Bændablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Á FAGLEGUM NÓTUM
Í þessari grein verður fyrst og
fremst fjallað um frostskemmdir
sem urðu á kornökrum á Norð
austurlandi sumarið 2022, en
jafnframt komið með ábendingar
um val á landi til að minnka líkur
á slíkum skemmdum, þannig að
gæði verði betri og jafnari en nú
er ef auka á kornrækt hér á landi.
Þegar hér er
talað um að enn
séu skemmdir
á kornökrum
á þessu svæði,
er skemmst að
minnast þess
að nær allir
kornakrar eyði-
lögðust í nætur-
frosti 20. ágúst
2015 á svæðinu. Þetta haust var
korntilraunin á Tilraunastöðinni á
Möðruvöllum ekki uppskorin vegna
skemmdanna og er það eina árið sem
það hefur gerst, en korntilraunir voru
samfellt á Möðruvöllum á árunum
2004 til 2020, en áður var tilraunin
framkvæmd í Miðgerði í Eyjafirði
eða frá árinu 1996 til 2003. Engir
kornakrar né korntilraunir eru lengur
á Möðruvöllum, þó gott væri að
vera með tilraunir á sama svæði og
veðurstöðinni er.
Á árunum 2017 til 2019 voru
korntilraunir niður á mýrunum á
Möðruvöllum sem liggja töluvert
neðar í landinu en túnin þar sem
veðurstöðin er og þar er meiri hætta
á næturfrostum og öll árin þ.e. 2017-
2019 urðu frostskemmdir á tilrauninni
þar og einnig víða hjá bændum
á þessum árum. Á þessum árum
voru bændurnir sem leigðu túnin að
endurrækta mýrarnar og þess vegna
var tilraunin staðsett þar, því ekkert
land var opið á móa-/melatúnunum
sem liggja ofar í landinu. Uppskera
í tilrauninni á Möðruvöllum var
yfirleitt mjög góð og meðaltal 6 bestu
yrkja árin 2005-2014 var frá 5,2-10,0
tonn þe/ha, lakasta árið var 2013,
sem var lélegt kornár á Norðurlandi.
(Samantekt Jónatan Hermannsson
2015.) Undirritaður tók alltaf
ákvörðun um hvenær sáð var, þ.e.
þegar jarðvegur var orðinn hæfilega
þurr og sá yfirleitt um alla jarðvinnslu
hvað varðaði korntilraunirnar. Á 1.
mynd má sjá uppskeru á árinu 2008
á Möðruvöllum, en það er besta
uppskera sem þar hefur fengist og
trúlega í eina skiptið sem fengist hefur
fullþroskað korn.
Tíðarfar hér á Norðausturlandi
2022 var e.t.v. ekki það besta hvað
kornrækt varðar, en þó gátu bændur
sums staðar byrjað að sá tiltölulega
snemma þ.e. fyrstu vikuna í maí, en
annars staðar drógst sáning nokkuð
og alveg fram yfir 20. maí vegna
hversu maí var úrkomusamur. Þrátt
fyrir það var spretta og sprotamyndun
mjög góð, allavega á þeim ökrum sem
undirritaður fylgdist með (þ.e. 3-4
sprotar pr. plöntu), enda meðalhiti
á Akureyri mánuðina maí-júlí á pari
við meðaltal áranna 1991-2020, en
ágúst var undir meðaltali þessara
ára, en síðan kom mjög góður kafli
þ.e. frá 30. ágúst og fram um miðjan
september. En þá var skaðinn skeður
á öllum kornökrum sem lægstir liggja
í landinu vegna frostnótta í ágúst. Í
Eyjafirði eru menn svo vel settir að
vera með þrjár síritandi veðurstöðvar,
þ.e. á Akureyri, Möðruvöllum og
Torfum. Á veðurstöðinni á Akureyri
mælist yfirleitt ekki næturfrost yfir
sumarmánuðina vegna nálægðar
við sjó og einnig vegna hæðarlegu,
en á Möðruvöllum í Hörgárdal og
Torfum í Eyjafirði, sem eru niður í
dalabotnunum þar sem kalda loftið
safnast fyrir og næturfrost verður
hvenær sem er sumars á köldum
heiðríkjum dögum.
