Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 24.11.1980, Page 75
— Bætur almannatrygginga verði hækkaðar frá því sem nú er og reglum
um tekjutryggingu breytt á þann veg, að tekjutrygging verði ekki skert
vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum á samningssviði ASÍ-félaganna.
34. þing ASÍ minnir á, að ekki hvað síst í lífeyrismálum almenns verka-
fólks er þörf skjótra úrbóta til að auka jöfnuð og öryggi meðal allra lands-
manna sem lífeyris eiga að njóta?
Þingskjat nr. 49
Lífeyrisnefnd samþykkti samhljóða að mæla með því við 34. þing ASÍ,
að eftirfarandi tillaga um lífeyrismál verði samþykkt sem ályktun þingsins:
„34. þing Alþýðusambands íslands skorar á alla lífeyrissjóði að breyta
reglugerðum sínum á þann veg að réttur til makalífeyris verði gagnkvæmur
og afnema það misrétti sem felst í núverandi reglugerðum."
FRÁ FJÁRHAGSNEFND ÞINGSINS
Þingskjal nr. 43
Fjárhagsáætlun þingsins 1981
TEKJUR:
Almennur skattur í sambandssjóð ................... Gkr. 289-500.000
Viðbótargjald skv. 41. gr. laga ASÍ .................. — 10.500.000
Ríkisframlag til hagræðingardeildar................... — 15.000.000
Ríkisframlag til hagrannsókna......................... — 24.000.000
'únsar tekjur......................................... — 7.500.000
Samt. Gkr. 346.500.000
GJÖLD
Laun bifreiðast. og launat.gj.......................... Gkr. 173.000.000
Erindrekstur ............................................. — 25.000.000
Bókhald og endurskoðun, lögfr............................. — 9.000.000
Húsnæðiskostnaður —....................................... — 12.000.000
Almennur skrifstofukostnaður............................. — 13.000.000
Erlend samskipti ......................................... — 18.000.000
Samningar, fundir, félags.aðg............................. — 11.000.000
Prentun, styrkir og ýmislegt ............................. — 9.000.000
73