Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Blaðsíða 56
— Að verkafólk velji, sem fyrst eftir að lögin taka gildi, öryggistrúnaðar-
menn, fulltrúa í öryggisnefndir vinnustaða og öryggisnefndir starfs-
greina.
—■ Að hið fyrsta verði samdar og staðfestar reglugerðir varðandi framkvæmd
laganna og fyrir hinar ýmsu starfsgreinar.
—■ Að samtök verkafólks leiti eftir samstarfi við Vinnueftirlit ríkisins varð-
andi fræðslu og upplýsingar um hættur á vinnustöðum og varnir gegn
þeim, svo og um nýja tækni og þekkingu, sem stuðlað geti að umbótum
á aðbúnaði á vinnustöðum.
— Að stjórnvöld tryggi nægt fjármagn til framkvæmdar á lögunum og að
Alþingi breyti til hækkunar tillögu í fjárlagafrumvarpi um fjárframlag
til Vinnueftirlits ríkisins til samræmis við fjárhagsáætlun Vinnueftirlits-
ins fyrir árið 1981.
— Að ASÍ og aðrir aðilar vinnumarkaðarins gangi eftir því að fyrirheit í 4.
bráðbirgðaákvæði laganna, um útvegun f jármagns til lánveitinga til fyr-
irtækja sem þurfa að framkvæma endurbætur á starfsaðstöðu verkafólks
eða til þess að bæta aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum,
komi til framkvæmda strax og lögin taka gildi 1. janúar 1981.
—■ Að ASÍ og verkalýðsfélög og sambönd innan þess fylgist vel með því og
gæti þess að réttindi verkafólks og verkalýðssamtaka sem tryggð eru í
lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum,
verði ekki skert.
Nejndin leggur til að eftirfarandi tillaga og greinargerð með henni
frá fulltrúum SBM verði saniþykkt:
34. þing Alþýðusambands íslands samþykkir að gera árið 1982 að sér-
stöku vinnuverndarári.
Tilgangur þess er sá, að með kynningu, fræðslu og umræðum um aðbún-
að, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum verði vakin veruleg athygli á þessu
hagsmunamáli verkafólks og ástand þessara mála fært til betri vegar.
Komið skal á fót sérstakri framkvæmdanefnd vinnuverndarársins, sem
skipuð verði fulltrúum eftirtaldra aðila: 2 frá miðstjórn ASÍ og einn frá
hverjum eftirgreindum: Verkamannasambandi íslands, Sjómannasambandi
íslands, Rafiðnaðarsambandi fslands, Sambandi byggingamanna, Málm- og
skipasmiðasambandi íslands, Landssambandi ísl. verslunarmanna, Landssam-
bandi vörubifreiðastjóra, Landssambandi iðnverkafólks og Menningar- og
fræðslusambandi alþýðu.
Undirbúningur vinnuverndarársins skal hefjast strax á árinu 1981. Meðal
54