Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Aktu á
gæðum
AMMANN
JARÐVEGSÞJÖPPUR
Í MIKLU ÚRVALI
GÆÐI SEM ENDAST
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is
Brynja hefur stoppað upp fjölmarga hana í gegnum árin með góðum
árangri. Þeir sem vilja hafa samband við hana geta hringt í s. 844-7633
eða gegnum Facebook.
Brynja náði þeim glæsilega árangri nýlega að verða í þriðja sæti á
Evrópumeistaramóti hamskera í Salzburg með auðnutittling, sem hún
stoppaði upp. Mynd / Aðsend
„Fyrir nokkrum árum langaði mig að
læra að renna leir og í framhaldinu að
gera eitthvað öðruvísi en aðrir eru að
gera hér á landi. Auðvitað varð það
svo fuglatengt hjá mér. Þannig að
leirlistin mín er lína af sérmerktum,
handrenndum bollum og könnum með
fríhendis teiknuðum fuglamyndum.
Leirtauið þolir uppþvottavél og
engir tveir bollar eru eins, hvorki
í laginu né skreytingunni. Fólk
hefur tekið þessu mjög vel, þetta
eru eftirsóttar tækifærisgjafir,
stundum sérpantaðar. Þeir fást hjá
mér á vinnustofunni á Selfossi en
einnig í Safnbúð Listasafns Íslands
við Reykjavíkurtjörn. Þannig að
leirvinnan gengur mjög vel og
er frábær viðbót í annars mjög
skemmtilegt listaflæði á heimilinu,“
segir Brynja.
Spennandi verkefni fram undan
Brynja situr ekki auðum höndum
núna. „Fram undan er uppstoppun
fugla fram á vor samhliða leir-
brennslu og skreytingum með
fuglamyndum til að eiga eitthvert
úrval leirmuna fyrir sveitamarkaði
og hugsanlega á Hrafnagili á
Akureyri seinna í sumar. Í vetur fór
ég á leirnámskeið í Englandi til að
læra að handmóta fuglastyttur. Ég
hlakka til að gefa mér góðan tíma í
að nýta mér þá tækni í ró og næði
og sjá hvað kemur út úr því.
Að endingu langar mig bara
að þakka Bændablaðinu og
landsbyggðarfólki fyrir mjög góða
samfylgd og samstarf síðustu þrjátíu
árin. Ég hef kynnst virkilega góðu
fólki sem ég er þakklát fyrir að hafa
kynnst og hafa fengið að vinna fyrir.
Ég held að það megi alveg segja það
að án þess hefði ég ekki haldið úti
þessu starfi svona lengi, og ekki náð
þessum árangri sem ég náði núna á
síðustu vikum. Þetta er allt spurning
um samstarf og hvatningu, til að
halda áhuga og metnaði til að gera
betur. Þannig að, takk fyrir mig,“
segir Brynja stolt og ánægð með
vinnuna sína og lífið sjálft.