Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 42

Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA Skipt var um formann deildar geitfjárbænda á nýliðnu búgreina- þingi og tekur Brynjar Þór Vigfússon, bóndi í Gilhaga í Öxarfirði, við embættinu af Önnu Maríu Flygenring í Hlíð. Í Gilhaga er bæði sauð- og geitfjárrækt, auk býflugna- og skógræktar. Þá er heima á bænum ullarvinnsla og gestastofa. „Við fjölskyldan flytjum á sveitabæ fjölskyldunnar og kaupum hana af Brynjari Halldórssyni, afa mínum, 2018 og byrjum þá með nokkrar kindur og síðar fjórar geitur árið eftir. Við byrjum svo uppbyggingu og standsetningu Ullarvinnslu Gilhaga árið 2019 og opnum hana um sumarið 2020,“ segir Brynjar Þór um ábúðarsögu sína í Gilhaga. Markmiðið að fjölga kindum og geitum Hann segir að markmiðið sé að fjölga í bústofnunum. „Núna erum við með um 90 kindur og 15 geitur ásamt nokkrum vel völdum húsdýrum til að fullkomna sveitalífið. Markmiðið er að fjölga kindum og geitum áfram til að nýta bæði hús og jörð, ásamt því að halda áfram að sinna Ullarvinnslunni og gestastofunni – en stöðugur uppgangur hefur verið í aðsókn að henni frá opnun. Skógrækt hefur verið stunduð á jörðinni til fjölda ára. Núna hafa verið skapaðir margir yndisreitir vítt og breitt um jörðina sem við vonumst til að fjölga og betrumbæta með tíð og tíma.“ Lagfæringar á skýrslu- haldinu í Heiðrúnu Að sögn Brynjars voru ýmis almenn mál tengd geitfjárræktinni rædd á búgreinaþinginu. „Við fengum kynningu á væntanlegum breytingum sem eru í farvatninu varðandi Heiðrúnu, skýrsluhaldsforriti geitfjárræktarinnar á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar land- búnaðarins (RML). Hún var gerð sem afrit af Fjárvís á sínum tíma og hafa verið ansi margir annmarkar á henni undanfarin ár og nú er loks kominn skriður í að laga það sem þar þarf að laga. Þar má nefna að teknir verða út hlutir sem eru ekki tengdir á neinn hátt geitum og ýmis rangnefni, allt mun það vonandi á endanum gera skýrsluhaldið ánægjulegra fyrir geitabændur. Við þökkum RML vel fyrir að málið sé komið á dagskrá.“ Engin afurðastöð kaupir geitakjöt bænda Verkefni Pure North í Hveragerði var að sögn Brynjars rætt á þinginu, sem snýst um framleiðslu á girðingarstaurum úr rúlluplasti. Geitabændur telja verkefnið þarft og er vonast til að hægt verði að endurnýta sem mest af rúlluplasti fyrir verkefnið. „Ýmislegt annað var rætt eins og mikilvægi þess að nýta afurðir geita og koma þeim á markað. Mjaltir og mjólkurvinnsla er spennandi hjá mörgum geitabændum um landið og má gera ráð fyrir að meira pláss sé á markaði þar sem bændur segja vörur seljast vel. Þeir sem vinna kjötafurðir geita eru að vinna einstaklega gott og þarft starf. Eins og staðan er núna er engin afurðastöð sem kaupir geitakjöt og þurfa því bændur að koma því sjálfir á markað með tilheyrandi tilstandi. Væri gaman að sjá hvort einhverjir sjái tækifæri í kjötvinnslu og hagræða þannig í þágu allra geitabænda.