Samkvæmt veðurgögnum frá
Torfum er fyrsta frostið aðfaranótt
5. ágúst, sjá 2. mynd. Þá fór frostið
niður í -1,6 °C og varaði nokkuð lengi
eða frá því milli kl. 1 og 2 um nóttina
og fram til kl. 7 um morguninn. Þarna
gætu hafa orðið einhverjar skemmdir
á þeim ökrum sem lægst stóðu og
einnig er þetta á mjög viðkvæmum
tíma fyrir kornið, þ.e. stuttu eftir
frjóvgun og frostþolið mjög lítið.
Næsta frostnótt á Torfum var 15-16.
ágúst og fór þá frostið niður í – 3,0 °C,
sjá 3. mynd, og varaði frá miðnætti
og fram til kl. 7 um morguninn. Við
þetta frost hafa trúlega orðið nokkuð
miklar skemmdir á öllum ökrum í
Eyjafjarðardalnum sem lægstir stóðu,
en akrar sem ofar voru í landinu urðu
fyrir litlum sem engum skemmdum
og er það í samræmi við reynslu
þeirra sem unnu við þreskingu í
Eyjafirðinum sl. haust samkv. samtali
við Aðalstein Hallgrímsson, bónda
í Garði.
Undirritaður fór þann 26. ágúst
að skoða nokkra akra í Eyjafirðinum
til að athuga hugsanlegar skemmdir,
þ.e. um 10 dögum eftir frostnóttina,
og kom m.a. við á Grund í Eyjafirði
sem er næsti bær norðan við Torfur
þar sem veðurstöðin er og mátti sjá
skemmdir á neðstu ökrunum, þ.e.
næst Eyjafjarðaránni, en akur sem var
um 20 m ofar/hærra í landinu virtist
óskemmdur. Kornfylling var komin
vel af stað á þessum ökrum enda sáð
í þá um mánaðamótin apríl/maí og
því frostþol orðið meira, en fyrr á
þroskaferlinu. Það getur stundum
verið erfitt að sjá þessar skemmdir
úti á akri, sérstaklega þegar aðeins
hluti af smáöxunum í axinu skemmist
en kemur vel í ljós þegar farið er að
mæla rúmþyngdina, en einnig hvítnar
títan fyrr á dauðu smáöxunum (sjá
mynd 4, tekin daginn eftir sýnatöku)
og hægt er að sjá svona skemmdir í
smásjá eða með góðu stækkunargleri.
Á Möðruvöllum var fyrsta
frostnóttin þann 16. ágúst (sjá 5. mynd)
og hafa þá trúlega orðið einhverjar
skemmdir á ökrum í Hörgársveit, en
21.–22. ágúst var meira næturfrost og
urðu þá þeir akrar sem lægst lágu fyrir
verulegum skemmdum og dæmi um
akra sem eyðilögðust alveg enda sáð
seinna þar en í Eyjafjarðarsveitinni
(sjá 6. mynd). Þriðja frostnóttin á
Möðruvöllum var svo 26.–27. ágúst
og fór þá frostið niður í -3 °C og stóð
mjög lengi.
Veðurstöðin á Staðarhóli í Aðaldal
getur gefið nokkuð góðar upplýsingar
um veðurfar á aðalkornræktarsvæði
í Suður-Þing., en fyrsta frostnóttin
þar var 16. ágúst, -1,6 °C, en meira
frost var svo 16.–17. ágúst og fer þá
niður í -1,8 °C og varir lengur sjá
7. mynd. Meira næturfrost er svo
21.-22. ágúst og fer þá niður í -3,2
°C og varir mjög lengi, þ.e. frá því
um kl. 11 um kvöldið 21. til um kl. 8
morguninn 22. ágúst (sjá 8. mynd).
Á þeim ökrum á þessu svæði sem
frostið var svona mikið hefur trúlega
öll kornfylling stöðvast og má sjá það
á uppskerutölum sem skráðar eru í
jarðræktarforritið Jörð á þessu svæði,
en þó geta skemmdir vegna mikils
vinds 24. september haft áhrif líka.
