Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Page 53
11) Þá vill þingið ítreka þá samþykkt síðasta þings, að verkalýðsfélögin
„velji fræðslunefndir eða fræðslufulltrúa, sem séu þess megnugir að
vekja til starfa einstaklinga og hópa innan félaganna. Fræðslufulltrú-
arnir verði samstarfsmenn MFA". Þingið vill ennfremur ítreka þá
samþykkt, „að verkalýðsfélögin stórauki það fé, sem ætlað er til
fræðslustarfa", og stefnt verði að því að koma á fót fræðslumiðstöðv-
um í einstökum landshlutum.
12) 34. þing ASÍ vill ennþá einu sinni ítreka þær samþykktir síðustu
þinga, og telur það grundvallarskilyrði fræðslu- og menningarstarfs,
„að endurvakin sé virðingin fyrir frístundinni. Afnumin verði þörfin
fyrir aukavinnu sem tekjustofni". Það sé ófrávíkjanleg krafa íslenskrar
verkalýðshreyfingar að unnt sé að lifa af dagvinnutekjum og verka-
lýðsfélögin setji hið fyrsta ákveðið mark í leyfilega yfirvinnu svo sem
tíðkast í öllum löndum, sem eiga sér þroskaða verkalýðshreyfingu.
13) 34. þing ASÍ telur að MFA þurfi að styrkja og hvetja minni aðildar-
félögin til þátttöku í fræðslu- og menningarstarfi verkalýðshreyfing-
arinnar. Æskilegt er að þeim verði auðveldað með fjárframlögum að
senda fólk á trúnaðarmannanámskeið og Félagsmálaskóla alþýðu.
14) Að lokum vill 34. þing ASÍ leggja áherslu á mikilvægi eftirfarandi orða
um menntunarmál, í stefnuyfirlýsingu ASÍ, sem samþykkt var á síð-
asta þingi:
„Afskipti verkalýðshreyfingarinnar í menntunarmálum miða að því
51