Ský - 01.12.2000, Síða 59

Ský - 01.12.2000, Síða 59
 betra. Það var byrjað á því að selja fimm titla fyrir karla, þrjá fyrir konur, og þrjú „gay"blöð. „Gay"blöðin og herrablöðin fóru hratt, en blöð eins og Playgirl og annað bifaðist ekki því að það var engin kona sem hafði áhuga á þessu yfirhöfuð. Þetta var bara hlægi- legt. Við konur fáum þetta út úr ein- hverju öðru, út úr erótískum sögum og ástarsögum. Það er miklu betra fyrir okkur að hafa bara einhvern lesinn heim. ANNA MARGRÉT: Lesið þið einhvern tíma ástarsögur? IÐA BRÁ: Nei, þær eru svo illa skrifaðar. MARGRÉT: Ég var einu sinni í veikind- um og fékk bunka af þessu að lesa. Þegar ég var búin með þá fyrstu upp- götvaði ég að sú næsta var alveg eins. Þetta var einhvern veginn sama bókin. LAUFEY BRÁ: Ég varð rosalega spæld þegar ég var ung og las svona. Aðal- persónunni var lýst, hún var rosafalleg með Ijóst sítt hár og blá augu. Svo horfði maður framan á bókina og þá var hún með svart hár og allt öðruvísi. Ég náði þessu ekki. EVA BERGÞÓRA: Eða hún var allt í einu orðin dökkhærð á blaðsíðu fimmtán. LAUFEY BRÁ: En karlmenn hugsa allt öðruvísi en konur. í kynlífi hugsa karl- menn til dæmis bara um kynlífið sjálft, en konan hugsar meira að segja um myndirnar á veggjunum. Hún er búin að fantasera og búa sér til umgjörð um þetta allt saman, kert, og svo framveg- is, hún er búin að smíða sér einhverja veröld. Það er kannski þess vegna sem við skiljum ekki þessa nektardansstaði. Karlmenn hugsa bara „píka", „brjóst", „ríða", en við konur viljum hafa þetta fallegt. IÐA BRÁ: En fólk, það er að segja kon- ur, heldur alltof oft að hjónabandið eigi að vera eins og bíómynd, kerti, rómantík og svo framvegis. Þetta gefur fólki ranghugmyndir og leiðir oft til skilnaðar. MARGRÉT: Og karlmenn halda þá kannski að hjónabandið eigi að vera eins og Playboy-tímarit? (hlátur) LAUFEY BRÁ: Við konur stöndum ekki nógu mikið saman heldur. Það eru til þær konur sem hafa kosið að vera dansarar á nektarstöðum; af hverju erum við hinar þá að berjast fyrir því að bjarga þeim? Við erum alltof mikið að reyna að vera eins og karlmenn, en við erum konur. Konur eru konum verstar BRYNDÍS: Nú er ég einhleyp, barnlaus, að njóta lífsins, með áhuga á minni vinnu, og mér finnst þetta trufla karl- menn. Þeir skilja ekki af hverju ég vil ekki vera með þeim og segja þá að ég hljóti að vera lesbía. Ef ég vil ekki sofa hjá þeim er ég lesbía. Þeir þurfa alltaf að sigra og geta ekki tekið því að ég segi: „Nei, ég er ekki lesbía, ég hef bara ekki tíma til að standa í sambandi með þér, ógæfu-alkóhólistinn þinn." (hlátrasköll) MARGRÉT: Ég var nú að hugsa um þess- ar konur sem eru í viðtölum og segja allt voða óljóst eins og: „Við teljum ... kannski ... og það er ekki víst ..." en við ættum kannski að líta á þetta sem kost og notfæra okkur hann. IÐA BRÁ: Yfirmaður minn myndi skamma mig fyrir að tala svona óljóst. MARGRÉT: En myndi hann gera það ef hann væri kona? IÐA BRÁ: Ég veit það ekki. En maðurinn minn skammar mig fyrir þetta líka. LAUFEY BRÁ: Mér finnst æðislegt ef ég þarf að rukka einhvern og það er kona. Annars eru það endalaus símtöl; ef það er kona veit ég að ég fæ borgað á rétt- um tíma. BRYNDÍS: Ég held líka að fjölmiðlakon- ur séu réttlátari og sanngjarnari en karlmenn. EVA BERGÞÓRA: Ég held ekki. Mér finnst þetta bara mjög misjafnt. LAUFEY BRÁ: Konur eru nú konum verstar. MARGRÉT: Útlitið er svo ofarlega hjá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.