Ský - 01.12.2000, Side 34
Ingibjörg Ólöf
Vilhjálms-
dóttir, lög-
fræðingur hjá
landbúnaðar-
ráðuneytinu
*Ef þú gætir breytt einum hlut í þjóð-
félaginu í dag, hvað myndi það vera?
„Launamisrétti kynjanna. Það er alveg
fáránlegt að enn, árið 2000, fái karl og
kona ekki sömu laun fyrir sömu störf."
*Hver er merkasta konan á íslandi í
dag og af hverju?
„Björk Guðmundsdóttir, henni tekst
allt vel sem hún tekur sér fyrir hend-
ur."
*Hver er merkasti karlmaður á íslandi í
dag og af hverju?
„Dr. Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar. Erfðarannsóknir á ís-
landi í þágu bættrar heilsu hljóta að
þjóna okkur öllum."
*Aðeins örlítil prósenta kvenna er for-
stjórar hjá íslenskum fyrirtækjum. Er
okkur sama?
„Nei, best væri að hafa jafnvægi i
þessu eins og öðru. Hins vegar finnst
mér nauðsynlegt að hæfasti einstak-
lingurinn fái stöðuna, hvort sem um er
að ræða karl eða konu. Vonandi hafa
ný lög um fæðingarorlof áhrif í þá átt
að fleiri karlmenn taki fæðingarorlof
en það tel ég nauðsynlegt til þess að
kynin verði metin að jöfnu á vinnu-
markaði."
*Hvað finnst þér um stöðu umhverfis-
mála á íslandi?
„Mér finnst staða umhverfismála á fs-
landi á réttri leið. Við erum að verða
meðvitaðri um mikilvægi þessa mála-
flokks. Hitt er svo annað mál að það
verður alltaf erfitt að vega og meta
hagsmuni við byggingu stóriðju. Þá er
nauðsynlegt að ráðamenn fylgi þeim
leikreglum sem í gildi eru."
*Finnst þér íslendingar vera fordóma-
fullir gagnvart öðrum kynþáttum?
„Já, því miður. Ég tel hins vegar hægt
að koma í veg fyrir fordóma með auk-
inni fræðslu."
*Hvað finnst þér um rétt samkyn-
hneigðra til að ala upp börn?
„Ég er hlynnt því að samkynheigðir
jafnt og gagnkynheigðir fái að ala upp
börn. Það hvort manneskja er góður
uppalandi hefur ekkert með kynheigð
að gera að mínu mati."
*Þurfa karlmenn meira á konum að
halda en konur á karlmönnum?
„Við þurfum örugglega jafnmikið
hvort á öðru að halda. Ég get að
minnsta kosti ekki hugsað mér heim-
inn án karlmanna."
*Myndir þú íhuga að lögleiða fíkniefni
á fslandi eða myndir þú lögleiða sölu á
áfengi annars staðar en í Ríkinu?
„Nei ég myndi ekki vilja lögleiða fíkni-
efni á íslandi, alls ekki. Hins vegar
myndi ég gjarnan vilja að léttvín og
bjór væru til sölu í matvörubúðum."
*Hefur þú komið inn á nektardans-
stað? Truflar þessa nýja bylgja af nekt-
arstöðum á íslandi þig?
„Já, ég hef komið á nektardansstað.
Þessi bylgja truflar mig ekki, en mér
finnst sjálfsagt að skýrar reglur gildi
um starfsemi slíkra staða og staðsetn-
ingu þeirra."
32 ský