Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Síða 68
nugmyndum sem stefna að skerðingu kaupmáttar. Slíkum aðgerðum yrði
mætt af fullri hörku.
IV.
A undanförnum árum hefur atvinnuleysi verið helsta vandamál í flestum
nágrannalöndum okkar og á þessu ári eru yfir 20 milljónir manna atvinnu-
lausir í þróuðum iðnríkjum. Á íslandi hefur ekki verið almennt atvinnuleysi
undanfarin ár. 34. þing ASÍ minnir hins vegar á að á síðastliðnum fjórum
árum fluttust á fjórða þúsund manns af landi brott umfram þá sem fluttust
til landsins. Því er ljóst að íslenskt atvinnulíf hefur ekki boðið upp á þau
skilyrði sem fólk gerir tilkall til. Nauðsynlegt er að samræma atvinnuupp-
byggingu í landinu, svo vaxandi mannfjöldi fái allur störf við sitt hæfi.
Stöðug atvinna fyrir alla verður ávallt að vera meginmarkmið í stefnu ríkis-
valdsins í atvinnumálum. Til þess að þetta markmið náist þarf að vinna eftir
samræmdri atvinnustefnu, sem hvílir á heilbrigðu efnahagslífi.
Atvinnuástand er nú eins og oft áður ótryggt á einstökum sviðum og má
í því sambandi minna á, að sl. sumar bjó fólk í fiskiðnaði við mikið öryggis-
leysi. Brýnt er að setja atvinnurekendum þrengri skorður um uppsagnir
vegna hráefnisskorts og skipuleggja reksmr í sjávarútvegi svo atvinna verði
jafnari og traustari. Nú er nánast um vinnuþrælkun að ræða sum tímabil,
en á öðrum eru fiskvinnslustöðvar lokaðar. Fiskveiðar og fiskvinnsla eru
meginstoðir íslensks efnahagslífs og aðalatvinnugreinar í flestum byggðar-
lögum Iandsins og ljóst er að um fyrirsjáanlega framtíð munu þessar atvinnu-
greinar verða undirstaða þess þjóðfélags, sem við búum við. Skipulag rekstr-
ar og nýting auðlinda skipta því sköpum fyrir komandi tíð og þess verður
að krefjast, að stjórnvöld leiti samráðs við verkalýðssamtökin um alla stefnu-
mótun. Miðað við stærð fiskistofna er ljóst, að fiskipskipafloti landsmanna
er of stór. Fjölgun fiskiskipa síðustu mánuði bendir ekki til raunhæfra að-
gerða stjórnvalda í fisveiðistjórnun. Þingið skorar því á ráðamenn þjóðar-
innar að koma í veg fyrir frekari fjölgun fiskiskipa umfram eðlilega endur-
nýjun.
Jafnframt beinir þingið því til stjórnvalda að þau hlutist til um að nauð-
synleg og óhjákvæmileg endurnýjun fiskiskipaflotans verði framkvæmd af
innlendum skipasmíðastöðvum sem oftast hefur skort verkefni.
Landbúnaður hefur verið og mun verða einn af hornsteinum íslensks efna-
hagslífs. Tryggja þarf, að á hverjum tíma fullnægi innlend framleiðsla þörf-
um íslendinga fyrir þær landbúnaðarvörur, sem hægt er að framleiða hér á
landi. Af öryggis- og byggðasjónarmiðum er réttlætanlegt að kosta nokkru
66