Bændablaðið - 09.03.2023, Síða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
Hestamennska:
Hugfangin af hestinum
– Nanna Jónsdóttir er nýr formaður deildar hrossabænda
„Ég hef alltaf verið hugfangin af
hestinum okkar og aldrei vikið frá því
að stunda hestamennsku. Ég kenni
hross mín við Ásmundarstaði og var
þátttakandi í hrossarækt foreldra
minna, Sigríðar Sveinsdóttur og
Jóns Á. Jóhannssonar. Núna er ég
með mína eigin ræktun sem byggist
á þeirra stofni. Hrossarækt er án efa
með því skemmtilegra sem hægt
er að stunda, maður er fljótur að
sjá uppskeruna og árangurinn. Ég
legg mikið upp úr því að kynnast
ræktuninni minni vel og sér í lagi
hryssunum áður en ég set þær í
ræktun. Ég hef í gegnum tíðina
ýmist reynt að ríða þeim og þjálfa
upp að vissu marki áður en þær
fara í dóm eða taka við þeim
eftir dóm og fara helst með þær
í allavega eina hestaferð. Frelsið
sem við njótum hér á landi til að
ferðast á hestum vítt og breitt um
landið er ómetanlegt og mikilvægt
bæði fyrir hesta og menn. Okkur
ber að vernda gamlar reið- og
þjóðleiðir fyrir komandi kynslóðir
og hestamennskuna í heild sinni.
Fátt toppar það að ríða út í náttúru
landsins í góðra vina hópi á fallegu
sumarkvöldi.“
Nanna segir fjölbreytni hesta-
mennskunnar heillandi.
„Hestamennska hefur marga
anga og getur verið margs konar,
hvort sem er fyrir áhugamenn eða
fólk í atvinnustarfsemi.
Henni fylgja svo mörg afleidd
störf. Í raun gerum við okkur ekki
grein fyrir hvað hesturinn spilar
stóran þátt í mörgum rekstri og
tengist fjölbreyttri atvinnustarfsemi
beint og óbeint enda er engin yfirsýn
yfir það hjá stjórnvöldum. Til að
mynda er hestamennskan flokkuð
meðal hinna ýmsu atvinnugreina
innan Hagstofunnar sem skekkir
heildarmyndina því innan flestra
þessara flokka er ekki yfirsýn yfir
hve stór hluti tilheyri nákvæmlega
hestinum.“
Höfuðstöð hestsins
Upprunaættbók íslenska hestsins,
WorldFengur, er Nönnu ofarlega í
huga. „Ég tel algjörlega tímabært að
uppfæra ættbókina og alla umgjörð
kringum hana. Í WorldFeng eru öll
íslensk hross í heiminum skráð í
miðlægan gagnagrunn sem ég tel
vera lykilinn og undirstaða alls er
við kemur hrossarækt. Það er afar
mikilvægt að við öxlum ábyrgð
sem upprunaland íslenska hestsins
með öflugu utanumhaldi en í góðu
samstarfi á alþjóðavísu.“
Nanna telur þörf á að marka
formlega framtíðarstefnu um
hlutverk íslenska hestsins á
heimsvísu. „Sem upprunaland
þurfum við að vera í leiðtoga-
hlutverki og í því samhengi þá velti
ég fyrir mér hvort ekki sé tímabært
að koma á laggirnar mögulegum
höfuðstöðvum íslenska hestsins
hérlendis. Ef bara er horft í það
að ríflega 10% ferðamanna koma
til landsins vegna hestsins í
afþreyingarskyni, þá ætti vel að
vera grundvöllur fyrir því.
Einnig væri mikilvægt að slíkar
höfuðstöðvar kæmu að því að
halda utan um um allt er viðkemur
hestinum okkar.
Síðan eigum við að sjálfsögðu
að vera með stöðug augu á
kynbótakerfinu og þróun þess,
umgjörð og utanumhald, skoða það
með gagnrýnum en sanngjörnum
augum með hliðsjón af öllum
öngum; sýnenda, ræktenda,
starfsmanna, áhorfenda og dómara
– þar reynir á virkni Fagráðs.“
Tryggja þarf fjármuni
í utanumhald
Deild hrossabænda er þriðja
fjölmennasta deild Bændasam-
takanna. Nanna segir mikilvægt
að hrossabændur og ræktendur
sameinist innan búgreina-
deildarinnar. „Ég tel þó að ansi
margir séu ekki skráðir í deildina
en eiga vonandi eftir að skrá sig á
næstu misserum.
Vægi hrossabænda innan
samtakanna eykst væntanlega
í ljósi fjöldans og reynir þá
enn meira á bæði okkur í stjórn
búgreinadeildarinnar og einnig
á stjórn Bændasamtaka Íslands
að koma hrossaræktinni að í
búvörusamningum, m.a. til að
festa í sessi deild hrossabænda
innan BÍ.“Hún segir að tryggja
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Nanna býr á Miðhóli í Rangárvallasýslu ásamt sambýlismanni sínum, Guðmundi Garðarssyni frá Hólmi í Austur-Landeyjum, og börnum, Esju Sigríði, 14 ára og Jóni 8 ára. Mæðginin Nanna og
Jón eru hér í útreiðatúr. Nanna situr Jónsson frá Ásmundarstöðum og Jón er á Pabbastelpu frá Ásmundarstöðum. Myndir / ÁL
Nanna hefur verið í samstarfi við Evu Dyröy og komið að þjálfun hrossa í vatnsbrettaþjálfun ásamt stóðhestahaldi.
Hér er stóðhesturinn Adrían frá Garðshorni á brettinu.
Nanna Jónsdóttir var kjörin nýr formaður deildar hrossabænda hjá
Bændasamtökunum á búgreinaþingi. Hún er uppalin á Ásmundar-
stöðum í Rangárvallasýslu, en býr og stundar hrossarækt á Miðhóli þar
skammt frá. Hún hefur komið að ýmsu er við kemur hestum, starfrækt
hestasumarbúðir og sinnt stóðhestahaldi ásamt því að hafa komið að
uppbyggingu á vatnsbrettaþjálfun.
VIÐTAL