyndust tæplega
30% svæðisins vera ógróin eða
með litla gróðurþekju en 45%
svæðisins flokkuðust sem vel
eða algróin svæði, sem áttu
undir högg að sækja vegna
rofs og jarðvegseyðingar.
Talsvert, mikið og mjög mikið
rof var skráð á ríflega helmingi
svæðisins en rofið var verst í
jöðrum rofabarðanna. Þar var
einnig mest af lausum sandi, en
hann gefur okkur vísbendingu
um hversu stöðugt yfirborðið
er, en óstöðuleiki í yfirborði
og mikið af lausum fokefnum
gerir landnámi gróðurs erfitt um
vik. Útfrá þessum upplýsingum
var svæðinu svo skipt niður
í vinnusvæði sem höfðu
mismunandi forgang, þar sem
virkustu og hæstu rofabörðin
sem voru með mestan lausan
sand í kring höfðu mestan
forgang.
Vinnan
Unnið var á rúmlega 70 ha svæði
yfir árin þrjú. Alls var dreift 48
tonnum af áburði á þessa 70 ha
og 400 kg af grasfræi var dreift
með. Almennt var notast við
stóra áburðarskammta miðað við
landgræðsluverkefni eða um 300
kg/ha af tvígildum NP áburði.
Í þeim tilvikum þar sem verið
er að loka virkum rofabörðum
þarf oft stærri inngrip ef
vinna á verkið á stuttum tíma.
Þá var unnið á tæplega 5,5
kílómetrum af rofabörðum á
samstarfstímanum. Þau stærstu
og virkustu voru felld niður
og fengu áburðargjöf, fræ og/
eða heyrúllum dreift í sárin á
meðan rofabörð sem voru að
lokast fengu heyþakningu og/eða
áburðargjöf og fræ. Sum börðin
fengu aftur heyþakningu að ári
liðnu, taldist það nauðsynlegt.
Heyrúllum var einnig dreift
yfir svæði á milli rofabarða
til að reyna að stöðva áfok og
auka stöðuleika á yfirborðinu,
en samtals voru notaðar 870
heyrúllur í verkefnið.
Árangur
Stefnt er að endurkortlagningu á
svæðinu þegar aðgerðum er að
fullu lokið. Á næstu árum verður
svæðið undir eftirliti svo hægt sé
að grípa inn í ef gróðurþekja fer
að gefa eftir eða rofabörð fara að
opnast að nýju.
Líklegt er að halda þurfi
við uppgræðslum á svæðinu
á komandi árum með notkun
tilbúins áburðar þrátt fyrir að
samstarfsverkefninu sé lokið.
Með því að loka 5,5 kílómetrum
af háum rofabörðum er komið í
veg fyrir tap á gróðurþekju og
miklu magni af jarðvegi. Þá geta
þessi vistkerfi sem er bjargað
þjónað sem fræuppsprettur fyrir
frekari framvindu á svæðinu.
Hrafnkatla Eiríksdóttir,
héraðsfulltrúi á Norðurlandi.
Uppgræðsla
Arnórsstaða
Samanburður á rofabarði við upphaf aðgerða 2020 og eftir fellingu og
heyþakningu 2022. Mynd / Landgræðslan
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Á FAGLEGUM NÓTUM
Alls var 81,4% mjólkur landsins frá fjósum þar sem kýr eru lausar. Mynd / GBE
Nautgriparækt:
Fjöldi fjósa kominn
undir 500
Orkunýtni og orkuskipti skarast
sem hugtök og líka við fjölnýtingu
orkuauðlinda. Hvað með
orkusparnað?
Orkunýtni
Almenn orku-
nýtni er hlut-
fallið á milli
afkasta raf-
knúinna tækja,
þjónustu, vöru-
eða orkufram-
leiðslu og þeirrar
raforku sem
til þarf. Góð orkunýtni minnkar
umhverfisálag orkunotkunar.
Orkunýtni við raforkuframleiðslu
snýr að því að hámarka orkuna sem
felst í orkustraumum í náttúrunni
(vatnsmagni og fallhæð í straum-
vatni, varma í gufu og jarðhitavökva
og staðbundnum vindi). Orkunýtni
við rafeldsneytis- framleiðslu felst í
að sem mest af raforku, sem þarf til
hennar, skili sér sem hreyfiafl véla
er nýta ólíka orkugjafa, framleidda
með raforkunni.
Orkusparnaður
Margvíslegar aðgerðir geta leitt
til góðrar og skilvirkrar orku-
notkunar. Nefna má stillingu
raforku- og hitaveitu eftir notkun
rýma (slökkva á ljósum og tækjum
og nota hitastilla á ofnum),
led-perur í stað hefðbundinna
glópera, snjalltækni, heimilistæki
í A, A+ og A++ flokkum og sem
orkunýtnasta bíla og vinnuvélar
og tæki á sjó og í lofti. Einnig
samnýtningu ökutækja þar sem
Fjölnýting orkustrauma og annarra auðlinda er grunnur undir auðlindagarða
eins og klasans í Svartsengi. Mynd/ HS Orka
Milljón tonn af
jarðefnaeldsneyti á útleið
– Fróðleikur um orkumál og orkuskipti – 2. hluti
Ari Trausti
Guðmundsson.
LANDGRÆÐSLA