Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 S.bogason Veðurstöðvar með eða án wifi Fjarlægð á milli skjá og vindhana er allt að 15 metrar Upplýsingar frá veðurstöð: - Vindátt, vindstyrkur, vindhviður - Kæling, hiti, raki og loftþrýsting - sólarupprás, sólsetur, sólbruni www.sbogason.is / pantanir@sbogason.is S: 854-8819 / Stóriteigur 10 - 270 Mosfellsbær HAFÐU ÖRYGGIÐ Í FYRIRRÚMI Gott úrval af vottuðum hífi- og festingabúnaði Ísfell er fullgildur meðlimur að Lifting Equipment Engineers Association sem eru leiðandi samtök hvað varðar vottun fyrirtækja sem nota og framleiða hífibúnað. ÞEKKING • ÞJÓNUSTA • GÆÐI isfell.is Sími 520 0500 -40% -20% 0% 20% 40% 60% 80% 100% Úrvalsnýting nauta f. 2017Úrvalsnýting auta f. 2017 Barón frá Bryðjuholti stendur efstur 2017 nautanna í dag, með 111 í einkunn. Mynd / NBÍ Um langa hríð hafa niðurstöður afkvæmarannsókna á nautum verið dregnar fram með þeim hætti að skoða úrvalsnýtingu innan hvers árgangs á myndrænan hátt. Þannig má gera sér nokkra grein fyrir hvaða áhrifa er að vænta í kúastofninum með notkun þeirra nauta sem valin eru til framhalds- notkunar. Nautaárgangurinn 2017 er sá síðasti sem valinn er til notkunar á grunni afkvæmarannsókna en nú hefur erfðamengisúrval tekið við og nautin valin út frá erfðamati byggðu á ætterni og arfgreiningum. Í fyrstu skulum við skoða hvað er verið að mæla á þennan hátt. Úrvalsnýting fyrir ákveðinn eiginleika sýnir yfirburði þeirra nauta, sem valin eru til framhaldsnotkunar, í samanburði við það sem mögulega hefði mátt ná fram ef aðeins hefði verið valið fyrir þeim eiginleika og engum öðrum. Þegar valið er fyrir mörgum eiginleikum á sama tíma er illmögulegt að ná fram jákvæðu vali fyrir þeim öllum á sama tíma. Ástæða þess er ekki hvað síst að margir þeirra eiginleika sem valið er fyrir eru neikvætt tengdir innbyrðis og því verður sú útkoma ákaflega ólíkleg. Hér verður litið á úrvalsnýtingu nauta sem fædd voru 2017 en afkvæmadómi þeirra lauk fyrir skömmu og ljóst að ekki munu fleiri naut koma til framhaldsnotkunar úr þessum árgangi. Árgangurinn var stór á okkar mælikvarða en hann taldi 35 naut. Til áframhaldandi notkunar komu ellefu naut, bæði mislengi og mismikið. Segja má að valið hafi verið nokkuð strangt og gerðar ríkar kröfur til þeirra nauta sem komust til notkunar sem reynd naut. Ef litið er á þá mynd sem kemur fram með nautin frá 2017 er hún mikið fremur hagstæð, það er úrvalsnýtingin er jákvæð fyrir flestum eiginleikum. Gagnvart þeim eiginleikum sem snúa að útliti og notagildi kúnna er hún nokkuð jákvæð en misgóð hvað afurðaeiginleikana snertir. Þannig eru þættir er lúta að magni mjög jákvæðir en neikvæðir varðandi hlutföll verðefna í mjólk, sérstaklega hlutfall próteins. Þessi niðurstaða er á margan hátt öndverð við niðurstöðuna fyrir 2016 árganginn þar sem útlits- og notagildisþættir komu sýnu betur út en afurðaeiginleikarnir. Áhrif þessara nauta verða því að öllum líkindum sterk hvað afurðagetu snertir en neikvæð um hlutföll verðefna. Hvað útlitsþætti varðar, sem og eiginleika eins og mjaltir og skap, verða áhrifin fremur jákvæð. Eðlilega kemur hæst úrvalsnýting fram í heildareinkunn, enda sú einkunn sem ræður hvað mestu um val nautanna, en einnig er úrvalsnýting fyrir afurðamagni há, það er fyrir mjólkur-, fitu- og próteinmagn. Auðvitað eru þessir þættir nátengdir þannig að magn fitu og próteins fylgir magni mjólkur. Í heildina verða áhrif árgangsins jákvæð hvað alla eiginleika nema efnaþættina varðar. Þessi niðurstaða, ásamt niðurstöðum fyrir síðustu árganga á undan, sýnir að enn er að vænta töluverðra framfara hvað snertir júgur- og spenagerð, mjaltir og skap á komandi árum. Framgangur afurðaeiginleikanna styrkist að hluta til með 2017 nautunum en neikvæðasta niðurstaðan er gagnvart próteinhlutfallinu. Áhrif árgangsins munu að öllum líkindum ekki verða veruleg á kúastofninn í heild sinni, sá tímapunktur er þeir koma fram ræður þar miklu um. Notkunartími þeirra verður frekar skammur þar sem yngri naut valin á grunni erfðamats banka á dyrnar og ryðja sér rúms. Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur í nautgriparækt Úrvalsnýting nautanna sem voru fædd 2017 Bændablaðið kemur næst 23. mars Guðmundur Jóhannesson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.