Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 61

Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 Sverrir Möller og Gutti LM SFÍ 2018. Myndir / Elísabet Gunnarsdóttir Smalahundafélag Íslands (SFÍ) er félag áhugamanna um ræktun, þjálfun og notkun Border collie fjárhunda en félagið var stofnað árið 1992 að fyrirmynd International Sheepdog Society (ISDS) í Bretlandi og er aðildarfélag í því. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu Gunnar Einarsson frá Daðastöðum, frumkvöðull og driffjöður félagsins um árabil, Lísbeth Sæmundsson og Björn Ólafsson. Meginmarkið félagsins er að stuðla að skráningu og ræktun smalahunda, beita sér fyrir fræðslu, keppnum og efla samstöðu meðal ræktenda og eigenda. Innan SFÍ/ ISDS hefur ræktunarstefnan miðast að því að rækta fyrst og fremst hunda með tilliti til eiginleika óháð útliti og hafa þannig haldið utan um vinnulínur Border collie. Samofin sögu Border collie ISDS var stofnað í Bretlandi 1906 og er saga þess samofin sögu Border collie tegundarinnar. Aðild SFÍ að ISDS þýðir að SFÍ skuldbindur sig til starfa eftir sömu meginviðmiðum og ISDS. Félagar í SFÍ geta sótt um aðild að ISDS í gegnum félagið og fá þannig rétt til að rækta hunda undir merkjum ISDS og skrá hunda í ættbók ISDS. Aðildin veitir SFÍ einnig rétt til að senda keppendur á heimsmeistaramót ISDS. Ættbók SFÍ, SNATI, er umfangsmikill gagnagrunnur sem félagið rekur í samstarfi við Bændasamtök Íslands. Félagar smalahundafélagsins hafa aðgang að grunninum og sjá tíkareigendur um að skrá sín got í Snata en þar koma meðal annars fram ættir, afkvæmi, árangur í keppnum auk þess sem eigendur hunda geta skráð eigendaskipti. Mikill ræktunaráhugi hefur verið þessi misserin og brýnum við fyrir félagsmönnum að skrá gotin í Snata til að halda áfram metnaðarfullri ræktun smalahunda hérlendis. Eins hvetjum við ræktendur til að sækja um aðild að ISDS, skrá got undan ISDS hundum þar og DNA prófa fyrir helstu sjúkdómum. Félagar í ISDS geta fengið afslátt af slíkum prófum. ISDS mælir með að ræktendur prufi fyrir a.m.k. CEA, IGS, SN og TNS (sbr. „ISDS bundle“ hjá Laboklin). Krafa er gerð um að allir ræktunarhundar séu prófaðir fyrir CEA (Collie Eye Anomaly). DNA próf sýnir fram á hvort viðkomandi hundur geti borið gen sem veldur ákveðnum sjúkdómi til afkvæma sinna. Ekki er heimilt að para saman tvo hunda ef þeir bera báðir slíkt gen. Nánari upplýsingar um þetta má m.a. nálgast inni á heimasíðunni: isds.org.uk. Námskeiðahald hefur verið flest ár á vegum SFÍ, meðal annars í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands, og verið lagður metnaður í að fá til landsins erlenda þjálfara sem hafa getið sér gott orð í þjálfun og keppnum. Að því sögðu eru einnig margir innlendir aðilar sem hafa komið að fræðslu og kennslu og er óumdeilt að þeirra hlutverk er og verður áfram mikilvægt. Félagsmenn innan SFÍ hafa forgang á skráningu námskeiða sem haldin eru á vegum félagsins en undantekningarlaust hefur áhuginn verið mikill og færri komist að en vilja. Smalahundafélagið stóð einnig fyrir vel lukkaðri félagsferð til Bretlands árið 2017 sem gaman væri að endurtaka. Landskeppnir smalahunda SFÍ hefur staðið fyrir Landskeppnum smalahunda frá 1994 auk þess sem landshlutadeildir innan félagsins hafa staðið fyrir minni keppnum. Markmið þessara keppna er ekki síst að hvetja menn til að temja hundana sína og hafa gaman af því að koma saman. Keppnir líkja eftir þeim verkefnum sem hundur og smali þurfa að leysa við búskapinn og gefa félögum kost á að sýna hæfni og eiginleika sinna hunda við tiltölulega jafnar aðstæður. Innan félagsins eru margir metnaðarfullir þjálfarar og hefur SFÍ rétt á að senda tvo hunda á heimsmeistaramót ISDS. Ísland tók fyrst þátt á heimsmeistaramóti 2017 en að þessu sinni verður mótið haldið á Írlandi dagana 13.- 16. september. Inni á heimasíðu félagsins má nálgast ýmsan fróðleik, fréttir og tilkynningar en einnig á Facebook-síðu félagsins, Smalahundafélag Íslands. Allir sem hafa áhuga geta haft samband við formann til að skrá sig í Smalahundafélag Íslands en einnig er hægt að skrá sig í gegnum SNATA. Enginn vafi er á notagildi góðra fjárhunda og ekki síst í þeim veruleika sem blasir við bændastéttinni með fækkun sauðfjárbúa og dreifðari byggð. Við í stjórn SFÍ viljum hvetja félagsmenn okkar til að halda áfram því góða starfi sem félagið byggir á og einnig bjóðum við nýja aðila velkomna. Aðalsteinn Aðalsteinsson, formaður SFÍ Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir, ritari SFÍ Jens Þór Sigurðarson, gjaldkeri SFÍ Elísabet Gunnarsdóttir, umsjónarmaður skráninga í Snata Smalahundafélag Íslands: Skráning, ræktun, fræðsla, þjálfun og keppni Gunnar Einarsson, stofnandi SFÍ og driffjöður félagsins í mörg ár, fær heiðursverðlaun félagsins. Derek, einn af fjölmörgum frábærum kennurum sem hafa komið til Íslands á vegum SFÍ. Íslensku keppendurnir á ISDS HM 2017 - hin hliðin. Íslensku keppendurnir á ISDS HM 2017. LAMBHELDU HLIÐGRINDURNAR Áfram hagstætt verð þrátt fyrir hækkanir á heimsmarkaði Lægsta verð 24.900 auk vsk ef keyptar eru fimm grindur eða fleiri Lamasett og loka aðeins kr. 3.900 settið, auk vsk. Breidd 420 cm. Hæð 110 cm. Möskvastærð 10 x 15 cm. Verðskrá hliðgrindur: 1 stk. kr. 29.900 auk vsk. 2-4 stk. kr. 27.900 auk vsk. 5 stk. eða fleiri 24.900 auk vsk. Upplýsingar og pantanir í síma 669 1336 og 899 1776. Afgreitt á Hvolsvelli og í Sundahöfn án aukakostnaðar. Sent hvert á land sem er. Jörðin Akurbrekka í Húnaþingi vestra, 500 Staður. Á Jörðinni er starfrækt sauðfjárbú og er hún vel staðsett við þjóðveg nr. 1 í Hrútafirði. Afar fallegt bæjarstæði, 550 hektarar lands frá fjöru upp á Hrútafjarðarháls. Jörðin selst með bústofni, ærgildi og tækjum til sauðfjárræktar. Verð: 95 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is Til sölu JANSEN landbúnaðar- og hobbý tæki í úrvali. Sláttuvélar, stauraborar, liðléttingar, smágröfur ofl. Svansson ehf, Melabraut 19, 220 Hafnarfirði. Sími : 6974900 Tölvupóstur : sala@svansson.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.