Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Blaðsíða 17
fram hjá Félagsmálaskólanum, en hann hafa sótt um 300 manns á 16 Önnum
og á trúnaðarmannanámskeið hafi komið hundruð manna frá mgum félaga.
Nokkrar umræður urðu um þessi mál og tillögur bornar upp.
Vinnuverndarmál
Framsögumaður var Guðjón Jónsson. Fór hann yfir drög að ályktun, sem
lá fyrir þinginu. Rakti hvað gerst hefði í vinnuverndarmálum á tímabilinu
og hvað hefði náðst fram. Skýrði hann frá nýjum lögum um aðbúnað, holl-
ustuhætti og öryggiseftirlit á vinnustöðum, sem taka gildi um nk. áramót,
og sigði frá könnun á vinnustöðum um ástand í þeim efnum. í umræðum
komu fram tillögur, sem vísað var til þingnefndar.
Aívinnuiýðræði og tölvumál
Fyrsti framsögumaður var Fíannes Þ. Sigurðsson. Hann talaði um atvinnu-
lýðræði og skýrði drög að ályktun. Hann kvað atvinnulýðræði verða að veru-
ieika annað hvort með löggjöf eða samningum, en hann taldi hið síðar
nefnda réttari leið.
Annar framsögumaður var Magnús Einar Sigurðsson, sem skýrði drög að
ályktun um tölvumál, sem lágu fyrir þinginu. Hann kvað örtölvutæknina
hafa leitt til þess að heilum starfsstéttum væri sagt upp vinnu, og að heildar-
samtökin yrðu að taka á þessum málum. Lagði hann til að miðstjórn ASÍ
skipaði starfshóp til að fjalla um tölvumál fyrir kjaramálaráðstefnu ASÍ.
Nokkrar umræður urðu og tvær tillögur lagðar fram.
Lífeyrismál
Framsögumaður var Eðvarð Sigurðsson. Kynnti hann drög að ályktun um
lífeyrismál. Hann kvað stefnuna í lífeyrismálum, sem fram kom á síðasta
þingi vera megin undirstöðu draganna. Aðalatriðið væri að allir fái sömu
b'feyrisréttindi, hvar sem þeir vinna, en mikill mismunur sé í dag varðandi
lífeyrisrétt. Skýrði hann frá kröfum um lífeyrismál, sem lagðar voru fram í
síðustu samningagerð og hvað fengist hefði út úr samningunum. Ennfremur
ræddi hann um fjárhagsstöðu atvinnuleysistryggingasjóðs. Hann kvað 14
manna nefndina hafa gert ítarleg drög að frumvarpi um atvinnuleysistrygg-
mgasjóð. Hann kvað undirbúning að einum lífeyrissjóði fyrir alla landsmenn
langt kominn, en trygging væri ekki fyrir viðunandi lífeyri nema með gegn-
umstreymiskerfi.
Nokkrar umræður urðu og tillögur lagðar fram.
15