Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023 Hestamennska: Hugfangin af hestinum – Nanna Jónsdóttir er nýr formaður deildar hrossabænda „Ég hef alltaf verið hugfangin af hestinum okkar og aldrei vikið frá því að stunda hestamennsku. Ég kenni hross mín við Ásmundarstaði og var þátttakandi í hrossarækt foreldra minna, Sigríðar Sveinsdóttur og Jóns Á. Jóhannssonar. Núna er ég með mína eigin ræktun sem byggist á þeirra stofni. Hrossarækt er án efa með því skemmtilegra sem hægt er að stunda, maður er fljótur að sjá uppskeruna og árangurinn. Ég legg mikið upp úr því að kynnast ræktuninni minni vel og sér í lagi hryssunum áður en ég set þær í ræktun. Ég hef í gegnum tíðina ýmist reynt að ríða þeim og þjálfa upp að vissu marki áður en þær fara í dóm eða taka við þeim eftir dóm og fara helst með þær í allavega eina hestaferð. Frelsið sem við njótum hér á landi til að ferðast á hestum vítt og breitt um landið er ómetanlegt og mikilvægt bæði fyrir hesta og menn. Okkur ber að vernda gamlar reið- og þjóðleiðir fyrir komandi kynslóðir og hestamennskuna í heild sinni. Fátt toppar það að ríða út í náttúru landsins í góðra vina hópi á fallegu sumarkvöldi.“ Nanna segir fjölbreytni hesta- mennskunnar heillandi. „Hestamennska hefur marga anga og getur verið margs konar, hvort sem er fyrir áhugamenn eða fólk í atvinnustarfsemi. Henni fylgja svo mörg afleidd störf. Í raun gerum við okkur ekki grein fyrir hvað hesturinn spilar stóran þátt í mörgum rekstri og tengist fjölbreyttri atvinnustarfsemi beint og óbeint enda er engin yfirsýn yfir það hjá stjórnvöldum. Til að mynda er hestamennskan flokkuð meðal hinna ýmsu atvinnugreina innan Hagstofunnar sem skekkir heildarmyndina því innan flestra þessara flokka er ekki yfirsýn yfir hve stór hluti tilheyri nákvæmlega hestinum.“ Höfuðstöð hestsins Upprunaættbók íslenska hestsins, WorldFengur, er Nönnu ofarlega í huga. „Ég tel algjörlega tímabært að uppfæra ættbókina og alla umgjörð kringum hana. Í WorldFeng eru öll íslensk hross í heiminum skráð í miðlægan gagnagrunn sem ég tel vera lykilinn og undirstaða alls er við kemur hrossarækt. Það er afar mikilvægt að við öxlum ábyrgð sem upprunaland íslenska hestsins með öflugu utanumhaldi en í góðu samstarfi á alþjóðavísu.“ Nanna telur þörf á að marka formlega framtíðarstefnu um hlutverk íslenska hestsins á heimsvísu. „Sem upprunaland þurfum við að vera í leiðtoga- hlutverki og í því samhengi þá velti ég fyrir mér hvort ekki sé tímabært að koma á laggirnar mögulegum höfuðstöðvum íslenska hestsins hérlendis. Ef bara er horft í það að ríflega 10% ferðamanna koma til landsins vegna hestsins í afþreyingarskyni, þá ætti vel að vera grundvöllur fyrir því. Einnig væri mikilvægt að slíkar höfuðstöðvar kæmu að því að halda utan um um allt er viðkemur hestinum okkar. Síðan eigum við að sjálfsögðu að vera með stöðug augu á kynbótakerfinu og þróun þess, umgjörð og utanumhald, skoða það með gagnrýnum en sanngjörnum augum með hliðsjón af öllum öngum; sýnenda, ræktenda, starfsmanna, áhorfenda og dómara – þar reynir á virkni Fagráðs.“ Tryggja þarf fjármuni í utanumhald Deild hrossabænda er þriðja fjölmennasta deild Bændasam- takanna. Nanna segir mikilvægt að hrossabændur og ræktendur sameinist innan búgreina- deildarinnar. „Ég tel þó að ansi margir séu ekki skráðir í deildina en eiga vonandi eftir að skrá sig á næstu misserum. Vægi hrossabænda innan samtakanna eykst væntanlega í ljósi fjöldans og reynir þá enn meira á bæði okkur í stjórn búgreinadeildarinnar og einnig á stjórn Bændasamtaka Íslands að koma hrossaræktinni að í búvörusamningum, m.a. til að festa í sessi deild hrossabænda innan BÍ.“Hún segir að tryggja Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is Nanna býr á Miðhóli í Rangárvallasýslu ásamt sambýlismanni sínum, Guðmundi Garðarssyni frá Hólmi í Austur-Landeyjum, og börnum, Esju Sigríði, 14 ára og Jóni 8 ára. Mæðginin Nanna og Jón eru hér í útreiðatúr. Nanna situr Jónsson frá Ásmundarstöðum og Jón er á Pabbastelpu frá Ásmundarstöðum. Myndir / ÁL Nanna hefur verið í samstarfi við Evu Dyröy og komið að þjálfun hrossa í vatnsbrettaþjálfun ásamt stóðhestahaldi. Hér er stóðhesturinn Adrían frá Garðshorni á brettinu. Nanna Jónsdóttir var kjörin nýr formaður deildar hrossabænda hjá Bændasamtökunum á búgreinaþingi. Hún er uppalin á Ásmundar- stöðum í Rangárvallasýslu, en býr og stundar hrossarækt á Miðhóli þar skammt frá. Hún hefur komið að ýmsu er við kemur hestum, starfrækt hestasumarbúðir og sinnt stóðhestahaldi ásamt því að hafa komið að uppbyggingu á vatnsbrettaþjálfun. VIÐTAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.