Ský - 01.12.2000, Qupperneq 38

Ský - 01.12.2000, Qupperneq 38
Þú segir að hver einstaklingur skipti máli í betra samfélagi og geti haft áhrif á gang mála. Hvað segirðu við konuna sem er búin að vinna við lág- launastarfið heimilishjálp lungann úr ævinni? Hvernig getur hún öðlast tækifæri til frekari frama? Sé hún óánægð og vilji breyta sínu Kfsmunstri þarf hún fyrst að skilgreina til hvers hana langar. Að því loknu þarf hún að skilgreina leiðirnar að markmiði sínu og pæla í því hvað hún geti gert til að komast nær draum- um sínum. Vilji fólk taka sér eitthvað nýtt fyrir hendur er hægt að snúa við blaðinu á hvaða aldri sem er og tækifæri til menntunar eru ótrúlega góð á íslandi. Þér getur nú varla verið alvara miðað við fátækleg framfærslulán LÍN? Jú, vegna þess að námsmenn hafa það mun betra en margir aðrir þjóðfélagshópar. Ég átti ekki krónu þegar ég byrjaði í Háskóla íslands. Ég var í ódýrri leiguíbúð á Görðunum ásamt mannsefninu mínu, Aðalsteini Jónassyni, þá laganema, og syni okkar Jónasi Aðalsteini sem gekk í niðurgreiddan leikskóla fyrir börn stúdenta. Þegar tekið er tillit til alls höfðum við það mun betra sem námsmenn heldur en einstaklingar sem eru á lægstu launum hjá ríkinu. Auðvitað er oft hart í ári hjá náms- mönnum, en það er vel hægt að mennta sig án þess að vera kominn af efnafólki og þess vegna segi ég að tækifærin eru fyrir hendi. Pólitík getur verið skemmtileg Hvaðan kemurðu, Ásdís Halla? Ég fæddist í Ólafsvík og ólst þar upp fyrstu níu árin. Frá Ólafsvfk flutti ég til Svíþjóðar og svo til Noregs með foreldrum mínum sem héldu út af ævintýraþrá eins og svo margir á þeim árum. Þegar heim kom settumst við að á Akranesi en mér lá svo á að komast til Reykjavíkur í Háskóla íslands að ég tók stúdentsprófið á liðlega þremur árum uppi á Skaga. Hvað fékkstu í samræmdu prófunum? Fjögur A? Veistu, ég tók ekki samræmdu prófin. Ég var þá komin í ákveðið tilraunaverkefni sem fólst í því að þeir sem fengu níu eða hærra í kjarnafögunum fyrir áramót í tíunda bekk, fengu að byrja í því fagi í Fjölbrauta- skólanum á Akranesi. Ég fékk hærra en níu í öllum fögum og byrjaði því í framhaldsskólanum á áramótum. Hefurðu þá aldrei fallið í neinu? Jú, jú, ég byrjaði í lögfræði í Háskólanum og féll hressi- lega. Mér fannst námið ótrúlega þurrt og leiðinlegt en lét mig hafa það að mæta í próf án þess að hafa opnað bók allt misserið. Þá grundvallaðist val mitt á því að flestir stjórnmálamenn voru lögfræðingar og ég var ekki betur að mér en svo að ég taldi nauðsyn að læra lögfræði hefði maður áhuga á stjórnmálum. Á þeim tíma var það mikið áfall fyrir sjálfsmyndina að falla og mér fannst ég vera mesti lúser í heimi þótt ég vissi að ég ætti ekki annað skilið. Fórstu svo markvisst yfir í stjórnmálafræðina til að ná pólitískum frama? Nei, alls ekki. Ég hafði alltaf gengið með þann draum í maganum að verða blaðamaður og skrifa um stjórnmál. Eftir að ég útskrifaðist úr stjórnmálafræðinni 1991 var ég svo heppin að fá starf sem blaðamaður hjá Morgunblað- inu. Blaðamennskan er skemmtilegasta starf sem ég hef verið í og hún átti einstaklega vel við mig. Samt stoppaðir þú ekki nema tvö ár í drauma- starfinu? Það er rétt. Ég hætti þegar Geir H. Haarde, sem þá var formaður þingflokks sjálfstæðismanna, hringdi í mig og var að leita að blaðamanni í starf framkvæmdastjóra þingflokksins, vegna þess að sá sem gegnir því starfi þarf að ritstýra Flokksfréttum og skrifa mikið. Ég ákvað að slá til vegna þess að ég taldi mig verða betri blaðamann eftir slíka reynslu. Þar með varðstu fyrsta konan til að gegna því embætti. Þú hefur oft verið ein í settlegu karla- veldi. Hvernig hefurðu komist inn í þessi karla- vígi? Satt best að segja veit ég það ekki. Ég hef fengið ómet- anleg tækifæri og tekist á við þau óhikað. ,... mér finnst svo áberandí hvaö okkar kynslóð er Iftið spennt lyrir því að axla ábyrgð og hversu lítið henni finnst til þess koma að vera í forystuhlutverki" Hefur þú beitt þínum kvenlegu töfrum til að kom- ast áfram í metorðastiganum? Nei, ekki meðvitað en flestir beita persónutöfrum sínum með einhverjum hætti, annaðhvort meðvitað eða ómeð- vitað. Skiptir útlit máli í pólitík? Já, að einhverju leyti vegna þess að útlit er hluti af ímynd og getur sagt fólki ýmislegt um það hvers konar karakter maður er. Auðvitað er svo hægt að draga ósanngjarnar ályktanir um fólk út frá útliti þess. Er pólitík sexí? Nei, ekkert sérstaklega en hún er ákaflega gefandi þegar vel gengur og maður skynjar að maður hefur jákvæð áhrif á samfélagið. Tókstu þátt í stúdentapólitíkinni á námsárum þínum í Háskólanum? Já og fékk alveg nóg af því starfi. Mér fannst sú pólitík skila afskaplega litlu og vera alveg ótrúlega leiðinleg. Hún var rætin, grimm og andstyggileg en um leið góður skóli. Ég ákvað þá með sjálfri mér að koma aldrei aftur nálægt pólitík. Hvaða hugarfarsbreyting átti sér síðar stað? Ég hafði engin afskipti af stjórnmálum eftir að ég hætti í stúdentapólitíkinni og allt þar til ég fór að vinna sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þá átt- aði ég mig á því að pólitík getur verið skemmtileg og 36 í ský
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.