Ský - 01.12.2000, Page 31
/
hhbhhhii
% / • 'j
. ' J
Andrea
Unnarsdóttir,
nektardans-
mær á Þórscafé
*Ef þú gætir breytt einum hlut í þjóðfélaginu í
dag, hvað myndi það vera?
„Ég myndi gera eitthvað í umferðarmálunum í
höfuðborginni, umferðin er alltof þung."
*Hver er merkasta konan á íslandi í dag og af
hverju?
„Það er Jónína, eigandi Þórscafé. Hún er þrusu-
gella og ég vil verða eins og hún þegar ég er
eldri."
*Hver er merkasti maður á íslandi í dag og af
hverju?
„Þáll Óskar Hjálmtýsson. Hann hefur náð ýmsu í
gegn og barist fyrir réttindum samkynhneigðra.
Hann kom umræðunni upp á yfirborðið."
*Aðeins örlítil prósenta kvenna er forstjórar hjá
íslenskum fyrirtækjum. Er okkur sama?
„Nei, okkur er alls ekki sama. Konum er ekki gefið
tækifæri á því að sanna sig í þjóðfélaginu en von-
andi verður breyting á því."
*Finnst þér íslendingar vera fordómafullir gagn-
vart öðrum kynþáttum?
„Nei, alls ekki. Ég held að það sé ekki algengt."
*Hvað finnst þér um rétt samkynhneigðra til að
ala upp börn?
„Þeir hafa fullan rétt á því. Ég styð þá 150 pró-
sent."
*Þurfa karlmenn meira á konum að halda en kon-
ur á karlmönnum?
„Tvímælalaust. Karlmenn eru eins og stór börn.
Konur eru miklu sjálfstæðari."
*Truflar þessa nýja bylgja af nektarstöðum á ís-
landi þig?
„Nei, ekki á nokkurn hátt. Það er alveg nógu
mikið eftirlit með þessu hér á landi."
ský 129