Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 SOCKS2GO.IS Ekta bambus sokkar, ekkert viskós. Þú finnur muninn. SOCKS2GO info@socks2go.eu s. 831-8400 www.socks2go.is Fást einungis á heimasíðunni okkar og í Herrahúsinu Ármúla. Rökstudd áætlun Í áætluninni eru færð rök fyrir því að styðja eigi sértaklega við lífræna framleiðslu. Hún er sögð hafa í för með sér minni neikvæð samfélagsleg útáhrif (e. externalities) en „hefðbundin“ framleiðsla. Afurðir lífrænu framleiðslunnar eru þannig tvær, matvælin sjálf og svo tiltekinn samfélagslegur ávinningur eða almannagæði. Verð lífrænna matvæla sé að sama skapi alla jafna nokkru hærra en „hefðbundinna“, enda greiði neytandinn fyrir tiltekin almannagæði sem fylgja ekki með í kaupum á „hefðbundnum“ matvælum. Þetta skekki samkeppnisstöðu lífrænna afurða gagnvart öðrum landbúnaðarafurðum og hafi þar af leiðandi markaðsbrest í för með sér. Í bakgrunnsupplýsingunum segir enn fremur að í rannsókn á áhrifum landbúnaðar á almannagæði, sem gerð var árið 2009 og kostuð af Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, hafi komið fram að lífræn framleiðsla hefði ýmis jákvæð áhrif á almannagæði, svo sem á lífvænleika landsbyggðarinnar, heilbrigði og kolefnisbúskap jarðvegs, líffræðilega fjölbreytni, vatnsgæði, loftgæði, ásýnd landbúnaðarlands, vatnsöflun og stöðugleika loftslags. Jákvæð byggðaáhrif lífrænnar framleiðslu eru meðal annars talin felast í að lífræn framleiðsla skapi fleiri störf en „hefðbundin“ framleiðsla og styðji þar af leiðandi við atvinnulíf í dreifbýli. Auk þessa hafi verið bent á að lífræn framleiðsla stuðli að bættri velferð dýra, auknu matvælaöryggi vegna minni efnanotkunar og auknu fæðuöryggi vegna þess að framleiðslan byggi að miklu leyti á eigin aðföngum og aðföngum úr nánasta umhverfi í stað innfluttra aðfanga. Síðastnefnda atriðið styðji einnig við lífvænleika einstakra byggða. Jákvæðari loftslagsáhrif Þá er lífræn framleiðsla talin hafa jákvæðari loftslagsáhrif en sú „hefðbundna“ og á líffræðilega fjölbreytni. „Reyndar eru þessir tveir þættir nátengdir, en hafa að öllum líkindum fengið minni athygli í umræðu síðustu ára en vert væri. Jarðvegur er í raun óendurnýjanleg auðlind og á síðustu árum hefur verulegt magn af jarðvegi tapast vegna athafna manna. Þessu hefur fylgt mikil losun gróðurhúsalofttegunda enda felst mikill kolefnisforði í heilbrigðum jarðvegi. Um leið og jarðvegur tapast minnka möguleikar mannkyns á að hafa í sig og á. Í samantekt Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (United Nations Food and Agriculture Organisation (FAO)) sem kynnt var á Alþjóðlegu ári jarðvegs 2015 var gengið svo langt að halda því fram að ef svo héldi sem horfði hefði mannkynið ekki möguleika á að framfleyta sér nema í 60 ár til viðbótar, þar sem þá yrði ekki lengur til nægur jarðvegur til að byggja fæðuframleiðsluna á,“ segir í aðgerðaáætluninni. Tillögurnar hafa verið kynntar í ríkisstjórn, en unnið verður nánar úr þeim í matvælaráðuneytinu og aðgerðaáætlun til eflingar lífrænni framleiðslu að svo búnu kynnt í framhaldinu. 5. Markaðsstarf, kynning og fræðsla 5.1 Upplýsingar um innflutning o.fl. Leitað verði samstarfs við Vottunarstofuna Tún ehf. um árlega samantekt og birtingu heildartalna úr árlegum skýrslum skráðra og vottaðra framleiðenda, innflytjenda og vinnsluaðila, með það að markmiði að hlutdeild lífrænt vottaðrar vöru, innfluttrar sem innlendrar, verði þekkt á hverjum tíma. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu við Matvælastofnun, Vottunarstofuna Tún ehf. og Lífrænt Ísland 5.2 Stuðningur við Lífrænt Ísland Verkefninu Lífrænt Ísland verði viðhaldið og því tryggt fjármagn til sjö ára í senn með samningi matvælaráðuneytisins við VOR. Jafnframt fái Lífrænt Ísland formlegt hlutverk sem miðstöð upplýsinga og miðlunar um lífræna framleiðslu. Eitt af fyrstu verkefnum Lífræns Íslands skv. nýjum samningi verði að safna saman og gera aðgengilega (m.a. á vefsíðu) þá þekkingu á lífrænum aðferðum sem þegar er til staðar hjá einstökum framleiðendum. Í tengslum við það verði efnt til sérstakra „raunveruleikanámskeiða“ í samstarfi við LBHÍ og RML þar sem þessari þekkingu er komið á framfæri. Sömuleiðis verði Lífrænu Íslandi falið að stuðla að öðru námskeiðahaldi ef þörf þykir að teknu tilliti til framboðs námskeiða um lífræna framleiðslu á vegum LBHÍ og RML. