Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Blaðsíða 16
í eftirfarandi umræðum komu fram allmargar breytíngartíllögur, sem vís-
að var til allsherjarnefndar þingsins.
Kjara- og efnahagsmál
Fyrsti framsögumaður var Ásmundur Stefánsson. Fór hann yfir tillögur
um kjaramál, sem lágu fyrir þinginu. Síðan ræddi hann gang samningamála
frá síðasta þingi. Hann ræddi ennfremur um málefni farandverkafólks og
aukinn rétt launþega í veikinda- og slysaforföllum. Óskaði hann þess að
þingið samþykkti að boða til ráðstefnu í mars-apríl á næsta ári til að móta
stefnu í samningamálum.
Annar framsögumaður var Björn Þórhallsson, sem ræddi um skattamál.
Ræddi hann um nýju skattalögin og vankanta á þeim. Taldi hann eðlilegt
að álykta um skattamálin og þörf á því að vera vakandi yfir þeim ekki síður
en launa- og vísitölumálum.
Miklar umræður urðu um þessi málefni og nokkrar tillögur bornar fram,
sem vísað var til kjara- og efnahagsmálanefndar þingsins.
Lagabreytingar
Framsögumaður var Þórir Daníelsson. Lýsti hann þeim breytingum sem
laga- og skipulagsnefnd til undirbúnings þingsins lagði til að gerðar yrðu
á lögum ASÍ. Kvað hann betur þurfa að endurskoða lög ASÍ, ýmislegt væri
þar óljóst og villandi. Þá taldi hann sambandsþingin vera orðin af stór og
ekki geta verið stefnumótandi af þeim sökum. Hvatti hann til athugunar á
öllum skipulagsmálum hreyfingarinnar á milli þinga, og lagði til að milli-
þinganefnd skilaði tillögum til afgreiðsu á sambandsþingi 1984.
Miklar umræður urðu um skipulagsmálin og lagðar fram tillögur um það
efni, sem vísað var til skipulags- og laganefndar þingsins.
Fræðslu- og menningarmál
Framsögu hafði Stefán Ögmundsson. Fór hann yfir drög að ályktun um
fræðslu- og menningarmál, sem lá fyrir þinginu. Taldi hann veigamestu
mál MFA Félagsmálaskóla Alþýðu og trúnaðarmannanámskeiðin. Ræddi
hann um útgáfustarfsemi hreyfingarinnar, taldi útgáfu Vinnunnar mikinn
stuðning við fræðslustarfið og að fréttabréf ASÍ og blöð einstakra félaga
hefðu skilað upplýsingum til félagsmanna. Um sögusafnið sagði hann að all-
nokkuð hefði áunnist í eflingu þess, en þar vanti skipulagsstarf, sem orsakist
af fjárskorti og mannfæð Taldi hann árangur fræðslustarfs MFA best koma
14