Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Blaðsíða 61
sjómönnum á fjarlægum miðum. Það er krafa þingsins að Landhelgis-
gæslan verði efld.
5. Þingið bendir á nauðsyn betri og fullkomnari læknisþjónustu fyrir sjó-
menn en nú er. Enda þótt heilbrigðisreglugerð mæli svo fyrir, að með
heilsufari sjómanna skuii fylgst, er í flestum tilfellum við ráðningu
sjómanna í engu eftir þessari reglugerð farið.
Sjómönnum er hvergi fundinn staður né stund til alhliða læknis-
skoðunar á vegum þess atvinnufyrirtækis sem þeir starfa hjá, og standa
því langt að baki öðrum launþegum í þessu landi.
Þingið vill benda á að heilbrigðiseftirlit og læknisþjónusta við sjó-
menn í nágrannalöndum okkar og Bandaríkjunum stendur mjög fram-
arlega. Því skorar þingið á Alþingi að ætla fé til áframhaldandi gagna-
upplýsinga og tillögugerðar á þessu sviði, sem þegar er að unnið hjá
Sjómannafélagi Reykjavíkur.
6. Dánar- og slysatrygging sjómanna tekur hækkunum á 6 mánaða fresti
samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra, samkvæmt lögum nr. 25/1977,
en þar segir svo: „Nú verður breyting á vikukaupi í almennri verka-
mannavinnu og skal ráðherra þá innan 6 mánaða breyta upphæðum
bóta samkvæmt bráðabirgðaákvæðum þessum."
Þingið gerir þá kröfu á stjórnvöld að breyta lögum þessum þannig,
að tryggingafjárhæðir hækki stórlega og taki breytingum samfara
breytingum á framfærsluvísitölu 1. janúar og 1. júlí.
Þá gerir þingið þá kröfu til stjórnvalda um að breyta lögum um
bótagreiðslur við örorku- eða dauðaslys sjómanna á þann veg, að bóta-
greiðslur greiðist í samræmi við þá tryggingarfjárhæð er gildir á
greiðsludegi.
Með tilliti til þeirrar aðstöðu sem sjómenn eru í, í starfi sínu, ef
upp koma alvarleg veikindi hjá sjómanni á hafi úti, skorar þingið á
löggjafarvaldið að setja nú þegar lög um líftryggingu sjómanna þegar
þeir eru við störf sín.
Þingið bendir á, að fiskimenn eru eina stétt þessa lands, sem ekki
nýtur tryggingarréttar við slys, sem veldur örorku eða dauða í frítíma
sínum. Því skorar þingið á væntanlega samninganefnd SSÍ að fylgja
máli þessu eftir til samræmis við ákvæði þessa efnis í gildandi far-
mannasamningum.
7. Þingið fagnar þeirri reglugerð sem út er komin varðandi aðbúnað, holl-
ustuhætti og öryggi í skipum og skorar á Siglingamálastofnun ríkisins
að fylgja henni nú þegar fast eftir.
59