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í sam­ vinnu við Bændasamtök Íslands, VOR, LBHÍ og RML 5.3 Lífrænu verðlaunin Matvælaráðuneytið veiti árlega verðlaun til aðila sem þykja hafa skarað fram úr í framleiðslu, nýsköpun, vöruþróun, markaðssetningu, sölu eða kynningu á lífrænum vörum. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu við Lífrænt Ísland 5.4 Lífrænn dagur Lífrænu Íslandi verði falið að standa framvegis fyrir sérstökum lífrænum degi 23. september ár hvert, eða á annarri heppilegri dagsetningu, í tengslum við Organic Day Europe. Slíkur dagur var í fyrsta sinn haldinn á Íslandi haustið 2022. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu við Lífrænt Ísland 5.5 Markaðsátak fyrir lífræn matvæli í mötuneytum og verslunum Gert verði sérstakt átak í samstarfi við Lífrænt Ísland, landshlutasamtök sveitarfélaga og atvinnulífið til að stuðla að auknu framboði lífrænna matvæla og matvæla úr nærumhverfi í verslunum, mötuneytum og á veitingastöðum, með sérstakri áherslu á aðila í ferðaþjónustu. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu við Lífrænt Ísland, landshlutasamtök sveitarfélaga, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu 5.6 Framsetning á lífrænum vörum í verslunum Efnt verði til samstarfs við matvælaverslanir og þeim boðin ráðgjöf um markvissa framsetningu á lífrænt vottuðum vörum, þannig að þær verði sem sýnilegastar í stað þess að vera jaðarsettar í sérdeildum. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu við Lífrænt Ísland 5.7 Fræðsla um merkingar matvæla Útbúið verði sérstakt kynningarefni og efnt til sérstakrar kynningar í samstarfi við Lífrænt Ísland á helstu merkingum matvæla, þ.m.t. merki Vottunarstofunnar Túns ehf. og merki Evrópusambandsins fyrir lífrænar vörur. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu við Matvælastofnun, Lífrænt Ísland, Umhverfisstofnun og Vottunarstofuna Tún ehf. 6. Önnur stefnumótun 6.1 Lífrænar áherslur í byggðaáætlun Gerð verði sérstök greining á möguleikum þess að auka áherslu á lífræna framleiðslu við framkvæmd og/ eða endurskoðun Byggðaáætlunar. Í því sambandi verði m.a. kannaðir möguleikar á að skapa aðstæður til lífrænnar ræktunar á leigujörðum í ríkiseigu. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu við Byggðastofnun, innviðaráðuneytið og fjármála­ og efnahagsráðuneytið 6.2 Samræming stefnumótunar Stefna íslenskra stjórnvalda á sviði matvælaframleiðslu, einkum stefna í landbúnaðar- og fiskeldismálum, verði rýnd sérstaklega til að greina hugsanlegar mótsagnir við þær áherslur sem fram koma í aðgerðaáætlun til eflingar lífrænnar framleiðslu – og á grundvelli þeirrar greiningar settar fram tillögur um breytingar til að tryggja samræmi í stefnumótuninni. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið 7. Eftirfylgni og endurskoðun 7.1 Ársskýrsla og málþing Í upphafi hvers árs verði gefin út ársskýrsla um árangurinn af framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar á nýliðnu ári. Þá verði efnt til sérstaks málþings eigi sjaldnar en á tveggja ári fresti til að kynna það sem hefur áunnist og ræða æskilegar áherslur í áframhaldandi eftirfylgni. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið í samvinnu við Lífrænt Ísland 7.2 Endurskoðun Aðgerðaáætlunin verði endurskoðuð eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti, í fyrsta sinn eigi síðar en fyrir 1. janúar 2026. Ábyrgð: Matvælaráðuneytið Sauðfé á Miðhrauni II á sunnanverðu Snæfellsnesi var lífrænt vottað en er ekki lengur. Sú þróun hefur orðið víðar. Mynd / smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.