Allar hitatölur sem hér hafa verið
uppgefnar eru miðað við 2 m hæð frá
jörðu og getur því frostið hafa verið
nokkru meira í axhæð á ökrunum.
Tilgangurinn með að birta þessar
hitatölur hér er til að benda á að
staðsetning kornakra skiptir máli
með tilliti til hættu á skemmdum af
næturfrostum, hafi menn val um það
á jörðum sínum að taka tillit til þess.
Eftir þessi næturfrost kom nefnilega
besti kafli sumarsins, þ.e. frá 30.
ágúst til 14. september, með góðum
meðalhita, á Möðruvöllum 10,4 °C
og trúlega svipað á Torfum og daga
með um og yfir 20 stiga hita. Þetta
má sjá á rúmþyngd á korni mótteknu
af Bústólpa á Akureyri sl. haust þar
sem sumt af korninu er með mjög
góða rúmþyngd, þ.e. tfur 600 g/líter
(sjá 9. mynd). Þannig að á sl. sumri
var hægt að ná uppskeru með góðum
gæðum hér á Norðurlandi.
Við val á ræktunarlandi fyrir korn
þarf að forðast lægðir og flatlendi
í dalabotnum þar sem hætta er á
næturfrostum á vaxtartímanum og
velja frekar land sem hærra liggur
í landinu ef möguleikar eru á því og
jafnvel í halla að þeim mörkum sem
þreskivélar ráða við. Best ef landið
er hæfilega frjósamt svo hægt sé
að hafa betri stjórn á framboði af
köfnunarefni, sem getur verið erfitt
í frjósömu mýrlendi vegna losunar
á N síðsumars á óheppilegum tíma
fyrir kornþroskann. Sama gildir
ef lífrænn áburður, þ.e. mykja eða
molta, er plægð niður í akrana og hef
ég ráðlagt mönnum frá því, heldur
vinna hann saman við yfirborðið og
bæta svo við tilbúnum áburði eftir
þörfum. Jarðvegsdýpt þarf að vera
minnst 40-50 cm til að minnka líkur
á þurrkskemmdum og náttúrulegt
framræsluástand þarf að vera gott þar
sem laust vatn og rigningarvatn hripar
fljótt í gegnum jarðveginn þegar klaki
fer úr jörðu. Vanda þarf alla jarðvinnslu
og forðast að vinna of blautt land að
vori sem kemur alltaf niður á uppskeru
og sama gildir um sáningu að hún þarf
að vera í sem jafnastri dýpt (2-3 cm)
og ætti það að vera hægt með þeim
fullkomnu vélum sem menn hafa yfir
að ráða núorðið með valta á undan
sáðrörunum og einnig með búnað til að
fella áburðinn niður með fræinu, sem
flýtir fyrir spírun og vöxt á korninu.
Mikil umræða um kornrækt hér
á landi á sér stað um þessar mundir
og ekki síst á síðum Bændablaðsins
og finnst undirrituðum hún nokkuð
óraunhæf á köflum. Það á að auka
Enn skemmdir á kornökrum á Norðaustur-
landi vegna næturfrosts á vaxtartíma
Guðmundur H.
Gunnarsson.
1. mynd. Kornuppskera á Möðruvöllum 2008 (samantekt Jónatan
Hermannsson, ljósgrænar súlur íslensk yrki, en dökkgrænar erlend yrki).
2. mynd. Hitastig á Torfum 5. ágúst 2022.
3. mynd. Hitastig á Torfum 15.–16. ágúst 2022.
4. mynd. Sýnishorn úr kornökrum á Grund 26. ágúst þar sem vinstra megin
eru smáöxin óskemmd, en hægra megin er hluti þeirra skemmdur (sama
yrki Judit og sáð sama dag).
5. mynd. Hitastig á Möðruvöllum 15.–16. ágúst 2022.
6. mynd. Hitastig á Möðruvöllum 21.–22. ágúst 2022.