Ský - 01.12.2000, Side 47

Ský - 01.12.2000, Side 47
Stærstu fyrirtækin sem konur stýra* Rannveig Rist ísai 6. stærsta fyrirtækið Hrönn Greipsdóttir Radisson SAS, Hótel Saga 123. stærsta fyrirtækið Svava Johansen NTC hf. 127. stærsta fyrirtækið Guðrún Lárusdóttir Stálskip hf. 160. stærsta fyrirtækið Rakel Ólsen Sigurður Ágústsson hf. 194. stærsta fyrirtækið *miðað við lista Frjáisrar verslunar um 300 stærstu fyrirtæki landsins. Þar er miðað við veltu. mun færri konur en karlar í verkfræði- deild Háskólans. „Rannveig hefur sýnt frumkvæði og forystu og stýrir einu stærsta fyrirtæki landsins," sagði einn af þeim sem rætt var við og annar: „Það er mikill sómi að Rannveigu Rist og garnan að sjá hana þar sem hún er, það er alltof sjaldgæft að konur veljist til forystustarfa í fyrirtækjum.“ Þóra Guðmundsdóttir, annar aðal- eigandi flugfélagsins Atlanta, fékk ný- lega viðurkenningu Félags kvenna í at- vinnurekstri. Atlanta er talið tólfta stærsta fyrirtæki landsins samkvæmt út- tekt Frjálsrar verslunax. Flugrekstur og stjórn álverksmiðju myndu seint teljast til hefðbundinna kvennastarfa þegar sú skilgreining er notuð. í Háskóla íslands eru konur í mikl- um minnihluta prófessora. Engin kona er prófessor eða dósent við viðskipta- og hagfræðideild þar sem fólk býr sig undir störf í viðskiptalífi landsins, ein er á lista yfir tuttugu og fimrn fasta kennara við skorina, Svava Grönfeldt lektor. Öðru máli gegnir urn Háskólann í Reykjavík. Þar eru konur í rnörgum af lykilstöðunum, þar á meðal Guðfinna Bjarnadóttir rektor. Hún situr einnig í nokkrum stjómum fyrirtækja. Sex kon- ur eru í tíu manna framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík en engin í Há- skólaráði en í Háskólaráði Háskóla Is- lands eru tvær konur aðalmenn. í atvinnulífinu eru einnig nefndar útgerðarkonurnar Guðrún Lárusdóttir og Rakel Olsen sem stýra öflugum sjávarútvegsfyrirtækjum. Um Guðrúnu, sem stýrir Stálskipum í Hafnarfirði, er sagt að hún sé snjöll og afar harðdræg í viðskiptum, enda hiki hún ekki við að láta duglega í sér heyra ef henni er mik- ið niðri fyrir. Sagt er að jafnan gusti af henni á fundum Landssambands ís- lenskra útvegsmanna en hún er fyrsta konan sem þar hefur setið í stjórn. Rakel, sem rekur útgerð Sigurðar Ágústssonar í Stykkishólmi, þykir einnig mikill kvenskömngur. Nokkrar aðrar konur, sem líta má á sem fulltrúa atvinnulífsins, voru nefnd- ar. Svava Johansen, sem á tískuverslana- samsteypuna NTC hf. sem rekur meðal annars tískuverslunina Sautján, er þar nefnd. í þessum hópi eru aðallega erf- ingjar rnanna sem náðu að efnast og hafa mikil völd og ítök í íslensku við- skiptalífi. Margrét Garðarsdóttir, ekkja Halldórs H. Jónssonar, fyrrverandi „stjórnarformanns lslands“ var nefnd. „Hún stjórnar sonum sínum og stjórnar- setum þeirra. Klár og merkileg kona.“ Systumar Lilja og Ingibjörg Pálmadæt- ur, dætur Pálma í Hagkaupi, komust einnig á blað með orðunum: „Pening- um fylgja völd og völdum tækifæri til áhrifa.“ Lilja er myndlistarkona þótt áhrif hennar séu örugglega meiri á öðrum vettvangi. Viðmælendurnir eru hins vegar á því að ýmsar góðar listakonur hafi haft mikil áhrif þótt þær sitji ekki í valdastöðum. „í menningunni er Sl<y 45

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.