Ský - 01.12.2000, Side 78

Ský - 01.12.2000, Side 78
Ódýrustu neyslulánin á markaðnum Mikil umræða hefur átt sér stað um hag- kvæmní bílalána og bílaeígn íslenskra heímila og af því tilefni tókum víð tali Hjalta Þór Kristjánsson hjá SP-Fjármögnun, „Málið er að bíllinn er ákaflega mikil- vægur eða öllu heldur þarfur þjónn við rekstur heimilanna. Ástæður þess er að miklu leyti að finna í því að við búum í strjálbýlu landi með misgóðar sam- göngur og bæði tíðarfarið og vinnuá- lagið kalla oftar en ekki á að bæði tjöl- skyldur og einstaklingar þurfa á bíl að halda. Ég held almennt að fólk sé hætt að líta á bíl sem fjárfestingu, heldur líti á hann sem neysluvöru." Hagkvæmur kostur En hvernig er þá hagstæðast fyrir heimili landsmanna að standa undir þessari bílaeign? „í fyrsta lagi má geta þess að bílalán- in eru ódýrustu neyslulánin á markaðn- um í dag. Bankalán, yfirdrættir og rað- greiðslusamningar; allt eru þetta um- talsvert dýrari kostir fyrir heimilin en bflalánin. Staðreyndin er að hagkvæm- asti kosturinn fyrir okkar viðskiptavini, fjölskyldur sem einstaklinga um allt land, er oft að taka lán til allt að sjö ára. Þannig getur viðkomandi eignast bíl sem býður öryggi, lítið viðhald og hag- kvæman rekstur. Að auki er svo hag- kvæmni í því að endurnýja bílinn reglu- lega, á t.d. þriggja til fjögurra ára fresti.“ Breytt staða á markaði En hvernig stendur þá á allri þessari neikvæðu umfjöllun og reynslusögum af fólki sem er að missa stjórn á fjár- málum heimilisins? „Þrátt fyrir afar neikvæða fjöl- miðlaumfjöllun um bílalán eru það engu að síður staðreyndirnar sem tala sínu máli. Bflalánin hafa hreinlega ekki notið sannmælis hjá fjölmiðlum. Þegar sú staða kom upp á bílamarkaðnum að notuðum bílum, sem á hvíla bflalán, fór að fjölga hratt og að því er virtist óvænt fyrir marga, þá fór umræðan að breyt- ast. Bflalán er nokkuð sem vart þekktist fyrir nokkrum árum síðan og er því í raun jákvæð nýjung á markaðnum. En það er og verður alltaf eitthvað um fólk sem leggur út í fjárfestingar sem það ræður ekki við og þetta litla hlutfall ein- staklinga sem er í vandræðum er það sem skapar fréttir.“ í góðum farvegi „Það hefur aldrei þótt nein frétt í því að hlutfall vanskila á bílalánamarkaði hefur síður en svo vaxið. Þvert á móti stendur fólk sig ákaflega vel í að halda öllu í skilum, sem sýnir okkur líka mik- ilvægi bílsins fyrir heimilin. Við reyn- um alltaf að beina okkar viðskiptavin- um í skynsamlegan farveg í þessum efnum og bjóða þeim aðstoð við að horfa á málið í heild sinni þegar á þarf að halda. Við veitum til að mynda að- eins 75% lán af andvirði kaupverðs á nýjum bíl og viðskiptavinurinn nýtur svo staðgreiðsluverðs á bflnum. Enda er það okkar reynsla að flestir eru með þessi mál í afskaplega góðum farvegi og njóta góðs af þeim möguleika sem bílalánið býður.“ Víðtæk fjármálaþjónusta og ráðgjöf Samband íslenskra sparísjóða Sparisjóðirnir samanstanda af sjálf- stæðum og sterkum fjármálastofnunum sem starfræktar eru í flestum sveitarfé- lögum landsins. Samstarf sparisjóðanna gefur þeim stærðarhagkvæmni og góð- an slagkraft. Sparisjóðirnir hafa náið samstarf sín í milli á sviði markaðs- mála, tæknimála og fræðslumála auk samstarfs á fjármálasviðinu. í sameign þeirra eru Sparisjóðabanki íslands, Kaupþing hf., SP-Fjármögnun hf. og Alþjóða líftryggingafélagið hf. Sparisjóðirnir hafa í sívaxandi mæli aukið erlend viðskipti sín og taka því þátt í millibankamarkaði. Sparisjóðimir eru í dag í tengslum við hundruð banka um heim allan. Gjaldeyris- og peningamark- aðsviðskipti eru langviðamesti þátturinn í erlendum viðskiptum sparisjóðanna. Grunnurinn að sparisjóðunum felst í fjölbreyttu þjónustuframboði sem tekur mið af því að bjóða viðskiptavinum upp á víðtæka fjármálaþjónustu og ráðgjöf. Starfsfólk sparisjóðanna leggur sitt af mörkum með að þjónustan sé persónu- leg, en í senn örugg og sniðin að þörf- um hvers og eins. Veldu örugga framtíð með Sparisjóðinn sem þinn viðskipta- banka. 76 Ský

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.