Bændablaðið - 09.03.2023, Qupperneq 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. mars 2023
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Skipt var um formann deildar
geitfjárbænda á nýliðnu búgreina-
þingi og tekur Brynjar Þór
Vigfússon, bóndi í Gilhaga í
Öxarfirði, við embættinu af Önnu
Maríu Flygenring í Hlíð.
Í Gilhaga er bæði sauð- og
geitfjárrækt, auk býflugna- og
skógræktar. Þá er heima á bænum
ullarvinnsla og gestastofa.
„Við fjölskyldan flytjum á sveitabæ
fjölskyldunnar og kaupum hana af
Brynjari Halldórssyni, afa mínum,
2018 og byrjum þá með nokkrar
kindur og síðar fjórar geitur árið eftir.
Við byrjum svo uppbyggingu og
standsetningu Ullarvinnslu Gilhaga
árið 2019 og opnum hana um
sumarið 2020,“ segir Brynjar Þór um
ábúðarsögu sína í Gilhaga.
Markmiðið að fjölga
kindum og geitum
Hann segir að markmiðið sé að fjölga
í bústofnunum. „Núna erum við með
um 90 kindur og 15 geitur ásamt
nokkrum vel völdum húsdýrum til
að fullkomna sveitalífið. Markmiðið
er að fjölga kindum og geitum
áfram til að nýta bæði hús og jörð,
ásamt því að halda áfram að sinna
Ullarvinnslunni og gestastofunni –
en stöðugur uppgangur hefur verið í
aðsókn að henni frá opnun.
Skógrækt hefur verið stunduð á
jörðinni til fjölda ára. Núna hafa verið
skapaðir margir yndisreitir vítt og
breitt um jörðina sem við vonumst
til að fjölga og betrumbæta með tíð
og tíma.“
Lagfæringar á skýrslu-
haldinu í Heiðrúnu
Að sögn Brynjars voru ýmis almenn
mál tengd geitfjárræktinni rædd
á búgreinaþinginu. „Við fengum
kynningu á væntanlegum breytingum
sem eru í farvatninu varðandi Heiðrúnu,
skýrsluhaldsforriti geitfjárræktarinnar
á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins (RML). Hún var gerð sem
afrit af Fjárvís á sínum tíma og hafa
verið ansi margir annmarkar á henni
undanfarin ár og nú er loks kominn
skriður í að laga það sem þar þarf að
laga. Þar má nefna að teknir verða út
hlutir sem eru ekki tengdir á neinn hátt
geitum og ýmis rangnefni, allt mun það
vonandi á endanum gera skýrsluhaldið
ánægjulegra fyrir geitabændur.
Við þökkum RML vel fyrir að
málið sé komið á dagskrá.“
Engin afurðastöð
kaupir geitakjöt bænda
Verkefni Pure North í Hveragerði
var að sögn Brynjars rætt á þinginu,
sem snýst um framleiðslu á
girðingarstaurum úr rúlluplasti.
Geitabændur telja verkefnið þarft
og er vonast til að hægt verði að
endurnýta sem mest af rúlluplasti
fyrir verkefnið.
„Ýmislegt annað var rætt eins og
mikilvægi þess að nýta afurðir geita
og koma þeim á markað. Mjaltir
og mjólkurvinnsla er spennandi hjá
mörgum geitabændum um landið og
má gera ráð fyrir að meira pláss sé á
markaði þar sem bændur segja vörur
seljast vel.
Þeir sem vinna kjötafurðir geita
eru að vinna einstaklega gott og þarft
starf. Eins og staðan er núna er engin
afurðastöð sem kaupir geitakjöt og
þurfa því bændur að koma því sjálfir
á markað með tilheyrandi tilstandi.
Væri gaman að sjá hvort einhverjir
sjái tækifæri í kjötvinnslu og hagræða
þannig í þágu allra geitabænda.“
Miklir möguleikar í fiðuvinnslu
Brynjar telur að möguleikar í vinnslu
á fiðu séu einnig miklir. „En þar þurfa
bændur að gera meira og betur í að
kemba og hirða um fiðuna ásamt því
að senda til vinnslu. Eins og staðan er í
dag er einungis Uppspuni í Ásahreppi
sem vinnur geitafiðu fyrir bændur.
