Ský - 01.12.2000, Síða 14

Ský - 01.12.2000, Síða 14
Friðrik Frióriksson FYRST & FREMST Vægðarlaus kokkteill Singapore Sling spilar einfaldlega rokk og ról Félagamir sex í Singapore Sling hafa vakið talsverða athygli und- anfarið á íslensku tónlistarsenunni. Hrár og kraftmikill tónn í anda New York árið 1967 einkennir sveitina, sem hefur verið iðin við spilamennsku upp á síðkastið. Forsprakki hljómsveitarinnar, Hen- rik Bjömsson - lagahöfundur, gítarleikari og söngvari - gaf sjálfur út geisladiskinn Overdriver síðastliðið sumar og í framhaldi af góðum viðtökum safnaði hann liði og stofnaði Singapore Sling. Þessi óvenjulega nafngift sprettur af vinsælum kokkteil sjöunda áratugarins, og „er einnig nafn á illfinnanlegri, súrrealískri klám- og ofbeldismynd eftir grískan leikstjóra.“ Henrik er ekki nýliði í tónlistinni, en hann var upprunalega með Barða Jóhannsyni í hljómsveitinni Bang Gang, sem var á sínum tíma „surf‘ band. „Eg byrjaði að semja tónlist þegar ég vai' 17 ára, fljótlega eftir að ég uppgötvaði The Velvet Underground. Það var hinsvegar ekki fym en að ég fjárfesti í fjögurra rása tæki fyrir tæp- um fjórum árum að ég fór að taka upp músík af einhverri alvöru." Henrik segist ekki vera að spá sérstaklega í íslenska tónlistarmark- aðinn, heldur semur fyrir sjálfan sig. Textarnir eru á ensku og Hen- rik segir: „Það er alltaf spurt hvers vegna. Það er alveg eins hægt að spyrja: „Af hverju spilarðu á rafmagnsgítar?" Enskan er eins og eitt af hljóðfærunum sem ég nota. Islenskur texti í þessari tónlist væri óeðlilegur." Sem helstu áhrifavalda nefnir hann Velvet Und- erground, The Doors, The Stoogees, Jesus and Mary Chain, Suicide, Sonic Youth, Jon Spencer og Angelo Badalamenti. Að- spurður um tónlistarstefnuna segir hann: „Rokk og ról. Einfalt, mínimalískt, kúl rokk og ról.“ En hefur Henrik einhvern tíma smakkað Singapore Sling? „Já ég gerði það einu sinni. Þetta er frekar vægur kokkteill. Ekkert eins og músíkin.“ nn LEIKHUS Þetta er leikgerð llluga Jökulssonar eftir ævintýrum Rudyards Kiplings um drenginn Móglí, sem elst upp hjá úlfa- fjölskyldu í frumskógum Indlands, og bestu vini hans, hlébarðann Bakíra og björninn Balú. Þeir þurfa að kljást við apahyski og vara sig á tígrisdýrinu grimma Shere Khan og hinum trygga fylgisveini hans, sjakalanum Tabskví, sem vita ekkert betra en mannakjöt. Friðrik Friðriksson er í titilhlutverkinu en í öðrum hlutverkum eru meðal ann- arra Jóhann G. Jóhannsson, Halldór Gylfason, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson. Þetta er jólafrumsýningin í Borgarleikhúsinu. Antígóna í þessu verki Sófóklesar takast hug- sjónir, trú og innsta sannfæring ein- staklingsins á við ofurefli valdsins. Magnað verk sem hefur sterka skírskotun til nútímans. Kjartan Ragn- arsson leikstýrir einvala liði leikara Þjóðleikhússins, þar á meðal eru Hall- dóra Björnsdóttir, Arnar Jónsson, Rúnar Freyr Gíslason, Erlingur Gísla- son, Hjalti Rögnvaldsson, Valdimar Örn Flygenring, Anna Kristín Arn- grímsdóttir, Kristbjörg Kjeld og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir. Þetta er jóla- frumsýning Þjóðleikhússins. Með fulla vasa af grjóti Gamanleikrit um tvo írska náunga sem taka að sér að leika í alþjóðlegri stórmynd. Fjölskrúðugar persónur verksins eru allar leiknar af tveimur leikurum: kvikmyndaleikstjórinn, Hollywoodleikkonan, þorpsbúarnir og fjölmargir aðrir. Þetta er glænýtt verðlaunaverk eftir Marie Jones sem hefur slegið rækilega í gegn þar sem það hefur verið sett upp. Leikstjóri er lan McElhinney, en hann er eigin- maður höfundarins og stýrði fyrstú uppfærslunni á írlandi. Leikarar ehJ Hilmir Snær Guðnason og Stefáb Karl Stefánsson. Frumsýnt í Þjóðleik' húsinu í janúar. Þjóöníöingur Verk Henriks Ibsen segir frá lækninurn Tómasi Stockmann, sem stenduf skyndilega einn gegn samfélaginú þegar hann gerir uppgötvun sem set- ur væntanlegar stórframkvæmdir bæj' arins í uppnám. Hvers virði er sann- leikurinn gegn auðsóttum gróða? Hversu langt erum við tilbúin til að ganga í baráttunni fyrir réttlaeti? Hvenær eru hagsmunir samfélagsins míkilvægari en tjáningarfrelsið? Hall' dóra Geirharðsdóttir og Ingvar E. Sig' urðsson fara með hlutverk Stock' mann-hjónanna og leíkstjóri er Marí® Kristjánsdóttir. Frumsýnt í Borgarleik' húsinu í janúar. Ský
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.