Bændablaðið - 09.02.2023, Side 60

Bændablaðið - 09.02.2023, Side 60
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Toppönd er ein af tveimur fiskiöndum sem lifa við Ísland, þær eru nokkuð algengar á vötnum á láglendi og við ströndina. Hún dregur nafnið sitt af stríðum toppi á hnakkanum. Steggurinn fellir þennan topp mjög snemma, jafnvel strax í maí sjást sumir þeirra ekki með topp lengur. Stóra frænka hennar, gulöndin, er mun sjaldgæfari og afar stygg. Þessar tvær fiskiendur eru hins vegar nokkuð félagslyndar og algengt að sjá þær í litlum hópum. Toppönd er einstaklega góður kafari og hennar aðalfæða eru síli og smáfiskar sem hún veiðir bæði í ferskvatni og á sjó. Goggurinn er langur, mjór og með þyrnóttar brúnir til að halda fast í hála fiska. Þær veiða stundum í hópum til að reka bráðina upp í grynningar þar sem auðveldara er að veiða hana. Toppendur eru að hluta til farfuglar, margar þeirra dvelja á sjó umhverfis Ísland á veturna á meðan hluti stofnsins heldur til við Bretlandseyjar. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson FRÆÐSLA Allt frá gullaldarárum Jane Fonda þykir leikfimi bæði ákjósanleg ef á að halda sér í formi, svo og vettvangur til að sýna sig og sjá aðra svona til samanburðar. Margir leikfimiunnenda velja fatnað sem fellur hvað best að líkamanum og telja þá mögulega hvatningu í því fyrir aðra í kring – að sjá klæðin strekkjast yfir velmótaða vöðva og annan vöxt. Hátísku leikfimifatnaður Leikkonan Kate Hudson er ein stofnenda fyrirtækisins Fabletics (www.fabletics.com) sem sérhæfir sig í framleiðslu hátísku leikfimifatnaðar í miklum gæðum, þó á viðráðanlegu verði. Einnig er fyrirtækið ötull talsmaður samfélagslegra gilda, stuðlar að heilbrigðum lífsstíl og sjálfbærni. Það var stofnað fyrir rúmum áratug og hefur í dag náð gríðarlegum árangri sem alþjóðlegt lífsstílsmerki. Í kjölfarið hefur það laðað að sér marga aðdáendur – enda ekki alltaf sem gæði og lágt verð fara saman. Þar má í dag finna nær allt sem viðkemur leik- fimiiðkun – skó, töskur og fylgihluti jafnt sem fatnað. Komst Fabletics annars í fréttirnar fyrir skömmu er nýjasta hönnunardýrðin leit dagsins ljós. Um ræðir æfingabuxur þar sem bakhluti þeirra var að stóru leyti óhulinn og ef til vill ekki allra. Hægt er að fá téðar buxur í stærðunum XS-6X, en fyrirtækið býður annars vanalega upp á fatnað í stærðunum XXS-6X fyrir konur en XS-4X fyrir karlmenn. Yitty er svo merki innan stólpa fyrirtækisins þar sem Grammy- verðlaunahafinn og söngkonan Lizzo tekur í sama streng og hefur hannað leikfimiboli í svipuðum stíl. Eiga þeir það sameiginlegt með buxunum að vera í svokölluðum „G-strengjastíl“. Er söngkonan sjálf ótrauður talsmaður berra rasskinna og hefur við þó nokkur tilefni skartað slíkri tísku. Núnú ... Eins og alþjóð veit er mikið rætt um – og áhersla lögð á – að æfingafatnaður andi vel, þó þessi svokallaða nýstárlega hönnun hafi farið alveg ógurlega fyrir brjóstið á fólki. Er þó ekki annað hægt að segja en lofti afar vel um bakhluta þeirra sem klæðast buxunum og rétt að minna á að það þykir með eindæmum hollt og gott að leyfa húðinni að anda sem mest er leikfimi er ástunduð. Einkennilegt í raun að það komi ekki fram í umræðunni þegar verið er að skammast yfir rassbótlausum brókum. Samkvæmt öllum uppsprettum heilnæmis og velfarnaðar, t.a.m. heilbrigðiseftirliti, læknum, íþrótta- hetjum, hönnuðum íþróttafatnaðar og þar fram eftir götunum kemur ítrekað fram að lofta þurfi vel um líkama sem svitnar enda má ekki gleyma því að við hita – þá ekki síst í fatnaði sem andar ekkert – geta myndast alls kyns bakteríur, sveppamyndun eða annar ófögnuður, ekki síst fyrir neðan mitti. Ekkert er lengur nýtt af nálinni En það er ekki hægt að gera öllum til geðs og kannski engum dottið í hug að hægt sé að vera í sokkabuxum undir þessum glennulegu buxum hönnuðum af ungfrú Hudson? Þessi nýstárlega hönnun er nefnilega ekki nýstárlegri en svo að það var nú akkúrat drottningin Jane Fonda sem skartaði slíku í denn, kannski t.d. í kringum 1982, og þótti hvað hæstmóðins. (Og já, þá reyndar ekki með rassinn beran). Má leita á netinu að leikfimi- fatnaðinum, ef einhvern langar, t.d. undir eftirfarandi; „Thong Leotard“, helst „High cut Style“. Jæja, svo lengi lærir sem lifir – og með það í huga er ekkert sem aftrar fólki frá því að leyfa sér þennan munað, enda geta teprur verslað sér 90 den sokkabuxur í leiðinni til þess að smeygja sér í inn undir. /SP Sokkabuxur eða ekki sokkabuxur?: Leikfimifatnaður sem loftar vel Söngkonan Lizzo fyrir miðju ásamt fríðum flokki kvenna í hönnun merkisins Yitty. Ný hönnun fyrirtækisins Fabletics minnir margt á tísku liðinna áratuga og því ef til vill ekki eins mikil nýjung eins og ætla mætti. Jane Fonda í húðlitum nylonsokkabuxum undir hátískulegum leikfimi- g-strengjabol árið 1982.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.