“ Miklir möguleikar í fiðuvinnslu Brynjar telur að möguleikar í vinnslu á fiðu séu einnig miklir. „En þar þurfa bændur að gera meira og betur í að kemba og hirða um fiðuna ásamt því að senda til vinnslu. Eins og staðan er í dag er einungis Uppspuni í Ásahreppi sem vinnur geitafiðu fyrir bændur. Þar sem magn af hverri geit getur verið frá 100–150 grömm þarf nokkrar geitur til að ná upp í vinnanlegt magn en gott verð hefur fengist fyrir afurðirnar sem seljast vel. Á síðasta ári var haldið eitt námskeið í kembingu geita á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Geitfjárræktarfélag Íslands. Gæði fiðunnar eru mjög mikil og slaga hátt í gæði bestu kasmírullar en í íslensku fiðunni eru þó helst til stuttir þræðir, ásamt aðeins of miklu af grófum þráðum sem þarf að ná úr – sem gerir alla vinnslu dýrari. Tilraunir hafa verið gerðar með að blanda geitafiðu og lambsull og er útkoman út úr því alveg einstaklega mjúkt og gott band. Þar nýtist styrkurinn úr toghárum lambanna, þelið og fiðan mynda síðan einstaklega mjúkt band viðkomu.“ Óttast að heldur hafi fækkað í stofninum „Frá mínum bæjardyrum séð eru mikil tækifæri í geitfjárræktinni. Hins vegar má kannski ekki mikið út af bregða þar sem stofninn er enn þá við hættumörk. Ég hef ekki heyrt nýjustu tölur um fjölda dýra í landinu en við í stjórn óttumst að heldur hafi fækkað frá síðustu tölum, en fyrir rúmu ári síðan voru einstaklingar rétt undir 1.700 á landinu. Til þess að stofninn geti farið af lista yfir dýr í útrýmingarhættu þarf að komast í 4.800 til 7.200 vetrarfóðruð kvendýr. Því þarf að bregðast við og reyna allt hvað hægt er að gera til að stækka og styrkja stofninn. Hafrastöðin er mikilvægur þáttur í að styrkja stofninn, mættu bændur nýta stöðina betur til að auka erfðafræðilegan fjölbreytileika stofnsins. Einnig þarf að líta til þess að fjölga búum með um 100 til 200 geitur. Til þess að það náist þarf að sýna fram á að afurðir séu metnar að verðleikum og auka aðgengi á mörkuðum. Eitthvað er um að veitingastaðir séu að taka inn geitakjöt og er það vel. Leita þarf allra leiða til að auka hvata fyrir bændur að líta til geitabúskapar,“ segir Brynjar Þór. Skuldbindingar um verndun á búfjárstofninum Að mati Brynjars Þórs mætti gera betur varðandi greiðslur til geitabænda. „Upphæðin sem er til ráðstöfunar fyrir geitfjárræktina er ekki há og mætti leiða að því líkur að hún sé reyndar mjög lág þegar litið er til þeirra skuldbindinga sem gerðar hafa verið til verndunar á búfjárstofni í útrýmingarhættu. Stofninn hefur fylgt þjóðinni frá landnámi og haft sitt hlutverk þó það hafi minnkað. Stofninn hefur hugsanlega aldrei verið stór en þó nóg til að lifa af. Hann er mikilvæg erfðaauðlind sem okkur Íslendingum ber að vernda og því ber okkur líka að koma af virðingu fram við þá sem það gera.Ræktun stofnsins hefur í langan tíma verið drifinn áfram að miklu leyti af hugsjónarfólki sem hefur verið í kringum Geitfjárræktarfélag Íslands. Þó margt hafi dunið á virðast aðilar vera tilbúnir að halda áfram og gera sitt besta. Við þurfum því nauðsynlega að fá fleiri geitabændur til að blása lífi í greinina. Það þarf að hvetja þá geitabændur sem fyrir eru til að leita í þá styrki sem styðja við þeirra verkefni. Eins þarf að ná inn frekara fjármagni tileinkað verkefnum tengdum geitarækt og afurðum. Ég á auðvelt með að sjá tækifæri og framtíð geitfjárræktarinnar. Hvernig það verður virkjað er síðan verkefni framtíðarinnar. Ég hlakka til starfsins, samstarfs við geitabændur og velunnara stofnsins, við stjórn og starfsfólk Bændasamtaka Íslands og bjartrar framtíðar fyrir geitfjárrækt á Íslandi,“ segir Brynjar Þór. Geitfjárbændur: Brynjar í Gilhaga tekinn við formennsku – Engin kjötafurðastöð kaupir geitakjöt af bændum til markaðssetningar Brynjar heldur hér á hafrinum Bangsa Batmann. Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR Skoðaðu úrvalið á benni.is Krókhálsi 9 Sími: 590 2000 Virka daga 9 -17 Laugardaga 12 - 16 NGJ59 Porsche Macan S OHS62 PRG86 Porsche Taycan rafmagnsbíll Porsche Cayenne S E-Hybrid Platinum Hér er á ferðinni bifreið sem er allt í senn sportlegur og elegant! Leðuráklæði! Hiti í framsætum sem eru einnig með minni. Lyklalaust aðgengi, hiti í stýri o. o. – Einn fyrri eigandi! Verð: 5.990.000 kr. Skráður í ágúst 2014 | Ekinn 106.000 km. Einn eigandi. Litríkur bíll með öllu því helsta: Tvílit leðurinnrétting, stillanleg lo‰púða- ‹öðrun, léttstýri, minni fyrir bílstjórasæti, hiti í framsætum og stýri, lyklalaust aðgengi, 360 myndavelaker’, litað hita og hljóðeingrandi gler, Sport chrono pakki til að auka við sporteiginleika bílsins. Verð: 13.490.000 kr. Skráður í júní 2021 | Ekinn 27.000 km. Einn eigandi. Gríðarlega ottur og vel með farinn Cayenne E-Hybrid plug-in í Platinum útfærslu. Stillanleg lo‰púða‹öðrun, rafdri’ð dráttarbeisli, hiti í stýri og framsætum, glerþak, bakmyndavél, hæglokun á hurðum, svört xenon framljós, 21” álfelgur og margt eira. – Þessi er frábær í allt. Verð: 8.490.000 kr. Nýskráður í maí 2018 | Ekinn 50.000 km. Birt með fyrirvara um mynd- og textabrengl Upplifðu sanna ökugleði... Frá fundi loðdýrabænda á búgreinaþingi. Mynd / VH Staða loðdýrabænda er tæp að sögn formanns búgreinadeildar loðdýra vegna slæmrar afkomu í greininni í mörg ár og lítil von um að þeir geti haldið starfsemi sinni áfram ef ekkert breytist fljótlega. Átta loðdýrabú eru starfandi á landinu í dag og Einar E. Einarsson var endurkjörinn formaður búgreinadeildar loðdýra hjá Bændasamtökum Íslands. Þorbjörn Sigurðsson sagði sig úr stjórninni og Hjalti Logason var kosinn í hans stað. „Eins og staðan er í dag er alvarlega farið að þrengja að okkur loðdýrabændum og takmörk fyrir því hvað við getum haldið áfram við óbreytta stöðu og lágt verð.“ Einar segir að einna hæst hafi borið á fundi þeirra á búgreinaþingi erindi tveggja danskra gesta. „Annar var formaður Dansk mink, nýrra samtaka loðdýrabænda í Danmörku, og hinn fulltrúi frá Saga furs. Þau fóru yfir stöðuna á markaðnum, framleiðsluna í heiminum og hvað er að gerast í samskiptum við stjórnvöld í Danmörku og enduruppbyggingu á greininni þar. Að þeirra sögn hafa þrjú bú hafið eldi á minkum sem fluttir voru inn frá Spáni. Umfangið er ekki mikið, eða um fimm þúsund læður. Að sögn þeirra er enn þá áhugi á að kaupa loðdýr héðan en ekkert í hendi með það eins og er. Sjálfur tel ég að þegar öllu er á botninn hvolft og skinnasalan kemst í lag og verðið verður um og í kringum kostnaðarverð framleiðslunnar þá komist líf aftur í bransann og eitthvað jákvætt farið að gerast.“ /VH Loðdýrabændur: Alvarlega farið að þrengja að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.