Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 121
• Nauðsynlegt er að auka til muna rannsóknir og þróunarstarf á grunnskóla-
stigi með það að markmiði að efla þetta skólastig, þróa og samræma náms-
mat og veita skólunum eðlilega hvatningu og aðhald í starfi sínu. Tilgangur-
inn er að tryggja að gæði menntunarinnar verði í samræmi við skilgreind
markmið skólanna. Nauðsynlegt er að þessu fylgi fagleg aðstoð og ráðgjöf.
• Mikilvægt er að skólarnir sjálfir þrói sína eigin gæðastefnu í samræmi við
markmið skólastarfsins og í samvinnu stjórnenda, starfsmanna og foreldra.
Slík gæðastefna, vitund starfsmanna og virkt eftirlit með framkvæmd henn-
ar er mikilvægt tæki til að þróa áfram og bæta skólastarfið.
• Mikilvægt er að skólinn taki virkan þátt í og endurspegli og miðli þeim
breytingum sem verða í samfélaginu á hverjum tíma. Breytingar á vinnu-
markaði og í samfélaginu hafa orðið til að draga mjög úr atvinnuþátttöku
barna með skóla og á sumrin. Þessi þróun mun halda áfram. Mikilvægt er að
skólinn, í samstarfi við sveitarfélög, komi til móts við breyttar aðstæður og
bjóði börnum og ungmennum upp á vel skipulagt sumarstarf þar sem fléttað
er saman fræðslu, starfi og leik með þroskavænlegum hætti.
Alþýðusamband íslands vill taka þátt í að efla grunnskólann á næstu árum, m.a.
með því að:
• Taka virkan þátt í umræðum um stöðu og framtíð grunnskólans út frá hags-
munum og viðhorfum neytendanna; fjölskyldunnar.
• Hvetja til og styðja viðleitni til að þróa og efla virkt innra og ytra eftirlit með
gæðum skólastarfsins og að skólarnir verði að fá aðstoð til að leysa þann
vanda sem þeir ráða ekki sjálfir við.
• Hvetja foreldra og stéttarfélög til að taka virkan þátt í umræðum um skóla-
starfið. Styðja það sem vel er gert, veita aðhald og benda á það sem miður
fer.
• Efla virðingu fyrir verk- og tækniþekkingu meðal grunnskólabarna og auka
þann þátt í skólastarfinu.
C. Framhaldsskólinn
Mikilvægasta verkefnið í uppbyggingu náms á framhaldsskólastigi næstu árin er
að draga úr því að ungmenni flosni úr skóla án þess að hafa lokið viðurkenndu
námi. Framhaldsskóli sem veldur hlutverki sínu er eitt öflugasta tækið í barátt-
unni gegn atvinnuleysi meðal ungs fólks, fíkniefnaneyslu og andfélagslegum
viðhorfum. Markmiðið sem verkalýðshreyfingin setur með starfi framhalds-
skólans er að hann veiti öllum ungmennum til átján ára aldurs möguleika til að
afla sér menntunar með tilliti til getu og áhuga hvers og eins. Náminu skal ljúka
með viðurkenningu á vel skilgreindri þekkingu og hæfni sem viðkomandi getur
tekið með sér út í atvinnulífið eða veitir aðgang að frekara námi, strax eða
síðar.
119