Þar sem magn af hverri geit getur
verið frá 100–150 grömm þarf nokkrar
geitur til að ná upp í vinnanlegt
magn en gott verð hefur fengist fyrir
afurðirnar sem seljast vel.
Á síðasta ári var haldið eitt
námskeið í kembingu geita á vegum
Landbúnaðarháskóla Íslands í
samstarfi við Geitfjárræktarfélag
Íslands. Gæði fiðunnar eru mjög mikil
og slaga hátt í gæði bestu kasmírullar
en í íslensku fiðunni eru þó helst til
stuttir þræðir, ásamt aðeins of miklu
af grófum þráðum sem þarf að ná úr
– sem gerir alla vinnslu dýrari.
Tilraunir hafa verið gerðar með
að blanda geitafiðu og lambsull og er
útkoman út úr því alveg einstaklega
mjúkt og gott band. Þar nýtist
styrkurinn úr toghárum lambanna,
þelið og fiðan mynda síðan einstaklega
mjúkt band viðkomu.“
Óttast að heldur hafi
fækkað í stofninum
„Frá mínum bæjardyrum séð eru
mikil tækifæri í geitfjárræktinni. Hins
vegar má kannski ekki mikið út af
bregða þar sem stofninn er enn þá við
hættumörk. Ég hef ekki heyrt nýjustu
tölur um fjölda dýra í landinu en við í
stjórn óttumst að heldur hafi fækkað
frá síðustu tölum, en fyrir rúmu ári
síðan voru einstaklingar rétt undir
1.700 á landinu.
Til þess að stofninn geti farið af
lista yfir dýr í útrýmingarhættu þarf að
komast í 4.800 til 7.200 vetrarfóðruð
kvendýr.
Því þarf að bregðast við og reyna
allt hvað hægt er að gera til að stækka
og styrkja stofninn. Hafrastöðin er
mikilvægur þáttur í að styrkja stofninn,
mættu bændur nýta stöðina betur til að
auka erfðafræðilegan fjölbreytileika
stofnsins. Einnig þarf að líta til þess að
fjölga búum með um 100 til 200 geitur.
Til þess að það náist þarf að sýna fram
á að afurðir séu metnar að verðleikum
og auka aðgengi á mörkuðum. Eitthvað
er um að veitingastaðir séu að taka inn
geitakjöt og er það vel.
Leita þarf allra leiða til að
auka hvata fyrir bændur að líta til
geitabúskapar,“ segir Brynjar Þór.
Skuldbindingar um verndun
á búfjárstofninum
Að mati Brynjars Þórs mætti gera betur
varðandi greiðslur til geitabænda.
„Upphæðin sem er til ráðstöfunar
fyrir geitfjárræktina er ekki há og
mætti leiða að því líkur að hún sé
reyndar mjög lág þegar litið er til
þeirra skuldbindinga sem gerðar hafa
verið til verndunar á búfjárstofni í
útrýmingarhættu.
Stofninn hefur fylgt þjóðinni frá
landnámi og haft sitt hlutverk þó
það hafi minnkað. Stofninn hefur
hugsanlega aldrei verið stór en þó
nóg til að lifa af. Hann er mikilvæg
erfðaauðlind sem okkur Íslendingum
ber að vernda og því ber okkur líka
að koma af virðingu fram við þá
sem það gera.Ræktun stofnsins hefur
í langan tíma verið drifinn áfram að
miklu leyti af hugsjónarfólki sem hefur
verið í kringum Geitfjárræktarfélag
Íslands. Þó margt hafi dunið á virðast
aðilar vera tilbúnir að halda áfram
og gera sitt besta. Við þurfum því
nauðsynlega að fá fleiri geitabændur
til að blása lífi í greinina. Það þarf að
hvetja þá geitabændur sem fyrir eru
til að leita í þá styrki sem styðja við
þeirra verkefni. Eins þarf að ná inn
frekara fjármagni tileinkað verkefnum
tengdum geitarækt og afurðum.
Ég á auðvelt með að sjá tækifæri og
framtíð geitfjárræktarinnar. Hvernig
það verður virkjað er síðan verkefni
framtíðarinnar.
