Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Blaðsíða 46
tölvur má ekki vera of tæknilegs eðlis, heldur þannig úr garði gerð, að
mönnum sé auðvelduð gagnrýnin könnun á notkun tölvutækninnar.
Tölvur hafa fram til þessa mest verið notaðar til þess að safna og vinna úr
upplýsingum. Yfirleitt er það atvinnurekandinn, sem hefur haft eftirlit með
og stjórnað upplýsingasöfnuninni og notað þær. Utbreiðsla tölvunnar hefur
þannig styrkt stöðu atvinnurekenda. En þannig þarf þetta ekki að vera.
Tölvutæknina má nota til þess að auka upplýsingastreymið til starfsfólksins
bæði að því er varðar dagleg störf og eins til þess að starfsmenn fái heildar-
yfirsýn yfir fyrirtækið og ráðstöfun á fjármagni þess.
Alþýðusamband íslands mun berjast fyrir því, að með samningum eða lög-
gjöf verði eftirtalin atriði tryggð með viðunandi hætti:
1. Meðákvörðunarréttur og neitunarvald starfsfólks og verkalýðsfélaga þess
um eftirtalin mál er lúta að nýrri tcekni
— Hvaða tækni nota skuli.
— A hvaða hátt þeirri tækni skuli beitt.
— Hve hratt hin nýja tækni skuli tekin í notkun.
— Hvaða áhrif hin nýja tækni hafi á vinnutíma starfsfólks og starfsmanna-
fjölda fyrirtækjanna.
2. Tölvukerfi, sem notuð eru við stjórnun og eftirlit.
— Verkalýðsfélögum á hverjum stað verði tryggður réttur til þess að hafa
áhrif á tölvukerfi, sem hafa með stjórnun og eftirlit að gera þannig að
félögin geti hafnað breytingum á kerfum, sem þegar eru í gangi eða
krafist breytinga, sem þau telja nauðsynlegar.
3. Félagslegur kostnaður við tölvumál og upplýsingaskylda atvinnurekenda.
— Sú skylda verði lögð á atvinnurekendur að þeir geri grein fyrir félagsleg-
um kostnaði við tæknibreytingar auk efnahagslegra og tæknilegra.
— Atvinnurekendum verði gert skylt að hafa samráð við viðkomandi verka-
lýðsfélög um leið og athugun hefst á því hvort ný tækni skuli tekin i
notkun á viðkomandi vinnustað.
4. Persónulegar upplýsingar
— Akveðið verði hvaða persónulegum upplýsingum sé heimilt að safna og
um varðveislu og notkun þeirra, þannig að komið sé í veg fyrir að at-
vinnurekendur geti notað upplýsingar er stríði gegn persónulegri frið-
helgi starfsmanna.
44