Ský - 01.12.2000, Side 57

Ský - 01.12.2000, Side 57
Margrét Sigurðardóttir, Kolbrún Petrea Gunnars- Eva Bergþóra Guðbergs- söngkona og nemi dóttir, eigandi verslunar- dóttir, fréttamaður í tónsmíði. innar GK. á Stöð 2. ANNA MARGRÉT: Þegar við ákváðum að SKÝ yrði helgað konum í þetta sinn fór ég að hugsa um þau kvennablöð sem eru á markaðnum. Þetta eru að mestu leyti blöð helguð tísku, megrun- arkúrum og „Hvernig á að ná betri full- nægingu", samanber blöð eins og Cosmopolitan. Höfum við konur aðeins áhuga á þessu? Eru karlablöð oft ekki miklu skemmtilegri ? EVA BERGÞÓRA: Nú eru líka komnir þessir kvennavefir. Þar er fjallað um börn og heilsu, kynlíf, vandamál, per- sónuleikapróf og svo framvegis. En af hverju svona „sér" efni fyrir okkur kon- ur? Ekki eru einhver svona „sér" efni fyrir karla. Markhópurinn á Stöð 2 eru konur á aldrinum 18 til 35 ára og þær fá þá dæmigerða sjónvarps þætti þar sem rætt er um „vandamálin af ein- lægni". Á þetta við okkur? Þetta vekur ekki áhuga minn og ekki hafa mínar vinkonur áhuga á þessu. BRYNDÍS: Þetta kemur af þörf okkar til að flokka allt niður í skúffur. Þessi blöð eru fyrir konur, þessi blöð eru fyrir karla. MARGRÉT: Þetta stafar sjálfsagt af ein- hverjum mun, eins og að konur mála sig og ekki karlar og þetta er allt ýkt. Konur eru merktar með einhverjum merkimiðum. IÐA BRÁ: Ég er samt alltaf að fá sent eitthvert efni af þessum vefsíðum eins og femin.is á netpósti, persónuleika- próf og annað. Það eru greinilega ein- hverjar konur sem hafa áhuga á þessu. BRYNDÍS: Mér finnst að í fjölmiðlum sé miklu algengara að tekin séu viðtöl við karlmenn. EVA BERGÞÓRA: Nei, ég held að það séu bara fleiri karlar í þannig stöðum að við tökum viðtöl við þá. Hins vegar vilja konur oft ekki koma í viðtöl. Mað- ur þarf hálfpartinn að pína þær og draga þær í það en oft eru þetta konur sem gefa sig út fyrir að vera með ein- hverjar skoðanir. BRYNDÍS: Það sem við konur þurfum virkilega á að halda er hvatning til að koma fram í fjölmiðlum. Við höfum alltaf áhyggjur af því að fólk dæmi okkur af því hvernig við lítum út. EVA BERGÞÓRA: Við erum líka svo var- kárar. Við þurfum alltaf að vera með einhver viðhengi við svör eins og „Ég vil nú taka það fram að allir þátttak- endur stóðu sig vel" og svo framvegis. Við viljum aldrei særa neinn. LAUFEY BRÁ: Við konur erum alltaf að dæma hvor aðra. Til dæmis þegar ég var með „Djúpu laugina" þá var nei- kvæða krítikin sem við fengum bara út á það hvernig við litum út, ekki hvað við sögðum. Fólk hugsaði: þarna eru konur sem eru áberandi, að bulla svo- lítið og fannst þetta hreinlega ekki fara okkur. Ef þetta hefðu verið tveir karl- menn hefði þetta verið litið allt öðrum augum. BRYNDÍS: Ég tók eftir greininni í síðasta Skýi um Sólveigu Sveinbjörns sem hannaði dömubindastólinn. Hún er einmitt að vinna út frá hugmyndinni að við konur verðum að vera svona dís- ir, léttar og svífandi, fullkomnar og fal- legar með enga svitalykt en samt þurf- um við að vera með allt pottþétt heima, vaska upp og ala upp börnin. IÐA BRÁ: Það er nú þannig í minni vinnu að karlmennirnir eru ekkert hræddir við að tala fyrir framan annað fólk, alveg þó að þeir viti stundum ekk- ert hvað þeir ætla að tala um. Ég myndi aldrei geta gert þetta nema vera búin að ákveða nákvæmlega hvað ég ætla að segja fyrirfram, vera með öll svör á reiðum höndum. LAUFEY BRÁ: Já, svo að enginn geti haldið að þú sért einhver vitleysingur. BRYNDÍS: Ef við hugsuðum þannig að við mættum gera átta mistök á dag væri þetta miklu auðveldara. EVA BERGÞÓRA: Það ætti að leggja meiri áherslu á það í skólakerfinu að tala fyrir framan annað fólk. Eins og þeir gera í Bandaríkjunum frá unga aldri. ANNA MARGRÉT: En af hverju höfum við konur ennþá miklu minna sjálfsálit en karlar ? IÐA BRÁ: Þetta er bara hefðin. Ég fór til Búlgaríu um daginn og þar er ekki jafn- mikill kynjamismunur. Þar voru konur bara skikkaðar til að vinna, ef þær eignuðust börn fóru þær aftur í vinnu eftir þrjár vikur. Ef þú ert alin upp við það að mamma þín er forstjóri eða eitt- hvað álíka finnst þér þetta miklu eðli- legra. Það tekur nokkrar kynslóðir að breyta þessu. MARGRÉT: Svo hefur uppeldið heilmik- ið að segja. Stelpan á alltaf að vera prúð og sæt og strákar eru bara skemmtilegri ef þeir eru fjörugir og með ólæti. LAUFEY BRÁ: Mér finnst við bara setja okkur á þennan stað sjálfar. IÐA BRÁ: Einmitt, konur komast alveg jafnlangt og karlar ef þær bara vilja það. MARGRÉT: Ég er í tónsmíðanámi þar sem eru átta karlmenn og tvær konur, ský 155

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.