Bændablaðið - 09.02.2023, Qupperneq 60
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Toppönd er ein af tveimur fiskiöndum sem lifa við Ísland, þær eru nokkuð algengar á vötnum á láglendi og við ströndina. Hún dregur nafnið sitt af stríðum toppi á hnakkanum. Steggurinn fellir þennan topp
mjög snemma, jafnvel strax í maí sjást sumir þeirra ekki með topp lengur. Stóra frænka hennar, gulöndin, er mun sjaldgæfari og afar stygg. Þessar tvær fiskiendur eru hins vegar nokkuð félagslyndar og
algengt að sjá þær í litlum hópum. Toppönd er einstaklega góður kafari og hennar aðalfæða eru síli og smáfiskar sem hún veiðir bæði í ferskvatni og á sjó. Goggurinn er langur, mjór og með þyrnóttar brúnir
til að halda fast í hála fiska. Þær veiða stundum í hópum til að reka bráðina upp í grynningar þar sem auðveldara er að veiða hana. Toppendur eru að hluta til farfuglar, margar þeirra dvelja á sjó umhverfis
Ísland á veturna á meðan hluti stofnsins heldur til við Bretlandseyjar. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Allt frá gullaldarárum Jane Fonda
þykir leikfimi bæði ákjósanleg
ef á að halda sér í formi, svo og
vettvangur til að sýna sig og sjá
aðra svona til samanburðar.
Margir leikfimiunnenda velja
fatnað sem fellur hvað best að
líkamanum og telja þá mögulega
hvatningu í því fyrir aðra í kring – að
sjá klæðin strekkjast yfir velmótaða
vöðva og annan vöxt.
Hátísku leikfimifatnaður
Leikkonan Kate Hudson er ein
stofnenda fyrirtækisins Fabletics
(www.fabletics.com) sem
sérhæfir sig í framleiðslu hátísku
leikfimifatnaðar í miklum gæðum,
þó á viðráðanlegu verði. Einnig
er fyrirtækið ötull talsmaður
samfélagslegra gilda, stuðlar
að heilbrigðum lífsstíl og
sjálfbærni. Það var stofnað
fyrir rúmum áratug og hefur
í dag náð gríðarlegum árangri
sem alþjóðlegt lífsstílsmerki.
Í kjölfarið hefur það laðað að sér
marga aðdáendur – enda ekki
alltaf sem gæði og lágt verð
fara saman.
Þar má í
dag finna
nær allt sem
viðkemur leik-
fimiiðkun – skó, töskur
og fylgihluti jafnt
sem fatnað.
Komst Fabletics
annars í fréttirnar fyrir
skömmu er nýjasta
hönnunardýrðin leit
dagsins ljós. Um ræðir
æfingabuxur þar sem
bakhluti þeirra var að
stóru leyti óhulinn og ef til
vill ekki allra. Hægt er að
fá téðar buxur í stærðunum
XS-6X, en fyrirtækið býður
annars vanalega upp á
fatnað í stærðunum
XXS-6X fyrir konur
en XS-4X fyrir
karlmenn.
Yitty er svo merki innan stólpa
fyrirtækisins þar sem Grammy-
verðlaunahafinn og söngkonan
Lizzo tekur í sama streng og hefur
hannað leikfimiboli í svipuðum stíl.
Eiga þeir það sameiginlegt með
buxunum að vera í svokölluðum
„G-strengjastíl“. Er söngkonan sjálf
ótrauður talsmaður berra rasskinna
og hefur við þó nokkur tilefni
skartað slíkri tísku.
Núnú ...
Eins og alþjóð veit er mikið
rætt um – og áhersla lögð á – að
æfingafatnaður andi vel, þó þessi
svokallaða nýstárlega hönnun hafi
farið alveg ógurlega fyrir brjóstið
á fólki. Er þó ekki annað hægt að
segja en lofti afar vel um bakhluta
þeirra sem klæðast buxunum og
rétt að minna á að það þykir með
eindæmum hollt og gott að leyfa
húðinni að anda sem mest er leikfimi
er ástunduð. Einkennilegt í raun að
það komi ekki fram í umræðunni
þegar verið er að skammast yfir
rassbótlausum brókum.
Samkvæmt öllum uppsprettum
heilnæmis og velfarnaðar, t.a.m.
heilbrigðiseftirliti, læknum, íþrótta-
hetjum, hönnuðum íþróttafatnaðar
og þar fram eftir götunum kemur
ítrekað fram að lofta þurfi vel um
líkama sem svitnar enda má ekki
gleyma því að við hita – þá ekki
síst í fatnaði sem andar ekkert –
geta myndast alls kyns bakteríur,
sveppamyndun eða annar ófögnuður,
ekki síst fyrir neðan mitti.
Ekkert er lengur nýtt af nálinni
En það er ekki hægt að gera öllum til
geðs og kannski engum dottið í hug
að hægt sé að vera í sokkabuxum
undir þessum glennulegu buxum
hönnuðum af ungfrú Hudson?
Þessi nýstárlega hönnun er
nefnilega ekki nýstárlegri en svo
að það var nú akkúrat drottningin
Jane Fonda sem skartaði slíku í
denn, kannski t.d. í kringum 1982,
og þótti hvað hæstmóðins. (Og já,
þá reyndar ekki með rassinn beran).
Má leita á netinu að leikfimi-
fatnaðinum, ef einhvern langar,
t.d. undir eftirfarandi; „Thong
Leotard“, helst „High cut Style“.
Jæja, svo lengi lærir sem lifir –
og með það í huga er ekkert sem
aftrar fólki frá því að leyfa sér
þennan munað, enda geta teprur
verslað sér 90 den sokkabuxur í
leiðinni til þess að smeygja sér í
inn undir. /SP
Sokkabuxur eða ekki sokkabuxur?:
Leikfimifatnaður sem loftar vel
Söngkonan Lizzo fyrir miðju ásamt fríðum flokki kvenna í
hönnun merkisins Yitty.
Ný hönnun fyrirtækisins Fabletics minnir margt á tísku liðinna áratuga og
því ef til vill ekki eins mikil nýjung eins og ætla mætti.
Jane Fonda í húðlitum
nylonsokkabuxum undir
hátískulegum leikfimi-
g-strengjabol árið 1982.