Ég hlakka til starfsins, samstarfs við
geitabændur og velunnara stofnsins,
við stjórn og starfsfólk Bændasamtaka
Íslands og bjartrar framtíðar
fyrir geitfjárrækt á Íslandi,“ segir
Brynjar Þór.
Geitfjárbændur:
Brynjar í Gilhaga tekinn við formennsku
– Engin kjötafurðastöð kaupir geitakjöt af bændum til markaðssetningar
Brynjar heldur hér á hafrinum Bangsa Batmann.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á benni.is
Krókhálsi 9
Sími: 590 2000
Virka daga 9 -17
Laugardaga 12 - 16
NGJ59
Porsche Macan S
OHS62 PRG86
Porsche Taycan rafmagnsbíll Porsche Cayenne S E-Hybrid Platinum
Hér er á ferðinni bifreið sem er allt í senn
sportlegur og elegant! Leðuráklæði! Hiti í
framsætum sem eru einnig með minni.
Lyklalaust aðgengi, hiti í stýri o. o. – Einn
fyrri eigandi!
Verð: 5.990.000 kr.
Skráður í ágúst 2014 | Ekinn 106.000 km.
Einn eigandi. Litríkur bíll með öllu því helsta:
Tvílit leðurinnrétting, stillanleg lopúða-
öðrun, léttstýri, minni fyrir bílstjórasæti,
hiti í framsætum og stýri, lyklalaust
aðgengi, 360 myndavelaker, litað hita og
hljóðeingrandi gler, Sport chrono pakki til að
auka við sporteiginleika bílsins.
Verð: 13.490.000 kr.
Skráður í júní 2021 | Ekinn 27.000 km.
Einn eigandi. Gríðarlega ottur og vel með
farinn Cayenne E-Hybrid plug-in í Platinum
útfærslu. Stillanleg lopúðaöðrun, rafdrið
dráttarbeisli, hiti í stýri og framsætum,
glerþak, bakmyndavél, hæglokun á hurðum,
svört xenon framljós, 21” álfelgur og margt
eira. – Þessi er frábær í allt.
Verð: 8.490.000 kr.
Nýskráður í maí 2018 | Ekinn 50.000 km.
Birt með fyrirvara um mynd- og textabrengl
Upplifðu
sanna ökugleði...
Frá fundi loðdýrabænda á búgreinaþingi. Mynd / VH
Staða loðdýrabænda er tæp að
sögn formanns búgreinadeildar
loðdýra vegna slæmrar afkomu í
greininni í mörg ár og lítil von um
að þeir geti haldið starfsemi sinni
áfram ef ekkert breytist fljótlega.
Átta loðdýrabú eru starfandi á
landinu í dag og Einar E. Einarsson
var endurkjörinn formaður
búgreinadeildar loðdýra hjá
Bændasamtökum Íslands. Þorbjörn
Sigurðsson sagði sig úr stjórninni og
Hjalti Logason var kosinn í hans stað.
„Eins og staðan er í dag er
alvarlega farið að þrengja að okkur
loðdýrabændum og takmörk fyrir
því hvað við getum haldið áfram
við óbreytta stöðu og lágt verð.“
Einar segir að einna hæst hafi borið
á fundi þeirra á búgreinaþingi erindi
tveggja danskra gesta. „Annar var
formaður Dansk mink, nýrra samtaka
loðdýrabænda í Danmörku, og hinn
fulltrúi frá Saga furs. Þau fóru yfir
stöðuna á markaðnum, framleiðsluna
í heiminum og hvað er að gerast
í samskiptum við stjórnvöld í
Danmörku og enduruppbyggingu á
greininni þar.
Að þeirra sögn hafa þrjú bú hafið
eldi á minkum sem fluttir voru
inn frá Spáni. Umfangið er ekki
mikið, eða um fimm þúsund læður.
Að sögn þeirra er enn þá áhugi á
að kaupa loðdýr héðan en ekkert í
hendi með það eins og er. Sjálfur
tel ég að þegar öllu er á botninn
hvolft og skinnasalan kemst í lag
og verðið verður um og í kringum
kostnaðarverð framleiðslunnar þá
komist líf aftur í bransann og eitthvað
jákvætt farið að gerast.“ /VH
Loðdýrabændur:
Alvarlega farið að þrengja að